Stöndum saman um að treysta EES í sessi Ólafur Stephensen skrifar 3. september 2026 10:33 Nú þegar niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar um síðustu helgi liggur fyrir er ljóst að Ísland mun áfram byggja aðgang sinn að innri markaði Evrópusambandsins á samningnum um Evrópska efnahagssvæðið. Aðild að ESB verður ekki á dagskrá um fyrirsjáanlega framtíð. Það er fagnaðarefni að forystumenn allra stjórnmálaflokka á Alþingi hafa að undanförnu lýst eindregnum stuðningi við EES-samninginn og ítrekað mikilvægi hans. Þá þurfa þeir líka að sýna í verki að þeir séu reiðubúnir að gera það sem þarf til að treysta samninginn í sessi og tryggja að hann virki eins og hann á að gera. Lagfærum innleiðingu bókunar 35 Fyrsta verkefnið er að samþykkja frumvarp um lagfæringu á innleiðingu bókunar 35 við samninginn. Tveir utanríkisráðherrar í tveimur ríkisstjórnum hafa lagt málið fram, í grundvallaratriðum óbreytt, í þrígang án þess að Alþingi hafi afgreitt það. Félag atvinnurekenda og Íslensk-evrópska verslunarráðið hafa ítrekað lýst eindregnum stuðningi við frumvarpið og að það verði afgreitt með hraði, enda er hér um mikilvægt hagsmunamál atvinnulífsins að ræða. Í einföldu máli snýst bókun 35 um þetta: Alþingi hefur sett EES-reglu í íslenzk lög. Síðan kemur í ljós að önnur íslenzk lög segja annað. Hvor reglan á þá að gilda fyrir einstaklinginn eða fyrirtækið sem á rétt samkvæmt EES-reglunni? Svarið á að vera skýrt. Ef lagaákvæði innleiðir með réttum hætti skýra og óskilyrta skyldu samkvæmt EES-samningnum á það að ganga framar almennu lagaákvæði sem stangast á við það – nema síðarnefndu reglunni sé beinlínis ætlað að ganga gegn ákvæðum samningsins. Núverandi 3. gr. EES-laganna tryggir þetta ekki nægilega vel. Frumvarpið bætir úr þeim galla og tryggir að fólk og fyrirtæki njóti í reynd þeirra réttinda sem Ísland hefur samið um að þau eigi að hafa. Fæðingarorlofsmálið, sem Hæstiréttur dæmdi árið 2024, sýnir vandann vel. Þar gat kona ekki notið réttar sem leiddi af EES-reglum vegna þess að skýrt ákvæði í íslenzkum lögum sagði annað. Hæstiréttur staðfesti að núverandi 3. gr. EES-laganna væri aðeins regla um að skýra íslenzk lög til samræmis við EES-rétt, eftir því sem orðalag þeirra leyfði. Hún væri ekki sú forgangsregla sem bókun 35 gerir ráð fyrir. Þegar ekki er hægt að samræma lögin með túlkun getur réttur sem á að felast í EES-samningnum því farið forgörðum. Hvorki erlent vald né stjórnarskrárbrot Frumvarpið felur alls ekki í sér að allar reglur frá Brussel gangi sjálfkrafa framar íslenzkum lögum. Það á aðeins við þegar Alþingi hefur sjálft sett skýra og óskilyrta EES-reglu í íslenzk lög og annað lagaákvæði rekst á hana. Þá er í raun verið að velja á milli tveggja íslenzkra lagaákvæða og tryggja að það ákvæði sem á að efna skuldbindingu Íslands samkvæmt EES-samningnum haldi gildi sínu. Þess vegna er fráleitt að halda því fram að með frumvarpinu sé vegið að stjórnarskránni eða gengizt undir erlent vald. Í fullveldi ríkja felst réttur þeirra til að gera samninga. Ísland hefur samið um þátttöku í sameiginlegu og einsleitu efnahagssvæði og ber að standa við þann samning. Ísland getur sömuleiðis sagt EES-samningnum upp og losnað þannig undan skuldbindingunum. En ef við viljum njóta réttindanna sem samningurinn veitir verðum við líka að tryggja að reglur hans virki hér á landi. Óskyldum málum hrært saman Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hefur lengi gert athugasemdir við innleiðingu bókunar 35 og íslenzk stjórnvöld hafa árum saman lofað að bæta úr. Málið kemur deilum um umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu ekki við. Það hefði til dæmis verið jafnbrýnt að lagfæra innleiðinguna þótt niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar hefði orðið já. Slík niðurstaða hefði hvorki haft sjálfkrafa í för með sér ESB-aðild né breytt því að Ísland hefði áfram þurft að reiða sig á EES-samninginn árum saman. Það veldur því vonbrigðum þegar stjórnmálamenn sem þykjast bera hag atvinnulífsins fyrir brjósti hræra þessum óskyldu málum saman. Guðlaugur Þór Þórðarson, fyrrverandi utanríkisráðherra, sagði þannig í viðtali við Vísi í gær að „önnur mál“, þar á meðal lagfæring á innleiðingu bókunar 35, yrðu að bíða þar til aðildarumsókn Íslands hefði verið dregin til baka. Í Morgunblaðinu í dag er haft eftir Diljá Mist Einarsdóttur, nefndarmanni í utanríkismálanefnd, að þetta mál varðandi „frekari orðskýringar á EES-samningnum“ hafi mallað svo árum skipti og sé „ekkert brýnna í dag en í gær“. Að ætla að slá pólitískar keilur með þessum hætti er skaðlegt ábyrgðarleysi gagnvart fólki og fyrirtækjum sem eiga að geta treyst því að EES-samningurinn gildi hér eins og samið var um. Eitt er að hann hafi verið í gildi í rúm 30 ár, annað er að hann sé framkvæmdur eins og lagt var upp með í upphafi. Þessir tveir þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa ekki þá afsökun að þeir viti ekki betur. Stjórnmálamenn geta rifizt um stöðu aðildarumsóknarinnar eins og þá lystir, en þeir eiga ekki að nota það rifrildi til að veikja EES-samninginn. Nú þarf þvert á móti að koma honum á traustan grundvöll til frambúðar. Klárið málið Flokkarnir tveir á Alþingi sem sátu í síðustu ríkisstjórn, sem lagði málið fyrst fram, og flokkarnir í núverandi ríkisstjórn, sem hefur lagt það fram í tvígang, eiga að sýna þá ábyrgð að klára málið í sameiningu. Það er fullkominn óþarfi að bíða eftir að ESA dragi Ísland fyrir EFTA-dómstólinn og málið tapist þar. Allur dráttur á málinu um bókun 35 er skaðlegur. Höfundur er framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda og Íslensk-evrópska verslunarráðsins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ólafur Stephensen Mest lesið Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun Skoðun Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Freyja Þórisdóttir skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Sjá meira
Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun