Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar 31. ágúst 2026 15:31 Kosningar víðasthvar um heim eru framkvæmdar á svipaðan hátt. Heill hnöttur sem fylgir sama ferli nánast sama hvert sem litið er; kjósendur mæta á kjörstað á ákveðnum tíma, gera grein fyrir sér, kjósa, setja atkvæðið sitt í atkvæðakassa og bíða svo úrslita eftir að kjörstöðum hefur verið lokað. Hvert ríki hefur sín blæbrigði en heildarskipulagið er það sama. Hér á landi er talið á einum talningarstað í hverju kjördæmanna sex. Það er óháð því hvort um alþingiskosningar, forsetakjör eða þjóðaratkvæðagreiðslu er að ræða. Kjördæmi skipta í raun engu máli í hvorki forsetakosningum né þjóðaratkvæðagreiðslu, landið gæti allt eins verið eitt kjördæmi þar sem vægi atkvæða er það sama og ekki um jöfnunarþingmenn að ræða. Atkvæði eru keyrð frá Ísafirði í Borgarnes, flogið frá Egilsstöðum til Akureyrar (eftir að hafa verið safnað þar saman af Austfjörðum) o.s.frv. Mikið er rætt um áhættu við að gera kosningar rafrænni, framvísa skilríkjum í síma og þar fram eftir götunum en enginn veltir fyrir sér áhættunni sem felst í því að aka atkvæðum gegnum holt og hæðir til þess að telja atkvæðin. Svoleiðis hefur það bara alltaf verið gert. Í flestum ríkjum er einfaldlega talið á kjörstað. Kjörstjórnin sem situr og tekur á móti kjósendum merkir við hver hefur kosið, tekur á móti atkvæðum í atkvæðakassa og í lok dags telur hún upp úr kössunum, stemmir af og telur atkvæðin þar til niðurstaða fæst í þeirri kjördeild. Kjördeildin gerir síðan grein fyrir niðurstöðunni á miðlægum stað, til einhverskonar yfirkjörstjórnar kjördæmis. Framkvæmdin við það nákvæmlega er mismunandi milli landa, hvort allt sé endurtalið eða aðeins stikkprufur teknar. Það er sjaldnast eitthvað sem gerist að nóttu til þegar fólk hefur staðið vaktina í marga, marga klukkutíma. Það gerist í rólegheitum dagana á eftir. Við þurfum að spyrja okkur að því hvort það sé eðlilegt að telja 70.000 atkvæði að nóttu til? Myndir þú taka að þér gríðarlega mikilvægt lýðræðislegt verkefni og hefja það klukkan 22 að kvöldi? Hvort skiptir meira máli, vel úthvílt fólk að fá rétta niðurstöðu eða partí? Eða þarf kannski ekki að velja og við þurfum ekki að setja tannstöngla á augun því ef talið er á kjörstöðum koma tölur einfaldlega á u.þ.b. klukkutíma eftir að kjörstöðum var lokað? Það eru ekki lokatölur, það eru ekki tölur sem lýsa úrslitunum upp á punkt og prik en þær gefa afskaplega líklega niðurstöðu kosninga. Það eru síðan þar til bær stjórnvöld, landskjörstjórn, sem lýsir úrslitunum nokkrum dögum síðar þegar búið er að yfirfara allt, úrskurða um ágreiningsatkvæði og fleira. En þótt formlegu ferli sé ekki lokið þá er nokkuð ljóst hver úrslitin verða. Kosningalög gera ráð fyrir að yfirkjörstjórnir kjördæma geti skipað svokallaða umdæmiskjörstjórn á einum stað í kjördæmi sem gæti þá t.d. verið á Ísafirði eða Egilsstöðum. Sú heimild hefur ekki verið nýtt frá því ný kosningalög tóku gildi. Kosningar eru auðvitað óþrjótandi uppspretta áhugaverðra vangaveltna líkt og þessarrar. Til að fóðra ykkur fyrir komandi umræður um kosningaframkvæmd eru hér fleiri áhugaverðar spurningar til að velta fyrir sér. Hvað er eðlilegt, sérstaklega í þéttbýli, að langt sé á næsta kjörstað? Er eðlilegt að hafa 25 kjörstaði í Reykjavík? Er eðlilegt að hafa tvo kjörstaði í Kópavogi? Tvo í Garðabæ? Hvers vegna ákvað Alþingi í kosningalögum að miða kosningarétt þeirra sem búið hafa erlendis lengur en 16 ár við það að þeir sæki um fyrir 1. desember að vera settir á kjörskrá? Hvers vegna miðast það ekki einfaldlega við viðmiðunardag kjörskrár sem fylgir hverjum kosningum? Hvers vegna fannst þingmönnum í lagi að gera bráðabirgðaákvæði fyrir síðustu alþingiskosningar og leyfa fólki að skrá sig á kjörskrá þegar kosið var 29. nóvember 2024? Formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar sagði fyrir þessa þjóðaratkvæðagreiðslu „því miður að þessu sinni náðist ekki að gera þetta [setja bráðabirgðalög] fyrir þinglok“. Er eðlilegt að setja bráðabirgðalög fyrir hverjar kosningar til þess að koma fólki á kjörskrá? Eiga lög ekki að vera nokkuð stabíl? Hvers vegna breytir Alþingi ekki bara lögunum? Er æskilegt að hafa opið til klukkan 22 á kjörstöðum? Væri í lagi að hafa það til klukkan 21? Viljum við að hægt sé að kjósa eins oft og maður vill utankjörfundar og síðan aftur á kjördag? Eru 1.500 - 3.000 undirskriftir of lítill fjöldi til að mega bjóða sig fram til forseta? Ættum við að kjósa rafrænt? Eistar hafa kosið rafrænt í rúm 20 ár en einnig á pappír. Í raun má líta á þeirra rafrænu kosningu sem utankjörfundarkosningu og síðan fer hefðbundin kosning einnig fram. Fólk sem hefur kosið utankjörfundar, sérstaklega í útlöndum og kannski farið um langan veg, hefði eflaust gaman af því að velta því fyrir sér. Samkvæmt kosningadagatalinu eru enn tvö ár í næstu kosningar. Kannski má skoða eitthvað og ræða - jafnvel breyta - fram að því. Höfundur er sérfræðingur í kosningaframkvæmd. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Freyja Þórisdóttir skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Sjá meira
Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun