Ræður Evrópusambandið hvort dánaraðstoð verði leyfð á Íslandi? Ingrid Kuhlman skrifar 27. ágúst 2026 07:31 Umræða um mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu vekur spurningar um hvaða áhrif aðild gæti haft á íslensk lög og samfélag. Ein þeirra er hvort Evrópusambandið hafi sameiginlega stefnu um dánaraðstoð og hvort aðild hefði áhrif á möguleika Íslands til að setja eigin löggjöf um hana. Svarið er skýrt: Evrópusambandið ákveður ekki hvort dánaraðstoð skuli vera leyfð. Ákvörðunin er í höndum hvers ríkis fyrir sig. Engin sameiginleg evrópsk löggjöf Löggjöf Evrópuríkja um dánaraðstoð er mjög mismunandi. Dánaraðstoð er leyfð í einhverri mynd og að uppfylltum tilteknum skilyrðum í sjö Evrópuríkjum, þar á meðal Hollandi, Belgíu, Lúxemborg, Sviss, Þýskalandi, Spáni og Austurríki. Í Frakklandi, Portúgal og á Jersey hafa jafnframt verið samþykkt lög um dánaraðstoð, þótt framkvæmd þeirra sé ekki að fullu hafin. Fjölmörg Evrópuríki banna hins vegar enn dánaraðstoð, þar á meðal Ísland. Evrópusambandið hefur ekki sett aðildarríkjunum sameiginlega löggjöf eða stefnu um dánaraðstoð. Heilbrigðisþjónusta, refsilöggjöf og umönnun við lífslok eru að verulegu leyti á ábyrgð hvers ríkis. Aðild að Evrópusambandinu myndi því hvorki skylda Ísland til að lögleiða dánaraðstoð né koma í veg fyrir að Alþingi samþykkti slíka löggjöf. Evrópusambandið og Evrópuráðið eru ekki það sama Í umræðu um Evrópusambandið er stundum vísað til Mannréttindadómstóls Evrópu og dóma hans. Þar er þó um tvær aðskildar stofnanir að ræða. Mannréttindadómstóllinn tilheyrir ekki Evrópusambandinu heldur Evrópuráðinu. Evrópusambandið er pólitískt og efnahagslegt samstarf 27 Evrópuríkja. Evrópuráðið er hins vegar sérstök alþjóðastofnun 46 ríkja sem hefur það hlutverk að standa vörð um mannréttindi, lýðræði og réttarríkið. Mannréttindadómstóll Evrópu starfar á vegum Evrópuráðsins og hefur eftirlit með því að aðildarríkin virði Mannréttindasáttmála Evrópu. Ísland hefur átt aðild að Evrópuráðinu frá árinu 1950 og er þegar bundið af Mannréttindasáttmála Evrópu, óháð því hvort landið eigi aðild að Evrópusambandinu. Möguleg innganga Íslands í Evrópusambandið myndi því engu breyta um þær skuldbindingar. Sjálfsákvörðunarréttur við lífslok Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um dánaraðstoð og ákvarðanir við lífslok í nokkrum málum. Dómaframkvæmd hans sýnir að ákvörðun einstaklings um hvernig og hvenær lífi hans skuli ljúka getur fallið undir réttinn til friðhelgi einkalífs samkvæmt 8. gr. Mannréttindasáttmálans. Það þýðir þó ekki að dómstóllinn hafi viðurkennt skilyrðislausan rétt til dánaraðstoðar eða skyldað ríki til að leyfa hana. Í máli Dániel Karsai gegn Ungverjalandi árið 2024 komst dómstóllinn að þeirri niðurstöðu að bann Ungverjalands við læknisfræðilegri aðstoð við að deyja bryti ekki gegn Mannréttindasáttmála Evrópu. Karsai var ungverskur lögmaður með hreyfitaugahrörnunarsjúkdóminn MND og óskaði þess að geta stytt lokastig sjúkdómsins með aðstoð við að deyja. Dómstóllinn viðurkenndi mikilvægi persónulegs sjálfræðis en taldi að ríki hefðu víðtækt svigrúm til að setja eigin reglur. Málefnið væri siðferðilega og samfélagslega viðkvæmt og ekki væri nægileg samstaða meðal Evrópuríkja um hvernig því skyldi háttað. Dómstóllinn benti þó á vaxandi tilhneigingu í Evrópu til lögleiðingar dánaraðstoðar. Mannréttindi setja ramma, ekki eina niðurstöðu Mannréttindasáttmálinn bannar því ríkjum ekki að leyfa dánaraðstoð en skyldar þau heldur ekki til þess. Ríki sem leyfa hana þurfa hins vegar að setja skýran lagaramma og tryggja viðeigandi eftirlit og verndarráðstafanir. Meðal annars þarf að tryggja að ákvörðun einstaklingsins sé upplýst, sjálfviljug og tekin án þrýstings. Í máli Mortier gegn Belgíu árið 2022 taldi dómstóllinn að belgíska löggjöfin um dánaraðstoð fæli í grundvallaratriðum í sér fullnægjandi verndarráðstafanir og samræmdist 2. gr. Mannréttindasáttmálans. Eftirlitið eftir að dánaraðstoðin hafði verið veitt uppfyllti hins vegar ekki kröfur hans, bæði vegna skorts á sjálfstæði eftirlitsnefndarinnar og þess hve langan tíma rannsókn sakamálsins tók. Ákvörðunin er íslensk Þótt Evrópusambandið setji Íslandi ekki reglur um dánaraðstoð getum við lært af reynslu annarra Evrópuríkja. Sum þeirra hafa búið við slíka löggjöf í meira en tvo áratugi. Þar liggja fyrir upplýsingar um framkvæmd, eftirlit og reynslu sjúklinga, aðstandenda og heilbrigðisstarfsfólks. Ísland þarf því ekki að finna upp hjólið. Við getum rannsakað hvað hefur reynst vel, hvaða vandamál hafa komið upp og hvernig löggjöf hefur þróast í ljósi reynslunnar. Hvort dánaraðstoð verður leyfð á Íslandi verður ekki ákveðið í Brussel. Ábyrgðin liggur hjá Alþingi og íslensku þjóðinni. Að rannsaka dánaraðstoð er ekki það sama og að taka afstöðu með henni. Það er viðurkenning á því að hér sé mikilvægt samfélagslegt og mannréttindalegt málefni sem verðskuldi faglega og upplýsta umræðu. Evrópa getur veitt okkur fyrirmyndir, gögn og mikilvægan lærdóm, en ákvörðunin verður tekin hér á Íslandi. Höfundur er formaður Lífsvirðingar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ingrid Kuhlman Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir Skoðun Til kall Drífa Snædal Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Skoðun Alnetið er dautt! Lengi tóri lýðræðið! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Til hvers ætlum við að virkja? Andrés Kristjánsson skrifar Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason skrifar Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Ábyrg sýn í málefnum útlendinga Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar Skoðun Þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason skrifar Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Til kall Drífa Snædal skrifar Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Atlaga að fátækt Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason skrifar Skoðun Hvernig tala ég við barnið mitt um netið? Skúli Bragi Geirdal skrifar Skoðun Ríkið þrengir að frelsi og samkeppni á fjölmiðlamarkaði Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Öll börn eru hluti af liðinu Thelma Dögg Grétarsdóttir skrifar Skoðun Heljarhestar um veturnætur Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson skrifar Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Málshraðasögur Dvalarleyfi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir skrifar Skoðun Hugsjónasvelta Reykjavík Líf Magneudóttir ,Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Sjá meira
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar
Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar
Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun