Uppgjörið: Fylkir - HK 2-2 | Þrjú rauð spjöld og Fylkir í úrslit Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar 13. september 2026 18:46 Fylkir vann fyrri undanúrslitaleikinn með eins marks sigri. Guðmundur/Vísir Fylkir og HK mættust í seinni leik liðanna í undanúrslitaviðureign í umspilinu um sæti í Bestu deild karla. Fylkir unnu einvígið 5-4 í æsispennandi leik í Árbænum þar sem þrjú rauð spjöld fóru á loft. Leikurinn hófst af krafti þegar Dominik Radic átti skot að marki Fylkismanna en Ólafur Kristófer Helgason gerði þá vel í markinu og varði boltann. Fylkir voru töluvert meira ógnandi en komust ekki í nein hættuleg færi. Theodór Ingi Óskarsson braut ísinn á 38. mínútu með alveg hreint ótrúlegu marki. Theodór átti þá skot að markinu sem var varið. Magnús Daði Ottesen náði frákastinu en skallaði boltann í slána. Theodór náði þá boltanum aftur og kom honum í netið. Fylkismenn leiddu einvígið í hálfleik 4-2. Birgir Steinn Styrmisson jafnaði metin á 55. mínútu með frábæru skallamarki eftir aukaspyrnu. Gestirnir héldu þá áfram að ógna og sköpuðu nokkur hættuleg færi. Dominik Radic kom HK yfir með skalla eftir hornspyrnu og jafnaði einvígið, 4-4 Mörkin urðu ekki fleiri í venjulegum leiktíma og þurfti því að grípa til framlengingar. Hart barist í framlenginunni Guðmundur Tyrfingsson jafnaði metin í leiknum og kom Fylki aftur yfir í einvíginu í uppbótartíma í fyrri hálfleik framlengingarinnar, 2-2. Dominik Radic fékk að líta rauða spjaldið fyrir brot á Aroni Snæ Guðbjörnssyni í kjölfar marksins. Bæði lið börðust alveg til lok leiks. Það var gríðarlegur hiti í leikmönnum og var dómarinn ekki að spara spjöldin. Aron Snær fékk seinna gula spjaldið sitt í uppbótartíma í seinni hálfleik framlengingarinnar. Aron Kristófer Lárusson fékk þá einnig að líta sitt seinna gula spjald skömmu seinna. Fylkismenn unnu þá einvígið 5-4 og mæta Þrótti í úrslitunum um sæti í Bestu deild karla á Laugardalsvelli. Atvik leiksins Þau eru mörg en það sem vakti mikla athygli var annars vegar rauða spjaldið sem Dominik fékk. Gunnar Freyr reif spjaldið í raun upp eftir að Fylkir hafði skorað og Dominik stóð þá á miðjunni tilbúinn að hefja leikinn á ný. Það var undarlegt og enginn vissi einhvernveginn hvað hafði gerst. Hins vegar er það svo dómaraskiptingarnar sem voru tvær. Það var þá töf á leiknum í tvö skipti þegar skipt var um línudómara. Það raskaði leiknum töluvert. Stjörnur og skúrkar Guðmundur Tyrfingsson og Theódór Ingi Óskarsson með mörkin fyrir Fylki. Birgir Steinn Styrmisson og Dominik Radic með mörkin tvö fyrir HK. Stemning og umgjörð Frábær mæting í Árbæinn. Hér var sungið og trallað allan leikinn. Dómarar Gunnar Freyr Róbertsson var á flautunni hér í kvöld, honum til aðstoðar voru þeir Bryngeir Valdimarsson og Mikael Ívan Axelsson. Erfitt að tala um dómaraskandal en HK taldi sig eiga að fá víti þegar Jóhann féll inni í teig heimamanna. Það var svo töf á leiknum þegar það þurfti tvisvar að skipta um línudómara. Ég trúi því að það hafði einhver áhrif á leikinn. Íslenski boltinn Lengjudeild karla Fylkir HK