Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar 29. ágúst 2026 08:19 Kæru óákveðnu, Nú nálgast ákvörðunin mikla eftir sumar sem hefur einkennst af hálfsannleika, oft hreinum ósannindum, brigslum og flokkadráttum. Bergmálshellar netsins hafa sannfært marga um að þeir einir hafi á réttu að standa. En klofin þjóð stendur samt frammi fyrir sömu vandamálum, hvernig sem atkvæðin falla. Óvissa í hættulegum heimi Við lifum á hættulegum tímum. Styrjöldin í Evrópu gæti auðveldlega breiðst út. Rússar beita netárásum, upplýsingaóreiðu, skemmdarverkum og pólitískum afskiptum í Evrópu og vopnuð átök gætu færst nær okkur. Ekki er lengur hægt að treysta á Bandaríkin með sama hætti og áður, og kannski alls ekki. Bandaríkin beita Kanada nú miklum þrýstingi og á Grænlandi hefur ótti við fyrirætlanir Bandaríkjastjórnar farið vaxandi. Rætt hefur verið um nánari tengsl Kanada við Evrópusambandið, jafnvel formlega aðild, til þess að treysta stöðu landsins. Trump á enn rúm tvö ár eftir, en hann er fyrst og fremst einkenni, ekki orsök þeirra breytinga sem hafa orðið í Bandaríkjunum. Núverandi og fyrrverandi ríkisstjórnir Íslands hafa gert allt sem þær hafa getað til að viðhalda sem sterkustum tengslum við lýðræðisríkin til þess að tryggja öryggi landsins. Sú sem nú situr leggur meiri áherslu á Evróputengslin enda hefur óvissan um Bandaríkin aukist stórlega. Bandarískur herforingi segist ætla að auka viðbúnað á Íslandi. Höfum við sem þjóð eitthvert val? Evrópuþjóðirnar reyna allt til að styrkja sig og efla samstöðu sín á milli til þess að verja sjálfstæði sitt. Ekki dettur Dönum í hug að ganga úr Evrópusambandinu. Þvert á móti hefur aðild aldrei verið mikilvægari fyrir Danmörku. Er rétt við þessar aðstæður að segja nei á morgun og loka þeirri leið sem stjórnvöld vilja fara í ljósi óvissunnar í okkar heimshluta og þeirra upplýsinga sem þau hafa? Krónan og peningalegur stöðugleiki Um áratugaskeið hefur ekki reynst unnt að tryggja peningalegan stöðugleika hér innanlands. Vextir eru mun hærri en í sambærilegum ríkjum. Í Færeyjum er unnt að taka 30 ára húsnæðislán með föstum vöxtum út lánstímann. Færeyingar geta þannig tekið lán og vitað hvað þeir munu greiða í afborganir og vexti eftir 20 ár, 25 ár og jafnvel 30 ár (í óverðtryggðum krónum 😊). Af hverju þeir en ekki við? Áramótagrein Ólafs Thors, forsætisráðherra, árið 1962 um mikilvægi ábyrgðar á vinnumarkaði og í gengismálum gæti alveg eins hafa verið skrifuð í dag. Núverandi forsætisráðherra gæti lesið hana beint upp og við myndum halda að hún hefði sjálf skrifað hana. Það er hjákátlegt að horfa á forystufólk SA og launþega kýtast í fjölmiðlum um hverjum verðbólgan sé að kenna. Persónur koma og fara en hlutverkin eru þau sömu og orðin breytast lítið þótt áratugir líði. Mikið væri gott ef kraftar þessa ágæta fólks færu í eitthvað uppbyggilegra. Seðlabankinn hefur verið sjálfstæður og að mestu undir faglegri stjórn í aldarfjórðung og honum er sannarlega stjórnað samkvæmt kúnstarinnar reglum. Fjöldi hagfræðinga undirbýr hverja ákvörðun. En samt er erfitt að gera langtímasamninga í krónum og verðtrygging leigu, lána og annarra samninga er regla fremur en undantekning. Þegar verð á innflutningi hækkar og verðbólga eykst, þá hækkar verðtryggð leiga, sem aftur hækkar kostnað fyrirtækja sem velta honum út í verðlagið. Húsnæðiskostnaður vegur þungt í vísitölu neysluverðs. Þetta ýtir undir frekari verðbólgu sem síðan hækkar leiguna enn frekar, sem aftur ýtir undir verðbólgu. Kannski þarf að hafa vanist slíku kerfi til að finnast það eðlilegt. Þjóðin skiptist í þá sem eiga verðtryggðar eignir og þá sem skulda verðtryggt. Krónan er góð fyrir þá sem eiga, slæm fyrir þá sem skulda og verst fyrir þá sem leigja. Er rétt að segja nei á morgun við þessar aðstæður og vona að allt geti batnað ef bara „við“ lækkum vexti? En það er ekkert „við“. Það eru stjórnmálamenn sem vilja eyða, forstjórar leigufyrirtækja sem vilja hagnast og foringjar hagsmunasamtaka sem vilja líta vel út – á morgun og kannski daginn eftir. Dýrtíð og aftur dýrtíð Það er ekki rétt að verðlag myndi lækka um 25% við inngöngu í ESB eins og sumir hafa haldið fram. Verð í hálaunalandi verður aldrei eins lágt og í landi þar sem laun eru lægri. Það er gott að vera Íslendingur á Spáni en dapurt að vera Spánverji á Íslandi. En verðlag gæti lækkað vegna lægra verðs á landbúnaðarvörum og hugsanlega aukinnar samkeppni á ýmsum mörkuðum, til dæmis í tryggingum og bankastarfsemi. Er þá rétt að segja nei á morgun? Hverjir hafa hagsmuna að gæta? Þeir sem hafa staðið á bak við nei-herferðina í sumar hafa margir hverjir hagsmuna að gæta af því að útkoman verði nei á morgun. Kemur svo sem ekki á óvart. En þessir aðilar og álitsgjafar þeirra hafa rembst eins og rjúpan við staurinn til þess að fá þetta nei, rétt eins og þeir gerðu í baráttunni gegn hækkun veiðigjalds í fyrra. Er það tilviljun? Stór útgerðarfyrirtæki hafa um árabil verið áberandi í eignarhaldi fjölmiðla. Það er því eðlilegt að spyrja hvaða áhrif slíkir hagsmunir hafa á opinbera umræðu þegar stórir fjárhagslegir hagsmunir útgerðarinnar eru undir. En ef málflutningur þessara aðila er réttur, hvað hafa þeir þá að óttast við að ferlið haldi áfram og þjóðin segi einfaldlega nei þegar og ef óhagstæður samningur liggur fyrir? Gæti verið að eiginhagsmunir ráði þar einhverju um og að það sem þessir aðilar óttist mest sé að baráttan fyrir nei verði mun erfiðari þegar samningurinn sjálfur liggur á borðinu? Við höfum öll hag af vel reknum fyrirtækjum og eigendur þeirra eiga skilið að hagnast. En ef sumir þessara eigenda reyna að hafa svo stórfelld áhrif á lýðræðislegar ákvarðanir má spyrja hvort þessi glæsilegu fyrirtæki séu hluti af þjóðfélaginu okkar – eða hvort við séum orðin hluti af þeim. Að halda valkostum opnum Sá sem þetta skrifar veit ekki fyrir víst í dag hvort best sé fyrir Ísland að ganga í ESB, þótt margt bendi til þess. Það á eftir að semja, reikna út og kortleggja áhrif hugsanlegs samnings á atvinnugreinar, peningamál, utanríkismál og margt fleira. Facebook-færslur frá sumrinu 2026 duga skammt. Og heimurinn breytist hratt. Mun lýðræðið standast þingkosningarnar í Bandaríkjunum í nóvember? Munu Bandaríkin taka yfir Grænland bara af því að einhver hvíslaði þeirri hugmynd í eyra forsetans? Mun styrjöld breiðast út í Evrópu? Verður heiminum skipt í áhrifasvæði stórveldanna í ríkari mæli en nú er? Munu popúlistar ná völdum í Þýskalandi og Frakklandi? Mun NATO-sáttmálinn halda? Óvissan hefur sjaldan verið meiri. Við mikla óvissu er skynsamlegt að taka lítil skref. Að halda áfram samningaviðræðum er eitt skref. Að leggja síðan samninginn fyrir þjóðina er annað. Og kjósendur fá síðar tækifæri til að meta stefnu stjórnvalda í alþingiskosningum. Á hverju stigi gefst tækifæri til að breyta um kúrs ef aðstæður breytast eða nýjar upplýsingar koma fram. Að segja nei á morgun og loka þessari leið er hins vegar stórt skref. Betra væri að ræða hvernig megi leysa þessi mál á yfirvegaðan hátt. Kannski eru aðrar leiðir mögulegar, en hverjar eru þær? Góð stjórnkænska felst í því að halda valkostum opnum þegar óvissan er mikil. Og óvissan hefur ekki verið meiri í áratugi. Höfundur er prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Sjá meira
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun