Lok ríkisábyrgðar marka kaflaskil Rafnar Lárusson skrifar 3. september 2026 08:00 Merkum áfanga í sögu Landsvirkjunar var náð núna í júlímánuði, þegar félagið greiddi upp síðasta skuldabréfið með ríkisábyrgð. Skuldabréfið var gefið út árið 2006, skráð í kauphöllinni í Lúxemborg og tekið til að fjármagna framkvæmdir við Kárahnjúkavirkjun. Með uppgreiðslunni eru engin lán Landsvirkjunar lengur með ríkisábyrgð eða skráð í kauphöll. Það eru því tímamót í sögu fyrirtækis sem hefur frá stofnun árið 1965 verið samofið atvinnuuppbyggingu og efnahagsþróun Íslands. Frá þjóðarátaki til sjálfstæðrar fjármögnunar Á fyrstu áratugum Landsvirkjunar var uppbygging raforkukerfisins órjúfanlegur hluti af stærri þjóðhagslegri stefnu. Aðgangur að öruggri og hagkvæmri raforku skapaði forsendur fyrir nýjum iðnaði, aukinni verðmætasköpun og byggðaþróun. Ríkistengd lán og síðar ríkisábyrgðir voru í upphafi lykilverkfæri til að afla fjármagns til stórra innviðaverkefna sem hefðu annars verið erfið í framkvæmd fyrir ungt og fjárfrekt orkufyrirtæki í fámennu landi. Þessi fjármögnun studdi við þá atvinnuuppbyggingu sem mótaði íslenskt hagkerfi á síðari hluta tuttugustu aldar. Landsvirkjun byggði upp flutningskerfi og aflstöðvar í tengslum við uppbyggingu ál- og kísilvera, þar liggja áratugalöng, traust viðskiptasambönd. Þessar fjárfestingar hafa síðan nýst heimilum og almennum atvinnurekstri í ríkum mæli. Ávinningurinn í megavöttum er mikill, en ekki síðri í tækifærum; nýjum störfum, útflutningstekjum og auknum stöðugleika í samfélaginu. Kárahnjúkavirkjun og skuldsett tímabil Bygging Kárahnjúkavirkjunar var eitt umfangsmesta innviðaverkefni Íslandssögunnar, framkvæmd sem var fjármögnuð úr rekstri og með lánsfé. Landsvirkjun var í kjölfarið mjög skuldsett, um leið og alþjóðleg fjármálakrísa reið yfir árið 2008. Óróleiki var á fjármálamörkuðum og aðgengi að lánsfé erfitt, ekki síst fyrir skuldsetta aðila. Upp úr aldamótum má því segja að fyrsta rekstrarkafla Landsvirkjunar hafi lokið og næsta skeið tekið við. Áhersla var lögð á að skjóta sterkari stoðum undir félagið meðþví að styrkja fjárhagslegan grunn þess. Hætt var við arðgreiðslur fyrstu árin, endursamið við viðskiptavini og rekstur bættur. Árangurinn hefur ekki látið á sér standa. Á þessu tímabili höfum við greitt niður skuldir um hátt í tvo milljarða bandaríkjadala (um 220 milljarða kr. miðað við núverandi gengi), skilað ríkinu svipaðri upphæð í formi arðgreiðslna og skatta og byggt þrjár nýjar aflstöðvar; Búðarháls, Þeistareyki og Búrfell II, sem hafa komið með nýja orku inn í íslenskt efnahagslíf. Sjálfbær fjármögnun Hluti af þessari vinnu var að gera fjármögnun Landsvirkjunar sjálfbæra, þannig að lánveitendur og lánshæfismatsfyrirtæki myndu meta félagið að eigin verðleikum en ekki eigandans. Hafist var handa við að minnka beina ábyrgð íslenska ríkisins á skuldum félagsins, en sem dæmi má nefna að vaxtaberandi skuldir Landsvirkjunar í lok árs 2008, í alþjóðlegu fjármálakrísunni, voru alls tæpur 3,1 milljarður bandaríkjadala eða um 380 milljarðar króna m.v. gengi þess tíma. Af þessum lánum var greitt ábyrgðargjald til ríkisins. Nýr kafli í fjármögnun hófst árið 2013 þegar fyrsta lánið án ríkisábyrgðar var tekið og hefur svo verið um fjármögnun í kjölfarið. Smám saman hafa eldri lán komið á gjalddaga og nú það síðasta í júlí. Þar með lauk langri sögu ríkisábyrgða á lánum Landsvirkjunar, vonandi fyrir fullt og allt. Samkeppnishæfni til framtíðar Nú má segja að orkufyrirtæki þjóðarinnar standi enn á tímamótum. Við upphaf þessa þriðja skeiðs hefur fjárhagsleg staða Landsvirkjunar aldrei verið sterkari. Það er gríðarlega mikilvægt, því það fer ekki framhjá neinum sem horfir út fyrir landsteinana að alþjóðleg samkeppni fer óðum harðnandi. Orkuverð í Evrópu er að lækka, m.a. vegna uppbyggingar stórra sólarorkuvera, auk þess sem stjórnvöld í helstu samkeppnislöndum okkar niðurgreiða hvort tveggja endurnýjanlega orkuvinnslu og þann iðnað sem kaupir orkuna. Ísland getur ekki keppt á þeim grunni, hvorki í sólarorku né niðurgreiðslum. Forsenda nýrra verkefna Því er stundum haldið fram að eftirspurn eftir raforku á Íslandi sé ótakmörkuð. Það er ekki rétt, því það er sannarlega áskorun að selja orku í lokuðu raforkukerfi. Alþjóðleg samkeppni um stórnotendur er mjög hörð og til þess að geta tekið þátt í henni verðum við að geta boðið samkeppnishæft verð, án niðurgreiðslna. Fjárhagslegur styrkur og gott lánshæfismat eru því forsenda þess að hægt sé að ráðast í ný verkefni og auka vinnslu á endurnýjanlegri orku, s.s. vindorkuver í Vaðöldu, komandi vatnsaflsvirkjun í Hvammi og stækkanir við Þeistareyki og Sigöldu. Orkuvinnslu sem áfram mun styðja við atvinnuuppbyggingu og efnahagsþróun landsins. Sem betur fer eru ýmis ný og spennandi tækifæri í sjónmáli, s.s. í gagnaversiðnaði og landeldi. Þar er komin ný kynslóð viðskiptavina sem á vonandi eftir að vegna vel hér á landi. Arðgreiðslum hætt? Það er eðlilegt að fólk velti því fyrir sér hvort tímabil svona mikilla og fjárfrekra framkvæmda leiði til þess að gera verði hlé á arðgreiðslum til eigenda fyrirtækisins, íslensku þjóðarinnar. Það er ekki raunin. Í ár greiðir Landsvirkjun um 20 milljarða króna í arð, auk þess sem vert er að minna á að fyrirtækið greiðir 37,6% tekjuskatt á meðan önnur fyrirtæki greiða að jafnaði 20%. Framlag okkar til eigendanna verður áfram umtalsvert, samhliða uppbyggingu nýrra virkjana sem munu síðan skila þjóðinni verulegum tekjum næstu áratugina. Vinnsla endurnýjanlegrar orku á Íslandi skilar því ekki einungis þjóðarbúinu blómlegu efnahagslífi og atvinnutækifærum, heldur einnig áþreifanlegum arðgreiðslum. Megi svo lengi vera. Höfundur er framkvæmdastjóri fjármála og upplýsingatækni hjá Landsvirkjun. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun Skoðun Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Freyja Þórisdóttir skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Sjá meira
Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun