Fékk drauminn uppfylltan eftir MND greiningu Valur Páll Eiríksson skrifar 11. september 2026 07:02 Arrow leiðir lið sitt til leiks í hundraðasta og síðasta leik sínum. Darrian Traynor/Getty Images Rúgbýkappinn Jai Arrow átti erfitt með að halda aftur af tárunum þegar hann fékk að leika sinn hundraðasta leik fyrir félag sitt í Ástralíu eftir að hafa greinst með MND. Sérstaka undanþágu þurfti til og það var falleg stund þegar hann gekk til vallar.
Arrow er 31 árs gamall Ástrali sem hefur leikið sem atvinnumaður í heimalandinu frá árinu 2016. Fyrst með Brisbane Broncos, svo Gold Coast Titans og loks með South Sydney. Hann hafði leikið 98 leiki fyrir Sydney-liðið frá árinu 2021 þegar hann greindist með hreyfitaugungahrörnun, einnig þekkt sem MND (e. motor neuron disease), ALS eða Lou Gehrig-sjúkdómurinn. Um er að ræða taugahrörnunarsjúkdóm sem einkennist af minnkandi styrk vöðva og rýrnun þeirra. Sjúkdómurinn er ólæknandi. Forráðamenn South Sydney hafa stutt við bakið á Arrow frá greiningunni og hjálpuðu honum þá að uppfylla draum sinn um að ná 100 leikjum fyrir félagið. Til þurfti sérstaka undanþágu frá ástralska rúgbýsambandinu en Arrow fékk að spila fyrstu sekúndur síðustu tveggja leikja tímabilsins og ná þannig 100 leikjum. This appearance meant more than most 🥹❤️Australian rugby league player Jai Arrow had retired after being diagnosed with motor neurone disease, just two games short of 100 appearances for his club, South Sydney Rabbitohs.His club secured special approval for him to start… pic.twitter.com/y4GogzVGq8— Thomas Hal Robson-Kanu (@RobsonKanu) September 8, 2026 Myndskeið af því þegar Arrow leiddi lið sitt til vallar í hundraðasta leiknum má sjá í spilaranum. Stuðningsmenn liðsins sendu honum hlýjar kveðjur úr stúkunni, margir hverjir höfðu málað skiltu honum til stuðnings og þá söng skarinn You'll Never Walk Alone hástöfum. Úr varð tilfinningarík stund fyrir Arrow sem sjá má að ofan.
Rugby Ástralía Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti „Guð morning!“ Enski boltinn Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Fótbolti Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Fleiri fréttir Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Sætir gagnrýni fyrir ummæli helgarinnar Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona Kimi vann í Texas en þarf að bíða í viku til að verða heimsmeistari „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Katla tryggði Fiorentina sigur Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Sjá meira