Cody Gakpo orðaður við Manchester City Andri Broddason skrifar 24. ágúst 2026 22:32 Cody Gakpo hefur verið einn helsti framherji Liverpool síðan hann gekk til félagsins. Liverpool FC/Getty Images Manchester City hefur áhuga á því að fá Cody Gakpo frá Liverpool. Gakpo skrifaði undir nýjan samning fyrir ári sem gildir til 2030.
The Athletic greinir frá því að Manchester City hafi áhuga á hollenska leikmanninum. Hann hefur mikið verið orðaður við Tottenham í sumar en ekkert hefur orðið að því ennþá. Liverpool virðist ekki vilja losa sig við Gakpo enda byrjaði hann í fyrsta deildarleiknum gegn Newcastle. Manchester City er búið að vera duglegt að sækja sér leikmenn í sumar þar sem þrír leikmenn eru nú þegar komnir en fleiri eru á leiðinni. Mögulega mun Gakpo bætast við þá leikmenn sem eru á leiðinni. Stígandi hjá Gakpo Gakpo átti frábært tímabil hjá Liverpool 2024-25 en þá skoraði hann átján mörk ásamt því að leggja upp sjö þegar Liverpool varð síðast Englandsmeistari. Hann náði þó ekki alveg að halda sama dampi á síðasta tímabili þar sem hann skoraði aðeins níu mörk. Gengi Gakpo virðist þó vera að batna þar sem hann skoraði þrjú mörk á heimsmeistaramótinu í sumar fyrir Holland og skoraði í fyrsta leiknum í ensku úrvalsdeildinni. Það væri gríðarlegt högg fyrir Liverpool ef Gakpo myndi fara frá félaginu og þyrfti félagið að fá einhvern annan í staðinn. Bradley Barcola, leikmaður PSG, hefur mikið verið orðaður við Liverpool í sumar og gæti hann komið í stað Gakpo. Ef Manchester City ætlar að kaupa Cody Gakpo þarf félagið að búast við að borga meira en 75 milljónir punda fyrir leikmanninn. Hann er mikilvægur fyrir Liverpool og á mikið eftir af samningnum sínum. Auk þess væri hann að fara til keppinauta sem myndi gera það að verkum að hann yrði enn dýrari.
Enski boltinn Liverpool FC Manchester City Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Fleiri fréttir Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Eiður fann til með Liverpool Eiður með gæsahúð á Anfield Ekki unnið á Anfield í 14 ár Hildur skoraði í sigri Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sjáðu mörkin: Varnarmenn United eins og keilur og rautt spjald Martínez Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Grealish í agabanni hjá Everton Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað „Enski boltinn er annar heimur“ „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Sjá meira