Hvað verður minna þegar ríkið tekur meira? Íris Ósk Gísladóttir skrifar 11. september 2026 19:31 Umræðan um fyrirhugaðar skattahækkanir á ferðaþjónustu hefur eðlilega snúist mikið um prósentur, tekjur ríkissjóðs og áhrif á rekstur fyrirtækja. En frá mínum bæjardyrum séð eru þrír vinklar sem mér finnst sérstaklega mikilvægt að týnist ekki í þeirri umræðu: áhrifin á samfélagið í kringum fyrirtækin, uppbyggingu heilsársferðamennsku úti á landi og svo fólkið sem á endanum greiðir fyrir þjónustuna, því ferðamaðurinn er nefnilega ekkert alltaf erlendur. Í starfi mínu hjá Skógarböðunum fæ ég meðal annars að taka þátt í að ákveða hvaða verkefni við styðjum hér í samfélaginu. Við getum ekki sagt já við öllu, en við reynum að segja já eins oft og við getum. Við styðjum íþróttir, menningu og ýmis samfélagsverkefni, höfum boðið eldri borgurum og öryrkjum frítt í böðin, tekið á móti krabbameinssjúkum í meðferð og fjölskyldum þeirra og höldum árlega golftengdan góðgerðarleik fyrir málefni sem skipta máli í nærsamfélaginu. Ég nefni þetta ekki til að fá klapp á bakið, heldur vegna þess að mér finnst stundum gleymast að þegar fyrirtækjum í samfélaginu gengur vel þá nær ávinningurinn miklu lengra en inn á rekstrarreikninginn. Hann skilar sér í störfum, kaupum á þjónustu, fjárfestingum, samstarfi og stuðningi við verkefni sem skipta fólkið í kringum okkur raunverulegu máli og gefur okkur svigrúm til að gefa til baka til samfélagsins okkar. Þess vegna snýst aukin skattlagning heldur ekki bara um það hvað fyrirtæki „þola“. Þegar svigrúmið minnkar þarf einhvers staðar að draga saman. Það er kannski ekki ein stór og sýnileg ákvörðun heldur verða þetta fleiri lítil nei yfir árið, þar sem við getum ekki tekið þátt í stuðningi við verkefni, samstarfi af ýmsum toga eða fjárfestingu sem annars hefði orðið að veruleika. Þau nei sjást ekki jafn skýrt í Excel-skjalinu og auknar skatttekjur ríkisins, en samfélagið finnur fyrir þeim. Og einmitt þetta svigrúm skiptir máli þegar við horfum til þess sem við segjumst vilja byggja upp til framtíðar. Hér á Norðurlandi tölum við mikið um heilsársferðamennsku, heilsársstörf og að dreifa ferðamönnum betur um landið. Stóra verkefnið okkar er hins vegar ekki júlí. Það er nóvember, desember, janúar og febrúar. Veturinn byggist ekki upp af sjálfu sér; það þarf að fjárfesta í honum, markaðssetja svæðið og gefa fólki ástæðu til að koma. Á sama tíma sækja Noregur og Finnland hratt fram í vetrarferðamennsku. Ef Ísland verður of dýrt hættir ferðamaðurinn ekki að ferðast, hann velur bara eitthvað annað. Og þá eru áhrifin aftur ekki bundin við eitt ferðaþjónustufyrirtæki. Færri gestir þýða minni viðskipti víðar, minna svigrúm til uppbyggingar og færri tækifæri til að skapa þau heilsársstörf sem við viljum hafa hér. Ferðaþjónustan vinnur líka langt fram í tímann. Verðskrár fyrirtækja innan ferðaþjónustu fyrir 2027 hafa þegar verið gefnar út og samningar og sala eru löngu hafin.Árið 2027 byrjar því ekki hjá okkur 1. janúar. Það er þegar byrjað. Þegar forsendum er breytt eftir á lendir kostnaðurinn einhvers staðar! Í verði, framlegð eða svigrúmi til áframhaldandi uppbyggingar. Og þegar kostnaðurinn endar í verði kemur í ljós önnur hlið á þessari umræðu sem mér finnst þurfa að skoða: hver borgar það verð? Þegar talað er um að „ferðaþjónustan“ geti tekið á sig meiri skattlagningu verður ferðamaðurinn stundum að einhverri ópersónulegri stærð. Einhverjum sem kemur með flugi, eyðir peningum og fer aftur heim. Það er ekki raunin hjá okkur. Rúmlega helmingur gesta Skógarbaðanna er Íslendingar. Hingað koma fjölskyldur að gera sér dagamun, vinir að hittast, pör að eiga stund saman og afi og amma með barnabörnin.Einhverjir segja að heimsóknir í baðlón séu munaður. Það má vel vera. En það hlýtur líka að mega leyfa sér munað af og til án þess að hann verði sífellt óaðgengilegri. Heitt vatn, gufa, kalt vatn, slökun og samvera eru þar að auki meira en vara sem við seljum ferðamönnum. Þetta er hluti af íslenskri baðmenningu, vellíðan og samveru og við viljum vera aðgengileg fyrir alla. Að lokum vil ég nefna að auðvitað á ferðaþjónustan að leggja sitt af mörkum og greiða sinn skerf, sem hún gerir nú þegar. En hærra skatthlutfall skilar ekki sjálfkrafa meiri tekjum ef samkeppnishæfni minnkar, eftirspurn dregst saman og svigrúm fyrirtækja til vaxtar verður minna. Við megum því ekki verða svo upptekin af því hversu stóra sneið hægt er að taka í dag að við gleymum því sem skiptir meira máli til lengri tíma: að stækka kökuna, svo það verði meira til skiptanna fyrir okkur öll. Höfundur er sölu- og markaðsstjóri Skógarbaðanna. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sundlaugar og baðlón Mest lesið Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Sjá meira
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun