Hvönnin í bjarginu Jón Steindór Valdimarsson skrifar 27. ágúst 2026 21:31 Við erum stolt þjóð sem vill standa á eigin fótum og ekki láta aðra segja okkur fyrir verkum. Það er margt gott við þá afstöðu. Sjálfstæði, sjálfsbjargarviðleitni og eðlileg tortryggni gagnvart umheiminum eru mikilvægir þættir í íslenskri þjóðarsál. Ég neita því ekki að upp á síðkastið hafa mér verið þessi þættir í fari okkar hugstæðir og Gerpla Halldórs Laxness hefur komið þar við sögu . Þar sækir hann fyrirmynd til Fóstbræðrasögu þegar dregin er upp ein eftirminnilegasta mynd íslenskra bókmennta af stolti sem er komið út yfir öll skynsamleg mörk. Þorgeir Hávarsson fellur fram af bjargi en nær taki á hvönn áður en illa fer og þar hangir hann, en kemst ekki upp af eigin rammleik. Engu að síður getur hann ekki fengið sig til að kalla á hjálp. Stoltið bannar honum það. Honum finnst það niðurlægjandi að viðurkenna að hann þurfi á fóstbróður sínum að halda. Sem betur fer erum við fæst eins og Þorgeir í bjarginu og þaðan af síður er staða Íslands með nokkru móti í ætt við það að hanga á bláþræði eða á leið fyrir björg - fjærri því. Þorgeir er í okkur öllum Þessi frásögn er auðvitað bráðfyndin, en hún er líka hárbeitt. Hún sýnir hvernig hugrekki getur snúist upp í dramb, hvernig sjálfsvirðing getur orðið að sjálfsblekkingu. Það er engin hetjudáð að hanga þegjandi á hvönninni þegar öll skynsamleg rök segja að rétt sé að komast upp en treysta ekki á hvönnina. Við Íslendingar höfum trúlega eitthvað af Þorgeiri í okkur en við vitum betur en að haga okkur eins og hann. Eitt skref í einu Við höfum tekið ákvarðanir um aðild að alþjóðlegu samstarfi sem hafa reynst vel. Má þar nefna aðildina að Sameinuðu þjóðunum, NATO ásamt aðildina að EFTA, en síðast en ekki síst EES-samninginn. Við höfum líka þegið hjálp og aðstoð þegar mikið hefur legið við. Má þar minna á Marshall-aðstoðina, aðstoð í deilum vegna útfærslu landhelginnar og hjálp Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sem tók nánast yfir efnahagstjórn landsins eftir hrun. Það er mikilvægt að hafa þetta í huga þegar við horfum til baka og metum hvernig við höfum náð þeim góða árangri sem við höfum náð við að byggja upp gott samfélag á Íslandi. Sögu Íslands um velgengni frá því að við urðum sjálfstæð og fullvalda höfum við nefnilega ekki skapað ein og sér. Þann 29. ágúst greiðum við atkvæði um hvort Ísland eigi að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Þar er ekki verið að biðja okkur um að samþykkja aðild og þar er ekki verið að biðja okkur um að afsala okkur sjálfstæði. Þar er verið að spyrja hvort við viljum kanna málið til fulls, fá samning á borðið og taka síðan upplýsta ákvörðun um hvort við viljum ganga í Evrópusambandið eða ekki. Þá metum við málið og myndum okkur skoðun á því hvort heildarhagsmunum okkar og hagsæld verði enn betur borgið með aðild eða ekki. Óttumst ekki samtal eða samninga Ísland er lítið ríki í stórum og ótryggum heimi. Við erum háð alþjóðlegum mörkuðum, sameiginlegum reglum, öryggissamstarfi og traustum bandalögum. Við tökum nú þegar þátt í stórum hluta evrópsks samstarfs með EES og Schengen en erum að verulegu leyti utangarðs þegar ákvarðanir eru mótaðar og teknar, þótt við séum engu að síður skuldbundin til þess að fylgja þeim reglum sem þar verða til. Með aðild að Evrópusambandinu getum við styrkt fullveldi okkar, tekið þátt í að móta og setja reglur sem um okkur gilda í stað þess að aðrir geri það fyrir okkur. Þess vegna snýst spurningin alls ekki um hvort við verðum áfram stoltir Íslendingar eða Ísland breytist í eðli sínu og sérkennum. Stóra spurningin er miklu frekar hvort við Íslendingar höfum kjark og styrk til þess að horfast í augu við stöðu okkar af fullri alvöru. Sjálfstæð þjóð þarf hvorki að óttast samtal né samninga. Sjálfstæð þjóð þarf hvorki að óttast að fá staðreyndir á borðið né taka afstöðu til þeirra. Við eigum eins og alltaf að velja skynsemina og raunsæið öfugt við Þorgeir í bjarginu. Við búum við þá kjörstöðu að geta kallað eftir upplýsingum, samningi og raunverulegu vali í sterkri stöðu. Það veitir frelsi að eiga val og þess vegna er gott að segja JÁ. Höfundur er lögfræðingur Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jón Steindór Valdimarsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Amma og afi, plís ekki kjósa gegn okkur Hnikarr Bjarmi Franklínsson Skoðun Til unga fólksins Illugi Jökulsson Skoðun Það vaknar enginn með sæstreng í bakgarðinum Jóna Þórey Pétursdóttir Skoðun Um tjáningu fullveldis Arnór Sighvatsson Skoðun Hvernig fór síðasti heimsendir? Vilhelm Jónsson Skoðun Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson Skoðun Hver á lokaorðið? Meðlimir í Ung gegn ESB-aðild Skoðun Hvað gæti ESB-aðild þýtt fyrir almenna íbúa landsbyggðanna? Stefanía V. Gísladóttir Skoðun Innsæi og góð dómgreind á tímum óvissu Hrund Gunnsteinsdóttir Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson Skoðun Skoðun Skoðun Já til að sjá hvað? Geir Finnsson skrifar Skoðun Íslenskur landbúnaður til framtíðar: Hvaða tækifæri gætu falist í Evrópusamstarfi? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Við getum valið að hætta að rífast – um krónuna Dagbjört Hákonardóttir skrifar Skoðun Ísland sé frjálst meðan sól gyllir haf Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæði-til hvers ? Egill Þórir Einarsson skrifar Skoðun Er Ísland nógu gott fyrir Evrópu? Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Path Dependencies and Critical Junctures: A Response to Baudenbacher Maximilian Conrad skrifar Skoðun Umræðan í aðdraganda kosninga Geir Rögnvaldsson skrifar Skoðun Suðurlandi allt Sandra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Amma og afi, plís ekki kjósa gegn okkur Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Hver á lokaorðið? Meðlimir í Ung gegn ESB-aðild skrifar Skoðun Nei við ESB er ekki nei við Evrópu Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Kjörklefinn er síðasti hlekkurinn, ekki sá fyrsti Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Það vaknar enginn með sæstreng í bakgarðinum Jóna Þórey Pétursdóttir skrifar Skoðun Til unga fólksins Illugi Jökulsson skrifar Skoðun Innsæi og góð dómgreind á tímum óvissu Hrund Gunnsteinsdóttir skrifar Skoðun Hvað gæti ESB-aðild þýtt fyrir almenna íbúa landsbyggðanna? Stefanía V. Gísladóttir skrifar Skoðun Hvönnin í bjarginu Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Hvernig fór síðasti heimsendir? Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Um tjáningu fullveldis Arnór Sighvatsson skrifar Skoðun 25,2% árangur Gísli Garðarsson skrifar Skoðun Hvernig á ég að ákveða hvað ég ætla að kjósa? Ráð frá sálfræðingi samfélagsins Gró Einarsdóttir skrifar Skoðun Stöndum með blaðamönnum Sigríður Dögg Auðunsdóttir skrifar Skoðun Einstakt tækifæri til að auka kaupmátt sem við gætum misst af næstu 30 árin!! Baldur Pétursson skrifar Skoðun Þess vegna segjum við NEI þann 29. ágúst Þorvaldur Þorvaldsson skrifar Skoðun Ég kýs JÁ ! - Hvers vegna? skrifar Skoðun Kveðja til hleðslukvíðans Úlfar Linnet skrifar Skoðun Samkeppnishæfni Íslands Ingvar Þóroddsson skrifar Skoðun Kaupmáttur eftir húsnæðiskostnað 27% minni en fyrir fimm árum Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Virðir Alþingi úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst? Hjörtur Hjartarson skrifar Sjá meira
Skoðun Íslenskur landbúnaður til framtíðar: Hvaða tækifæri gætu falist í Evrópusamstarfi? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Path Dependencies and Critical Junctures: A Response to Baudenbacher Maximilian Conrad skrifar
Skoðun Hvernig á ég að ákveða hvað ég ætla að kjósa? Ráð frá sálfræðingi samfélagsins Gró Einarsdóttir skrifar
Skoðun Einstakt tækifæri til að auka kaupmátt sem við gætum misst af næstu 30 árin!! Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Kaupmáttur eftir húsnæðiskostnað 27% minni en fyrir fimm árum Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar