Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Kristján Már Unnarsson skrifar 10. september 2026 15:05 Formenn ríkisstjórnarflokkanna þriggja móta stjórnarstefnuna, ráðherrarnir Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar. Vísir/viktor Ráðamenn Vegagerðarinnar og Betri samgangna lesa stórfelldan niðurskurð til framkvæmda í vegagerð út úr nýbirtu fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar, niðurskurð upp á samtals 4,4 milljarða króna. Hjá Vegagerðinni er boðaður 2,4 milljarða króna niðurskurður. Hjá Betri samgöngum, fyrirtæki ríkisins og sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, er boðaður tveggja milljarða króna niðurskurður, samkvæmt upplýsingum frá fulltrúum þeirra.
Að sögn Guðmundar Vals Guðmundssonar, framkvæmdastjóra þróunarsviðs Vegagerðarinnar, var í fjármálaáætlun og samgönguáætlun gert ráð fyrir 34,8 milljörðum króna til nýframkvæmda og viðhalds á árinu 2027. Núna sé í fjárlagafrumvarpinu gert ráð fyrir 32,4 milljörðum króna á næsta ári, um 2,4 milljörðum króna minna. Guðmundur Valur Guðmundsson, framkvæmdastjóri þróunarsviðs Vegagerðarinnar.Einar Árnason Guðmundur treystir sé ekki til að nefna hvaða verkefni gætu verið skorin niður. Það eigi eftir að skoða. Hann kveðst þó vonast til að þessi niðurskurður verði ekki niðurstaðan. „Framlag ríkisins til Betri samgangna er lækkað um tvo milljarða tímabundið árið 2027, samkvæmt frumvarpinu,“ segir Þorsteinn R. Hermannsson, framkvæmdastjóri Betri samgangna. Þorsteinn Hermannsson, framkvæmdastjóri Betri samgangna.Bylgjan „Það gæti tafið upphaf hluta þeirra framkvæmda sem áætlað var að hefja á næsta ári. Við erum að skoða vandlega hvaða áhrif þetta hefur og munum uppfæra áætlanir okkar næstu vikur,“ segir Þorsteinn. Hann segir stærstu framkvæmdir, sem áætlað var að hefja á árinu 2027, vera Sæbrautarstokk og fleiri leggi í fyrstu lotu Borgarlínu. Fyrirhugaður Sæbrautarstokkur. Líklegt má telja að honum seinki, gangi niðurskurðaráformin eftir.Vegagerðin/Betri samgöngur Stærstu framkvæmdir hjá Vegagerðinni árið 2027, samkvæmt samgönguáætlun, og eftir er að bjóða út og semja um, eru breikkun Vesturlandsvegar á Kjalarnesi, lokaáfangi í Gufudalssveit, Bíldudalsvegur, brúarsmíði yfir Skjálfandafljót, færsla hringvegarins í Reyðarfjarðarbotni, byrjunarframkvæmdir á Axarvegi og breikkun Suðurlandsvegar í útjaðri í Reykjavíkur, milli Gunnarshólma og Hólmsár. Frá Vesturlandsvegi um Kjalarnes. Búið er að bjóða út breikkun kaflans milli Grundarhverfis og Hvalfjarðarganga og fyrirhugað að tilboð verði opnuð í næstu viku, þann 15. september Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra segir hærri fjárhæðir ætlaðar til vegakerfisins og vetrarþjónustu í samgönguáætlun núverandi ríkisstjórnar en í tillögu fyrri ríkisstjórnar. Núverandi ríkisstjórn stefnir jafnframt að því að hefja framkvæmdir við Fljótagöng árið 2027 og undirbúa fleiri jarðgöng. Viðtal við Eyjólf má lesa hér. Fréttin var uppfærð með viðbrögðum innviðaráðherra og tilvísun í viðtal við ráðherra.
Fjárlagafrumvarp 2027 Vegagerð Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Samgöngumál Samgönguáætlun Borgarlína Veggjöld Kílómetragjald Skattar, tollar og gjöld Tengdar fréttir „Við erum að laga Ísland“ Í stefnuræðu sinni hampaði forsætisráðherra því að verðhækkanir á húsnæðismarkaði hefðu staðnað og sagði ríkisstjórnina ætla að setja málefni barna í forgang í vetur. Ríkisstjórnin sé að „laga Ísland.“ 9. september 2026 20:01 Rukka meira fyrir aksturinn og sérstaklega fyrir veginn Ríkisstjórnin boðar tæplega 16 prósenta hækkun kílómetragjalds í fjárlagafrumvarpi ársins 2027, samhliða áformum um að fjármagna fleiri samgöngumannvirki með veggjöldum. Ökumenn greiða bæði gjöldin á gjaldskyldum leiðum. Stjórnvöld telja það heimilt þar sem kílómetragjaldið sé skattur en ekki sérstök greiðsla fyrir veginn sem ekið sé um. 8. september 2026 17:09 Kílómetragjaldið hækkar Lagt verður til að kílómetragjald á ökutæki auk bifreiðagjalda verði hækkuð samkvæmt nýju fjárlagafrumvarpi sem kynnt var í morgun. Kílómetragjald var kynnt til sögunnar í upphafi þessa árs og kom í staðinn fyrir skatta á eldsneyti. 7. september 2026 10:15 Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Fleiri fréttir Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Sjá meira
„Við erum að laga Ísland“ Í stefnuræðu sinni hampaði forsætisráðherra því að verðhækkanir á húsnæðismarkaði hefðu staðnað og sagði ríkisstjórnina ætla að setja málefni barna í forgang í vetur. Ríkisstjórnin sé að „laga Ísland.“ 9. september 2026 20:01
Rukka meira fyrir aksturinn og sérstaklega fyrir veginn Ríkisstjórnin boðar tæplega 16 prósenta hækkun kílómetragjalds í fjárlagafrumvarpi ársins 2027, samhliða áformum um að fjármagna fleiri samgöngumannvirki með veggjöldum. Ökumenn greiða bæði gjöldin á gjaldskyldum leiðum. Stjórnvöld telja það heimilt þar sem kílómetragjaldið sé skattur en ekki sérstök greiðsla fyrir veginn sem ekið sé um. 8. september 2026 17:09
Kílómetragjaldið hækkar Lagt verður til að kílómetragjald á ökutæki auk bifreiðagjalda verði hækkuð samkvæmt nýju fjárlagafrumvarpi sem kynnt var í morgun. Kílómetragjald var kynnt til sögunnar í upphafi þessa árs og kom í staðinn fyrir skatta á eldsneyti. 7. september 2026 10:15