Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Birgir Olgeirsson skrifar 2. september 2026 11:14 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar og utanríkisráðherra. Vilhelm Forysta Viðreisnar segir flokkinn bera meiri ábyrgð en áður á að gæta hagsmuna þeirra sem vildu halda aðildarviðræðum við Evrópusambandið áfram. Flokkurinn verði áfram rödd þessa fólks í stjórnmálaumræðunni og við ríkisstjórnarborðið.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður og Daði Már Kristófersson varaformaður segja þetta í orðsendingu til félagsmanna Viðreisnar eftir ósigur já-hliðarinnar í þjóðaratkvæðagreiðslunni um helgina. Þau segja tæplega helming þjóðarinnar hafa stutt Viðreisn „í þessu verkefni“. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, segir ábyrgð flokksins meiri en nokkru sinni fyrr eftir að meirihluti þjóðarinnar hafnaði framhaldi aðildarviðræðna.Vísir/Viktor Freyr „Það er gríðarlegur fjöldi fólks sem deilir sýn okkar á alþjóðasamvinnu, bættan hag heimilanna og sterka varðstöðu um almannahagsmuni. Við erum rödd þessa fólks, í stjórnmálaumræðunni og við ríkisstjórnarborðið, og sú ábyrgð er meiri en nokkru sinni fyrr,“ segir í orðsendingunni. Þorgerður og Daði viðurkenna að niðurstaðan hafi valdið vonbrigðum. Þau hefðu gjarnan viljað skrifa til félagsmanna eftir jákvæða niðurstöðu en svo hefði ekki farið. Þau þakka jafnframt grasrót flokksins fyrir þrotlaust og óeigingjarnt starf undanfarna mánuði. Markmiðin standi eftir Í orðsendingunni segir að aðild að Evrópusambandinu hafi ekki verið markmið í sjálfu sér heldur leið að öðrum markmiðum Viðreisnar. Þar nefna þau stöðugri gjaldmiðil, lægri vexti fyrir heimili og fyrirtæki, heilbrigðari samkeppni og frjálslyndara samfélag. „Þótt þetta tiltekna verkfæri sé ekki lengur á borðinu þá hverfa ekki þessi risastóru hagsmunamál íslenskra heimila og fyrirtækja,“ segja þau. Þorgerður og Daði segjast virða niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar og vilja nú leggja ágreining um málið til hliðar. „Við höldum áfram sameinuð, stolt og tilbúin í næsta kafla.“
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Evrópusambandið Utanríkismál Mest lesið Dagný Ósk látin Innlent Framkvæmdastjóri hjá BL handtekinn og settur í leyfi Innlent Framkvæmdastjóri hjá þekktu fyrirtæki meðal handteknu Innlent Vaktin: Verkfallsaðgerðum flugvirkja aflýst Innlent Ætluðu að setja lög á verkfall flugvirkja Innlent Flugvirkjar aflýsa verkfalli Innlent Drengurinn er fundinn Innlent Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Innlent Strætisvagni ekið utan í rútu á Snorrabraut Innlent Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Innlent Fleiri fréttir Quang Lé frjáls sinna ferða „Grafalvarlegt ástand sem skapast“ Íslenskir stjörnukokkar meðal kokka sem mótmæla eldislaxi Bjartsýnn á að lausn náist innan fjögurra vikna Dagný Ósk látin Skora á atvinnurekendur og minna á rétt launafólks Kom til landsins með kafarabúninga og neðansjávarvespur Náttúrupassi kosti 4.500 krónur en bílastæðagjöld falli niður Bein útsending: Heimkoman ekki eins auðveld fyrir alla Drengurinn er fundinn Framkvæmdastjóri hjá BL handtekinn og settur í leyfi Ekki búið að slá verkfallsvopnið úr höndum flugstétta Skammlíft verkfall og umfangsmikið fíkniefnamál Framkvæmdastjóri hjá þekktu fyrirtæki meðal handteknu Flugvirkjar aflýsa verkfalli Foreldrar geti nú stillt útlit og falið hvatningu í Læsi Ók allt of hratt og á móti umferð í eftirför lögreglu Strætisvagni ekið utan í rútu á Snorrabraut Ætluðu að setja lög á verkfall flugvirkja Vaktin: Verkfallsaðgerðum flugvirkja aflýst „Gengið með eins eðlilegum hætti og hægt er“ Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Hvannadalshnjúkur lækkar Líkamsárás í Breiðholti Fella niður 26 flugferðir Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Hjól Eyjabarna skrúfuð í sundur Lögreglan leitar að Arturas Flugfreyjur og flugmenn styðja flugvirkja Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Sjá meira