Virðismiðuð velferðarþjónusta Finnur Pálmi Magnússon skrifar 9. september 2026 09:03 Fyrir tæpum tólf hundruð árum sigldu nokkur skip norður í haf með óljósa hugmynd um land og ómælt traust á að allt myndi reddast. Við erum enn þessi þjóð. Við siglum bjartsýn inn í þokuna og erum prýðileg í að bregðast við áföllum þegar þau skella á. En á meðan gera sumar nágrannaþjóðir okkar áætlanir til áratuga og sigla þangað sem gögnin benda. Í Bandaríkjunum hefur rutt sér til rúms fyrirkomulag sem kallast value-based care, sem mætti þýða sem virðisaukandi eða virðismiðaða heilbrigðisþjónustu. Hugmyndin er einföld: í stað þess að greiða fyrir hverja heimsókn og hverja aðgerð er greitt fyrir árangurinn, heilsu fólksins. Nærri helmingur allra greiðslna í bandaríska heilbrigðiskerfinu er nú tengdur slíkum líkönum með einum eða öðrum hætti. CMS, sem er nokkurs konar Tryggingastofnun og Sjúkratryggingar Bandaríkjanna í einni stofnun, niðurgreiðir í þessum anda hluti sem hljóma framandi hér: þjálfun aðstandenda, málastjóra sem halda utan um heilsu aldraðra, greiðslur til fjölskyldna sem sinna umönnun heima og mælitæki sem fylgjast með lífsmörkum í stofunni. Öldruðum stendur til boða árleg heilsufarsskoðun, þeim að kostnaðarlausu, þar sem blóðþrýstingur er mældur og skimanir næstu ára skipulagðar. Og um helmingur þeirra sem kveðja innan kerfisins fær líknar- og lífslokameðferð, oftast heima heima, í faðmi fjölskyldunnar. Á Íslandi vitum við ekki fjölda þeirra sem fá heimaþjónustu. Nýjustu tölur Hagstofunnar eru frá árinu 2022 og síðan hefur lítið verið birt. Það er eins og skráningin hafi farið á eftirlaun með starfsmanninum sem fyllti út Excel-skjalið. Fyrir tveimur árum var meirihluti heimaþjónustu á landinu enn skráður á útprentuð Excel-blöð, það hef ég séð með eigin augum. Sem betur fer horfir til betri tíma: Félags- og húsnæðismálaráðuneytið í samstarfi við Samband sveitarfélaga hefur nú gefið út samræmda grunnskráningu í félagsþjónustu. Það er frábært skref í rétta átt.En grunnskráningin ein dugar skammt á meðan aðeins um helmingur landsmanna hefur fastan heimilislækni og tíminn sem læknarnir hafa fer að mestu í tímabókanir dagsins, ekki eftirfylgni með heilsu milli heimsókna. Á sama tíma nálgast tímamót sem við verðum að fara að horfast í augu við. Eftir rúman áratug, árið 2038, verða landsmenn sextíu ára og eldri í fyrsta sinn fleiri en þau sem eru tvítug og yngri. Fyrstu merki hrörnunar sjást ekki á bráðamóttöku, heldur við eldhúsborðið. Göngulag byrjar að hægjast um tólf árum áður en vitræn skerðing greinist. Orðin fara að stríða fólki löngu fyrir greiningu og óútskýrt þyngdartap kemur mörgum árum á undan heilabilun. Rannsóknir frá Bretlandi og bandarísku Alzheimer-samtökin benda á að fólkið sem kemur inn á heimilið, hvort sem það er starfsfólk heimaþjónustu og heimahjúkrunar eða fjölskyldan sjálf, er í bestu stöðu til að taka eftir þessum vísbendingum. Og það er til mikils að vinna ef gripið er inn í snemma. Nærri helming heilabilunartilfella má tengja við áhættuþætti sem hægt er að hafa áhrif á, með hreyfingu, virkni og þátttöku í samfélaginu, í bland við vel stýrða lyfjameðferð. Einn stærsti áhættuþátturinn er einsemd. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin tengir hana við hundruð þúsunda dauðsfalla á ári og skortur á félagslegum tengslum er talinn álíka skaðlegur og að reykja fimmtán sígarettur á dag. Hér á landi hverfur eldra fólk gjarnan úr félagslífinu daginn sem það missir bílprófið. Rannsóknir sýna að við það tvöfaldast líkur á þunglyndi og fimmfaldast líkur á flutningi á stofnun. Aðrir hafa reiknað þetta dæmi og brugðist við. Spænska ríkið sendir tæplega 900 þúsund eftirlaunaþega í niðurgreidd frí á hverjum vetri, meðal annars til Tenerife, og fær samkvæmt eigin úttektum meira til baka en það leggur út, í störfum, sköttum og betri heilsu. Í dag notum við bráðamóttökuna sem forgangsröðunarkerfi fyrir fólk sem þarfnast langtímaúrræða. Manneskja þarf helst að brotna til að fá þjónustu umfram það sem aðstandendur ráða við. Það er bæði dýr og grimm leið. Um þriðjungur fólks yfir sjötugu tapar færni við sjúkrahúslegu, um 120 manns liggja nú á Landspítala og bíða eftir hjúkrunarrými og meðal biðtíminn er nær tvöfalt lengri en markmið stjórnvalda segja til um. Biðlistarnir byggja á færnimati sem er, að mínu mati, of sjaldan uppfært eftir að fólk kemst á biðlista. Fjölskyldur sem þekkja inn á kerfið neita jafnvel að taka við ástvini af spítalanum því þær vita að það flýtir innlögn. Ef fólk er gripið fyrr og þjónustan færð heim benda rannsóknir hins vegar til að líkur á stofnanavist geti helmingast. Silfur viðvörunin (e. Silver tsunami) er löngu farin í loftið . Svarið við henni er þjóðarátak í aukinni rauntímaskráningu heilsufarsupplýsinga jafnt í félagslegri heimaþjónustu og heimahjúkrun. Notum svo gögnin til að grípa snemma inn í með endurhæfingu og meðferð. Þannig byggjum við upp samfélag þar sem eldra fólk lifir sínu besta lífi heima, lengur. Þannig drögum við úr álagi á heilbrigðiskerfið, fjárfestum í heilsu frekar en að bregðast við heilsufarsbresti og mætum áskorunum næsta áratugar.Formæður okkar og forfeður sigldu inn í þokuna af því að þau áttu hvorki kort né áttavita. Grunnskráningin sem nú er unnið að er kortið. Ef við bætum við aukinni skráningu og spurningalistum, eignumst við áttavitann líka og getum í fyrsta sinn siglt fram úr öðrum þjóðum í stað þess að elta þær. Þokan er ekki að fara neitt. En það er óþarfi að sigla blint inn í hana lengur. Höfundur er framkvæmdastjóri og stofnandi Dala.care, sem þróar hugbúnað fyrir heimaþjónustu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Sjá meira
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun