Richarlison sorgmæddur: „Af hverju?“ Sindri Sverrisson skrifar 15. september 2026 07:33 Richarlison er fastur í frystikistu og spilar kannski ekki fótbolta aftur fyrr en í janúar. Getty/Marc Atkins Brasilíski sóknarmaðurinn Richarlison lýsti með heldur óljósum hætti yfir vonbrigðum sínum þegar Roberto De Zerbi, stjóri Tottenham, staðfesti að hann yrði ekki með gegn Liverpool í enska deildabikarnum í fótbolta í kvöld.
Gjá hefur myndast á milli Richarlison og stjórnenda Tottenham í sumar en ekkert hefur þó gengið við að selja hann, hvorki til Trabzonspor í Tyrklandi né Vasco da Gama í Brasilíu, og er Brasilíumaðurinn enn leikmaður Tottenham. Hann er þó ekki í 25 manna leikmannahópnum sem valinn var í ensku úrvalsdeildina en hefði mátt spila í deildabikarnum í kvöld og var De Zerbi spurður út í það á blaðamannafundi. „Richarlison mun ekki spila, jafnvel þó að hann megi það. Ekki einu sinni í deildabikarnum, nei,“ svaraði De Zerbi. Richarlison birti þessa mynd á Instagram.Skjáskot/@richarlison Félagaskiptafréttamaðurinn Fabrizio Romano birti ummælin á X og Richarlison svaraði þar með grátkalli. Richarlison birti svo einnig skjáskot af ummælunum á Instagram og með fylgdi einföld spurning: „Af hverju?“ Richarlison er 29 ára gamall og hefur spilað fyrir Tottenham frá árinu 2022. Á síðustu leiktíð skoraði hann ellefu mörk og átti fjórar stoðsendingar, í 32 deildarleikjum. Tottenham hefur aftur á móti enn ekki skorað mark í ensku úrvalsdeildinni á þessari leiktíð, í fjórum fyrstu umferðunum, og átti ekki einu sinni skot á mark í þremur hálfleikjum í röð. Leikur Liverpool og Tottenham hefst klukkan 19 í kvöld, í beinni útsendingu á Sýn Sport Viaplay.
Enski boltinn Tottenham Hotspur Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Segir félagið í skítnum Enski boltinn Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Fyrstur síðan David Robinson var og hét Körfubolti Fleiri fréttir Hildur skoraði í sigri Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sjáðu mörkin: Varnarmenn United eins og keilur og rautt spjald Martínez Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Grealish í agabanni hjá Everton Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað „Enski boltinn er annar heimur“ „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Verða án Sesko fram í janúar „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Sjá meira