„Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Árni Sæberg skrifar 30. ágúst 2026 01:51 Þorgerður Katrín fagnaði vel og innilega í Hafnarhúsinu. Vísir/Viktor Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segist vera sátt við fyrstu tölur. Hún muni þó eftir því úr íþróttunum að þetta sé ekki búið fyrr en þetta er búið.
Þorgerður Katrín ræddi við Tómas Arnar Þorláksson fréttamann á miðju dansgólfinu í kosningapartíi já-liða í Hafnarhúsinu eftir að fyrstu tölur voru kynntar. Miðað við þær leiddi já með um 2,5 prósent atkvæða en nú er forskotið um 2 prósent. Því er ljóst að mjótt er á munum. Getum við fengið fyrstu viðbrögð við þessum tölum? „Ég er sátt en en ég þekki það líka úr íþróttunum að þetta er ekki búið fyrr en þetta er búið. En fyrst og síðast þá sýnir þessi mikla kosning að þjóðin vill og er reiðubúin til þess að takast á við stór mál og mér fannst umræðan eftir því sem á leið vera frábær. Við lærum öll mjög mikið af henni. Á morgun þá vöknum við öll í sama liði, óháð því hverjar niðurstöðurnar eru.“ Sest niður með „stelpunum“ á morgun Hún segir að burtséð frá lokaniðurstöðum muni hún setjast niður með „stelpunum“ snemma í fyrramálið, vitanlega með vísan til þeirra Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra og Ingu Sæland, mennta- og barnamálaráðherra. „Ég hef lagt mikla áherslu á að hafa strax samráð við þingið, utanríkismálanefnd þingsins. Ég hef lagt mikla áherslu á það. Óháð því hver staðan er og við munum að sjálfsögðu nýta það og hefja strax samráðið þar.“ Lítill munur styrki samningsstöðuna Hvernig líst þér á að fara í aðra eins kosningabaráttu ef niðurstaðan verður já? „Mér líst auðvitað ágætlega á það en það er líka alveg ljóst að samningviðræðurnar verða tough. Okkar kröfur og okkar viðmið eru mjög skýr og Evrópusambandið hefur fengið alveg skýr skilaboð í gegnum þessa kosningabaráttu að það er sjávarútvegur, það er landbúnaður og svona ýmislegt fleira sem þarf að gera til þess að koma til móts við okkur. Ég tel að ef þetta fer eins og þetta er þá sé það mun meiri og ríkari ástæða fyrir Evrópusambandið að átta sig á því hvernig staðan er hér heima. Þannig að mér finnst niðurstaðan frekar styrkja stöðu okkar inn í samningaviðræðurnar. Ég sé fram á að senda dúndur teymi, dúndurlandslið út.“
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Viðreisn Mest lesið Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Erlent Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ Innlent Tígrisdýrið verður ekki aflífað Erlent „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Innlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Innlent Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Erlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Fleiri fréttir Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Sjá meira