Afnemum verðtrygginguna - skref fyrir skref Lilja Björk Einarsdóttir skrifar 2. september 2026 12:31 Árið 2020 sáum við í Landsbankanum tækifæri til þess að bjóða viðskiptavinum hagkvæmari óverðtryggð lán með svipaðar mánaðarlegar greiðslur og verðtryggð lán. Við sáum fyrir okkur mánaðamót þar sem fólk greiðir afborgun og vexti af láninu og sér höfuðstól lánsins lækka. Við vildum gera þessa breytingu með viðskiptavinum og í þeirra þágu. Við hófum breytingar á lánafyrirkomulagi verðtryggðra íbúðalána árið 2018 og byrjuðum smátt, en árið 2020 tókum við stærra skref. Þá styttum við lánstíma verðtryggðra lána þannig að mánaðarlegar greiðslur af þeim urðu nokkurn veginn jafnar mánaðarlegum greiðslum af óverðtryggðu láni. Viðskiptavinir okkar kunnu að meta þennan valkost og nýttu sér hann. Stöðugleiki forsenda frekari árangurs Í kjölfarið eru nú aðeins um helmingur íbúðalána hjá Landsbankanum verðtryggð en til samanburðar er hlutfall verðtryggðra íbúðalána 65% á markaðnum í heild. Það munar því um 115 milljörðum þegar hlutfall verðtryggðra lána hjá Landsbankanum er borið saman við hlutfallið á markaðnum í heild en það samsvarar um 2.900 heimilum. Það skiptir máli að gera svona breytingar í hæfilegum skrefum, yfir langan tíma og nýta góðar markaðsaðstæður vel. Markmið bankans var að gefa fleiri viðskiptavinum tækifæri til að taka óverðtryggð íbúðalán en mikill áhugi hafði verið á því á meðal viðskiptavina. Framtíðarsýnin er íbúðalánamarkaður án verðtryggingar en til þess þarf líka að ná langtíma stöðugleika í íslensku hagkerfi og skapa forsendur fyrir lækkun vaxta. Þá þurfa lánveitendur einnig að taka ábyrgar og traustar ákvarðanir þannig að næsta kynslóð glími ekki við afleiðingar eins og við uppgjör Íbúðalánasjóðs, sem kostaði íslenska ríkið um 168 milljarða. Aukinn fyrirsjáanleiki allra hagur Nú eru um sex ár liðin frá því að við tókum fyrstu skrefin í afnámi verðtryggingar hjá Landsbankanum. Stýrivextir og verðbólga eru í dag mun hærri og greiðslubyrði heimilanna þyngri samhliða almennt hækkandi verðlagi. Við slíkar aðstæður breytist verkefnið oft úr því að sjá lánið lækka um hver mánaðamót yfir í það að ná endum saman. Við hjá Landsbankanum viljum geta mætt þeim áskorunum sem fjölskyldur standa frammi fyrir með fjölbreyttari lánum þar sem hægt er að hafa meiri fyrirsjáanleika. En til að geta boðið fólki upp á fjölbreyttari lán sem mæta mismunandi aðstæðum fólks þarf að taka til skoðunar regluverkið sem gildir um íslenska banka. Til viðbótar við Evrópureglur á þessu sviði eru einnig séríslenskar skorður í lögum og reglum sem takmarka m.a. getu bankanna til að bjóða viðskiptavinum fjölbreyttari óverðtryggð lán og draga þannig úr eftirspurn eftir verðtryggðum lánum. Óverðtryggð lán þurfa að verða samkeppnishæfari og raunverulegur valkostur fyrir viðskiptavini. Sem dæmi um aukna fjölbreytni sem núverandi regluverk stendur í vegi fyrir mætti nefna lán á lægri föstum vöxtum til lengri tíma en nú er, með hærra uppgreiðslugjaldi. Fyrir fjölskyldu sem vill fyrirsjáanleika getur skipt meginmáli að vextirnir séu lægri og að þeir haldist óbreyttir til nokkurra ára. Óverðtryggt lán er venjulegt lán Það væri kostur að geta einn daginn útskýrt fyrir börnunum okkar hvernig lán virka án þess að samtalið endaði í tæknilegri flækju. Í dag hljómar samtalið eitthvað á þessa leið: „Verðtryggt lán virkar þannig að höfuðstólinn hækkar í takt við verðbólgu en þú greiðir lægri vexti en á óverðtryggðu láni. Þú sérð höfuðstólinn líklega hækka til að byrja með. Óverðtryggt lán er ekki verðtryggt og virkar þannig að þú borgar af því mánaðarlega og sérð það lækka samhliða, sem sagt bara lán.“ Það sést kannski best á því hvað íslenskt samfélag er samdauna verðtryggingunni að venjulegt íbúðalán heiti ekki bara íbúðalán heldur óverðtryggt íbúðalán. Ekki greypt í stein Verðtrygging íbúðalána er mannanna verk og það er hægt að hverfa frá henni með því að bjóða upp á fjölbreyttari valkosti án verðtryggingar. Það á að vera sérstakt keppikefli að einfalda líf fólks á lánamarkaði, auka fyrirsjáanleika, mæta áskorunum með sveigjanleika og auka ánægju til lengri tíma. Við í Landsbankanum leitum allra leiða til þess og höfum stigið veigamikil skref í rétta átt. Það er til mikils að vinna. Höfundur er bankastjóri Landsbankans. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Sjá meira
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun