„Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Smári Jökull Jónsson skrifar 30. ágúst 2026 00:34 Júlíus Viggó er formaður Ungra Sjálfstæðismanna og einn af stofnendum Ung gegn ESB. Vísir Formaður Ungra Sjálfstæðismanna og einn af stofnendum Ung gegn ESB segir að það stefni í langa nótt en viðurkennir að hann hefði viljað sjá meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum.
Júlíus Viggó var í viðtali við Bjarka Sigurðsson fréttamann í Kolaportinu þar sem Nei-liðar halda sína kosningavöku. Þar er spennan mikil og Júlíus segir það klisju en það stefni í langa nótt. „Ég hefði auðvitað viljað sjá meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum en við eigum eftir að sjá koma tölur úr fleiri kjördæmum. Maður er ekki að fara á koddann á næstunni og vonani mun vilji unga fólksins sem við sáum í skoðanakönnunum fá að verða yfir í þessum kosningum,“ sagði Júlíus Viggó. Fór ekki saman hljóð og mynd varðandi unga fólkið Hann segir að landsmenn hafi fengið stuttan tíma til að koma sér inn í málið, það hafi ekki verið á dagskrá í langan tíma en hafi síðan verið sett á dagskrá með skömmum fyrirvara. „Síðuustu vikur fór maður að finna það að það fór ekki saman hljóð og mynd í umræðunni í fjölmiðlum um afstöðu ungs fólks og það sem maður fann í kringum mig. Svo fór maður að sjá það hægt og rólega í skoðanakönnunum og það fór að vera staðfest hjá Gallup í byrjun ágúst og svo hjá Maskínu.“ Klippa: Júlíus Viggó hefði viljað sjá fleiri nei Miðað við fyrstu tölur er mikill munur á tölum af landsbyggðinni og höfuðborgarsvæðinu, sérstaklega í Reykjavík. „Það voru margir búnir að spá í spilin og fólk sá fyrir að það yrðu fleiri já í Reykjavík og meira nei á landsbyggðinni. Ég hefði viljað sjá meiri stuðning við Nei-ið en við eigum eftir að sjá hvernig þetta þróast.“ „Skilaboð sem ríkisstjórnin þarf að taka til sín“ Hann segir ákveðið spennufall núna eftir baráttuna síðustu vikur þar sem fólk hafi verið að hringja og vinna daginn út og inn. „Tilfinningin er skrýtin en það er gleði og það er gleði í unga fólkinu. Hvernig sem fer þá er náttúrulega stóri punkturinn úr þessum kosningum að unga fólkið vildi halda áfram að ráða sínum málum sjálft.“ „Hvernig sem þessi þjóðaratkvæðagreiðsla fer í nótt þá eru það skilaboð sem ríkisstjórnin verður að taka til sín,“ sagði Júlíus Viggó að lokum.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Endurskoða samning SÁÁ María Sigurðardóttir er látin Handtekinn fyrir líkamsárás, rán, íkveikju og þjófnað Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku „Það er skilgreiningin á því að pissa í skóinn sinn“ Sorpa skoðar að fara í mál við grenndargámasóða „Mistök að fela honum forystu“ Sjá meira