Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar 6. september 2026 07:00 Fólk þarf að líta á fréttir sem nauðsynjavöru og venjast því að greiða fyrir þær. Þetta kom fram hjá Loga Einarssyni ráðherra í Kastljósi á dögunum þegar rætt var um þá ákvörðun Sýnar að hætta kvöldfréttum í sjónvarpi. Ég ímynda mér að flestir geti heilshugar tekið undir fyrri hluta fullyrðingarinnar. Vandaðar og áreiðanlegar fréttir eru nauðsynjavara í lýðræðissamfélagi. Hitt er öllu snúnara: að stór hluti þjóðarinnar fáist til að kaupa aðgang að fréttaþjónustu. Það kallar á viðhorfsbreytingu sem satt best að segja er mjög ólíklegt að raungerist. Hvaða fréttir ættum við þá að kaupa? Á einstaklingur að vera áskrifandi að Morgunblaðinu, Heimildinni og Gímaldinu til þess að geta fylgst sæmilega með þjóðmálum? Og hvað með þann sem vill ekki eða hefur ekki efni á nokkrum fréttaáskriftum? Af hverju að greiða fyrir það sem þegar er ókeypis? Við höfum vanist því að fréttir séu aðgengilegar án sérstakrar greiðslu. Þær berast okkur úr öllum áttum allan sólarhringinn. Það er ákveðinn ómöguleiki fólginn í því að ætla að sannfæra stóran hluta almennings um að greiða sérstaklega fyrir eitthvað sem þegar fæst ókeypis. Og hver ætti eiginlega að standa fyrir þessari viðhorfsbreytingu? Eiga fjölmiðlarnir sjálfir að sannfæra almenning um að hann eigi að greiða þeim fyrir þjónustuna? Eða er þetta verkefni stjórnvalda? Ráðherrann nefndi sérstaklega miðlalæsi og ungt fólk. Það er eitt að kenna ungu fólki að meta upplýsingar, þekkja falsfréttir, temja sér gagnrýna hugsun og skilja mikilvægi faglegrar blaðamennsku. En væri það hins vegar ekki í hæsta máta sérkennilegt að hvetja unga fólkið til að kaupa áskrift að einkareknum fjölmiðlum? Línuleg dagskrá að verða hluti af fortíðinni Ákvörðun Sýnar boðar heldur ekki endalok sjónvarpsfrétta hjá Sýn. Líkast til er hún fremur til marks um að línuleg dagskrá sé smám saman að verða hluti af fortíðinni. Margir eru löngu hættir að bíða til klukkan hálfsjö eða sjö eftir fréttum dagsins. Fréttin getur birst á vefnum um leið og hún er tilbúin og áhorfandinn horft þegar honum hentar. En það breytir því þó ekki að einhver þarf að afla fréttarinnar, leita gagna, sannreyna upplýsingar, tala við fólk og spyrja spurninga. Og einhver þarf að greiða launin. Vægi opinberra styrkja eykst Það er alkunna að auglýsingatekjur íslenskra fjölmiðla hafa dregist saman og stór hluti auglýsingafjár leitar til erlendra tæknifyrirtækja. Áskriftartekjur geta hjálpað, en það er ósennilegt, líkast til draumsýn, að þær einar geti staðið undir öflugri og fjölbreyttri almennri fréttaþjónustu. Eftir standa í grófum dráttum þrjár tekjulindir: auglýsingar, afnotagjöld og almannafé. Þegar fyrstu tvær veikjast verður sú þriðja mikilvægari. Ríkið styrkir nú þegar einkarekna fjölmiðla. Í lögum um stuðninginn segir að markmiðið sé meðal annars að efla fréttaþjónustu og lýðræðislega umræðu. Þar segir jafnframt að almennur rekstrarstuðningur skuli veittur einkareknum fjölmiðlum sem „gegna lýðræðishlutverki“. Það er stórt orð, Hákot. Hvað merkir nákvæmlega að fjölmiðill gegni lýðræðishlutverki? Hver er mælistikan? Er það að flytja sannar og sannreyndar fréttir? Að greina á milli frétta, skoðana og kynningarefnis? Að gefa ólíkum sjónarmiðum rúm? Að veita valdhöfum aðhald? Að leiðrétta rangfærslur og gefa þeim sem sæta alvarlegri gagnrýni kost á að svara fyrir sig? Eða nægir einfaldlega að uppfylla formleg skilyrði um starfsemi, mannafla, útgáfu og fréttaöflun? Stóra spurningin um lýðræðishlutverk fjölmiðla Alþingi hefur ákveðið að verja almannafé til fjölmiðla meðal annars vegna lýðræðishlutverks þeirra. Skattgreiðandinn hlýtur þá að mega spyrja hvað felist í því og hver meti hvort ákvæðið sé uppfyllt. Hugsum okkur fjölmiðil með mjög eindregna pólitíska slagsíðu. Hann gagnrýnir ríkisstjórnina linnulaust, velur viðmælendur að mestu úr einni átt og dregur sjaldan dul á pólitískar skoðanir sínar. Á hann rétt á opinberum stuðningi? Svarið hlýtur að vera já, ef hann uppfyllir sömu skilyrði og aðrir. Ríkisstjórn getur ekki hafnað fjölmiðli vegna þess að ráðherrum mislíkar ritstjórnarstefnan. Hlutverk fjölmiðla er meðal annars að veita stjórnvöldum aðhald. Prófið á góðu styrkjakerfi er ekki hvort það styður fjölmiðla sem stjórnvöldum eða almenningi líkar við. Prófið snýst um hvort sömu leikreglur gilda um þá miðla sem eru umdeildir og mörgum finnst að almannafé sé illa varið með því að styrkja rekstur þeirra. En gerum dæmið erfiðara. Miðill uppfyllir öll formleg skilyrði en birtir kerfisbundið rangar og villandi upplýsingar, blandar fréttum og áróðri saman og leiðréttir sjaldan rangfærslur. Gegnir slíkur miðill „lýðræðishlutverki“? Ef svarið er nei þarf einhver að úrskurða það. Hversu einhliða má fjölmiðill vera? Hversu oft má honum skjátlast? Hvenær breytist skoðun í áróður? Hvenær verður léleg blaðamennska svo léleg að hún hættir að þjóna lýðræðinu? Og hver á að draga línuna? Bein og óbein afskipti Þarna leynist hætta sem verður þeim mun meiri sem fjölmiðlar verða háðari opinberum stuðningi. Ef stjórnvöld geta verðlaunað miðla sem þau telja ábyrga og hafnað þeim sem þau telja óábyrga er stutt í að þau hugtök fái pólitíska merkingu. Hættan felst ekki aðeins í beinum afskiptum. Áhrifin geta verið miklu lúmskari. Ritstjóri sem veit að verulegur hluti tekna miðilsins kemur úr ríkissjóði og áframhaldandi stuðningur kann að ráðast af huglægu mati þarf ekki að fá símtal frá ráðherra. Vitneskjan ein getur orðið til þess að öll ritstjórnin veit að það er ekki alltaf hægt að nota beittasta hnífinn. Þessi hætta fylgir auðvitað ekki aðeins opinberu fé. Hún hefur alltaf fylgt fjárhagslegu valdi yfir fjölmiðlum. Eigendur geta haft hagsmuna að gæta og stórir auglýsendur sömuleiðis. Fjölmiðlar hafa margsinnis staðið frammi fyrir slíkum hagsmunaárekstrum. Það reynir fyrst á sjálfstæði fjölmiðils þegar hann þarf að fjalla um hagsmuni þess sem borgar reikningana. Gildir einu hvort greiðandinn er ríkið, auðugur eigandi eða stór auglýsandi. Logi Einarsson hefur kórrétt fyrir sér um grundvallaratriðið. Fréttir eru nauðsynjavara fyrir lýðræðið. En af því leiðir ekki endilega að sérhver Íslendingur þurfi einfaldlega að venjast því að kaupa þær. Ef markaðurinn getur ekki lengur staðið undir nægilega öflugri fréttaþjónustu verður samfélagið að finna leið til að fjármagna hana. Opinber stuðningur getur verið hluti þeirrar lausnar og verður líklega sífellt mikilvægari. Hvaða mælistiku á að miða við? En þar liggur áhugaverð þversögn. Við viljum að ríkið styðji fjölmiðla vegna lýðræðishlutverks þeirra en við viljum ekki að ríkið fái um leið vald til að ákveða hvaða skoðanir, áherslur eða ritstjórnarstefna séu lýðræðinu þóknanlegar. Spurningin er því ekki aðeins hver borgar fyrir nauðsynjavöruna. Spurningin er ekki síður hver ákveður hvaða miðlar verðskulda að framleiða fréttir fyrir almannafé og hvaða mælistika er notuð við það mat. Höfundur er fyrrverandi frétta- og dagskrárgerðarmaður Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Gunnar Salvarsson Fjölmiðlar Mest lesið Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Freyja Þórisdóttir skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Sjá meira
Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun