Tryggðu sig í efstu deild Evrópumótsins með öruggum sigri Andri Broddason skrifar 4. september 2026 12:02 Íslenska liðið stóð sig vel og vann aðra deild Evrópumótsins í flokki fimmtíu ára og eldri. Liðið mun því vera í efstu deild á næsta móti. GSÍ Íslenska karlalandsliðið í flokki 50 ára og eldri gerði sér lítið fyrir og vann aðra deild Evrópumótsins í golfi. Með sigrinum mun íslenska liðið spila í efstu deild EM á næsta ári.
Mótið var haldið í Slóvakíu og var spilað á Sedin Golf Resort. Jón Snorri Halldórsson, Frans Páll Sigurðsson, Sigurbjörn Þorgeirsson og Siggeir Vilhjálmsson mynduðu lið Íslands á mótinu. Fjórir kylfingar léku 18 holur og giltu þrjú bestu skor dagsins. Íslenska liðið spilaði frábærlega alla þrjá dagana og var komið í fyrsta sæti strax eftir fyrsta daginn. Ísland átti bara eftir að bæta ofan á forystu sína og endaði á því að vinna með miklum yfirburðum. Heimamenn í Slóvakíu enduðu í öðru sæti en þeir voru 23 höggum frá íslenska liðinu. Íslenska liðið sem heild spilaði það vel að Ísland átti tvo af efstu þrem leikmönnum einstaklingskeppninnar. Sigurbjörn Þorgeirsson vann einstaklingskeppnina en hann spilaði hringina þrjá á 77, 70 og 73 höggum. Hann var fjórum höggum fyrir ofan annað sætið en Jón Snorri Halldórsson var í þriðja sæti einstaklingskeppninnar. Þetta var í fyrsta skipti sem önnur deild Evrópumótsins er haldin en það var gert vegna mikils áhuga Evrópulanda á keppninni. Ísland varð því fyrsti sigurvegari í sögu annarrar deildar Evrópumótsins.
Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Fleiri fréttir Rahm myndi sætta sig við sömu refsingar og Koepka fékk Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira