Fullkomin skotnýting Bjarka Más í spennutrylli Aron Guðmundsson skrifar 9. september 2026 18:28 Bjarki Már í leik með PSG Mynd: PSG Bjarki Már Elísson skoraði fjögur mörk úr fjórum skotum þegar að lið hans PSG gerði jafntefli við sterkt lið Álaborgar í fyrstu umferð Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Spennutryllir sem boðið var upp á þar, lokatölur 33-33.
Leikurinn fór fram á Sparekassen leikvanginum í Álaborg og það voru gestirnir frá Frakklandi sem voru betri aðilinn til að byrja með og þegar að fyrri hálfleikur rann sitt skeið leiddu þeir með tveimur mörkum, 18-16. Dönsku meistararnir eru hins vegar með gífuleg gæði innan sinna raða, fóru alla leið í úrslitahelgi Meistaradeildarinnar á síðasta tímabili, og sneru leiknum sér í vil í seinni hálfleik. Mikil spenna var ríkjandi síðustu mínútur leiksins og munaði lengi vel bara einu marki á milli liðanna. Þegar að aðeins nokkrar sekúndur eftir lifðu leiks fékk PSG vítakast. Spánverjinn Ferran Solé fór á vítalínuna og skoraði undir mikilli pressu, jafnaði leikinn 33-33 og tryggði PSG stig á útivelli. Bjarki Már átti fínan leik og skoraði fjögur mörk í fjórum skotum. Að auki lagði hann upp eitt mark. Segja má að téður Ferran Solé hafi stolið senunni í leik kvöldsins með tíu mörk. Hjá Álaborg var það danski landsliðsmaðurinn Mads Hoxer sem var atkvæðamestur með sjö mörk og sex stoðsendingar. Á sama tíma í kvöld laut Porto í lægra haldi gegn ungverska liðinu Vezprem, lokatölur 36-28 öruggur sigur Vezprem. Íslenski landsliðsmaðurinn Þorsteinn Leó Gunnarsson átti eina stoðsendingu í leiknum en tókst ekki að koma boltanum í netið sjálfur.
Meistaradeild Evrópu í handbolta karla Landslið karla í handbolta Handbolti Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn Framlengir í Vesturbænum Íslenski boltinn „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti Fleiri fréttir Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Sjá meira