Hallalaus fjárlög – en á kostnað hverra? Rósa Björk Brynjólfsdóttir skrifar 10. september 2026 10:45 Þráhyggjustef ríkisstjórnar Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Flokk fólksins um hallalaus fjárlög raungerðist í byrjun vikunnar. Þá héldu ríkisstjórnarflokkarnir fádæma kynningu á fjárlagafrumvarpi sem lagt verður á haustþingi. Tússpenni var óspart notaður á kynningunni til að teikna eitt stórt núll. En hvað liggur á bakvið yfirlýsingar um hallaus fjárlög? Hver eru pólitísku skilaboðin? Þau eru skýr; með fjárlagafrumvarpinu er nú kýrskýrst að nú verði útgjaldarammi Ríkissjóðs þrengdur og sett verði mjög stíf markmið um afkomu hins opinbera. Allt á sama tíma og samfélagslegar þarfir aukast, samfélagslegum verkefnum fjölgar og þau þyngjast í óhagsstæðu efnahagsumhverfi með þrálátri verðbólgu og atvinnuleysi. Að sjálfsögðu er það ekki markmið VG að reka eigi Ríkissjóð með halla en hallalaus fjárlög er ekki góður árangur ef leiðin þangað er sú að láta almenning bera enn meiri byrðar og veikja grunnkerfin okkar allra sem eiga að tryggja okkur öryggi, jöfnuð og lífsgæði. Hvar erum við líka sem samfélag þegar við gerum hallalausan ríkissjóð að æðsta markmiði samfélagsins, en ekki markmiðið um að efla og styrkja enn meir grunnþjónustuna við fólkið í landinu hvar þörfin fer vaxandi? Og grunnkerfin okkar allra þurfa stöðugt meiri styrkingu og stuðning? Minni útgjöld til fjölskyldu- og velferðarmála, vinnumarkaðs- og húsnæðismála Hallalaus fjárlög verða ekki til án fórnarkostnaðar. Til að ná hallalausum fjárlögum er gert ráð fyrir að útgjaldarammi fjölskyldumála lækki árið 2027. Sama gildir um húsnæðis- og skipulagsmál og málaflokk vinnumarkaðar og atvinnuleysis. Forgangsröðunin þarna er kolröng og ekki í neinu samræmi við þau fyrirheit stjórnvalda um að verja tiltekna hópa samfélagsins. Þörfin fyrir þá vernd hefur í raun aukist enn meir en áður í ljósi þess að vextir og verðbólga hafa verið hærri og varað mun lengur en áður var gert ráð fyrir. Þegar kemur að húsnæðismálunum þá er það verulegt áhyggjuefni að framlög til stofnframlaga til almennra íbúða eru lækkuð um 3 ma.kr. Þá ákvörðun þarf ríkisstjórnin að útskýra betur og ítarlegar en að ástæðan sé skortur á eftirspurn. Barna og húsnæðisbætur rýrna að verðgildi og vaxtabótakerfið endanlega lagt af. Þetta gerist á sama tíma og skilyrði um verðtryggð lán á að herða, sem mun auka greiðslubyrði og þyngja enn frekar stöðu ungs fólks og tekjulægri hópa. Þá er vert að vekja athygli á því að tekjuskattur einstaklinga er í reynd hækkaður um 3 mia. með því að uppfæra persónuafslátt og þrepin minni en verið hefur. Allt þetta verður til þess að þrengja fjárhagsstöðu einstaklinga og gera innkomu fólk inn á húsnæðismarkaðinn erfiðari. Engar sérstækar aðgerðir á húsnæðismarkaði fyrir viðkvæmustu hópana eru boðaðar á móti. Útgjöld til heilbrigðismála hækka að nafnvirði, en hækka þau útgjöld nægjanlega mikið þegar við stöndum frammi fyrir aukinni þjónustuþörf, stöðugri öldrun þjóðarinnar, mönnunarvanda og uppsöfnuðum verkefnum sem þola enga bið? Duga fjármunirnir nægjanlega til að tryggja aðgengi að heilbrigðisþjónustu óháð efnahag? Og hvað þýðir það að ætla að “hlífa” framlínustörfum í heilbrigðiskerfinu ? Við þurfum að spyrja okkur hver áhrif þessa alls verða á viðkvæmustu hópa samfélagsins sem eiga nú þegar erfitt með að ná endum saman. Sá hópur er ansi fjölmennur en kannanir Vörðu hafa sýnt að 3 af hverjum 10 í hópi vinnandi fólks eiga mjög erfitt með að láta launin duga fyrir útgjöldum í hverjum mánuði. Þessa stöðu vinnandi fólks þarf að laga. Græn umbylting sést ekki í fjárlagafrumvarpi Í fjárlagafrumvarpinu lækka framlög til umhverfis – og loftslagsmála samkvæmt útgjaldarammanum. Það er gert á sama tíma og loftslagsbreytingar, náttúruvá og hnignun líffræðilegrar fjölbreytni eru meðal stærstu áskorana sem við stöndum frammi fyrir. Útgjaldarammi umhverfismála er um 38,8 milljarðar króna árið 2027. Er þessi upphæð nógu há miðað við það risavaxna verkefni sem við stöndum frammi fyrir? Náttúruvernd, loftslagsaðgerðir, landgræðsla, mengunarvarnir og viðbrögð við náttúruvá eru ekki gæluverkefni. Þetta eru fjárfestingar í nútíð og framtíðinni en líka samfélagsleg öryggismál. Umhverfismálin eru nefnilega lífsspursmál fyrir okkur Íslendinga eins og fyrir aðra. Það er nefnilega ekki nóg að tala um græna umbreytingu. Hún þarf að sjást bersýnilega í fjárlagafrumvarpi. Hækkun til öryggis – og varnarmála kallar á skýra almenna umræðu Skoðum líka aðeins öryggis – og varnarmálin í fjárlögunum. Framlög til öryggis- og varnarmála hafa aukist verulega á síðustu árum eða úr 6,6 ma.kr árið 2024 í 10,8 mia kr. 2026. Þessi stífa og markvissa hækkun til öryggis – og varnarmála endurspeglar auðvitað ólguna og brothætta stöðu á alþjóðavettvangi, en kallar samt á skýra almenna umræðu um forgangsröðun þegar kemur að öryggismálum þjóðarinnar. Hvers konar öryggi viljum við byggja upp á Íslandi? Hvernig tryggjum við að aukin útgjöld til varnarmála komi ekki niður á félagslegu öryggi þjóðarinnar? Öryggi er líka heilbrigðiskerfi sem virkar, að fólk hafi greiðan aðgang að húsnæði en lendi ekki á hrakhólum, öryggi er að tryggja öflugar almannavarnir, flutningskerfi raforku sem virka, náttúruvernd og vernd sjávar til að ekki sé gengið á náttúruauðlindir okkar. Við þurfum netöryggi og fjárfesta í lýðræðislegri og heilbrigðri samfélagsumræðu sem klýfur okkur ekki sem samfélag eða elur á fordómum sem sundra. En ekki síst, þurfum við samfélag þar sem fjárhagslegur og félagslegur ójöfnuður grefur ekki undan samstöðu og samtakamætti þjóðar. Við þurfum græna umbyltingu og vinna gegn ójöfnuði Fjárlög hverrar ríkisstjórnar eru pólitísk. Það er nefnilega hægt að ná jafnvægi í ríkissrekstri með mismunandi leiðum, eftir mismundi pólitískum áherslum. Ábyrg ríkisstjórn á ekki að kynna hallalaus fjárlög og krossa fingur og vona að markaðurinn leysi vandann í framhaldinu. Ríkisstjórn á að boða ábyrga hagstjórn sem hún getur staðið við og passer upp á alla þjóðfélagshópa. Ekki boða ríkisreikning sem lítur út fyrir að vera í jafnvægi en í raun býr til ójafnvægi og eykur ójöfnuð í samfélaginu. Það eru nefnilega til aðrar leiðir í hagstjórninni sem gera samfélögin jafnari og þar með sterkari. Með alvöru grænni umbyltingu, innleiðingu réttlátara skattkerfis og með því að verja viðkvæmustu hópanna og vinna markvisst gegn ójöfnuði. Það eiga að vera æðstu markmið okkar frekar en teikna núll á blað. Höfundur er formaður Vinstri grænna. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Rósa Björk Brynjólfsdóttir Fjárlagafrumvarp 2027 Mest lesið Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Sjá meira
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun