Fór á fimm tónleika Ariönu Grande á viku Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 24. ágúst 2026 13:00 Heimir Ingi Róbertsson er mikill aðdáandi Ariönu Grande og er búinn að sjá hana átta sinnum á tónleikum í sumar. Aðsend „Ég held þetta sé komið upp í sjötíu tónleika núna, allt á síðustu rúmu fjórum árum,“ segir Heimir Ingi Róbertsson, tónleikaáhugamaður með meiru og starfsmaður á hjúkrunarheimili. Heimir hefur flogið víða um heim til að sækja fjölbreytta tónleika og segir þetta klárlega mikla ástríðu hjá sér.
Blaðamaður ræddi við Heimi en hann er enn staddur í London, þar sem hann hefur dvalið síðustu tíu dagana. Hann fór á fimm tónleika úti hjá stórstjörnunni Ariönu Grande en í júlí skellti hann sér á þrenna tónleika hjá henni í Boston. View this post on Instagram A post shared by heimir (@heimiringii) „Þetta er síðasta tónleikaferðalagið hennar í langan tíma og hún er númer eitt hjá mér alltaf. Ég elska tónlistina hennar og svo er hún æðisleg persóna líka.“ Fyrir sumarið hafði hann séð Ariönu einu sinni á sviði árið 2019. „Ég var því búinn að bíða spenntur eftir þessu í sjö ár. Mér finnst röddin hennar hafa þroskast rosalega mikið, hún nær auðvitað sturluðum nótum og þetta var svakalega flott show hjá henni.“ Grande skælbrosandi Heimir segist seint verða þreyttur á tónleikum Ariönu. „Í gærkvöldi fór ég með vinkonu minni sem var að sjá hana í fyrsta skiptið. Það var mjög gaman að upplifa það með henni og þetta er alltaf jafn skemmtilegt. Svo tekur hún oft ýmislegt óvænt. Á fyrstu tónleikunum tók hún tvö ný lög sem hún hefur aldrei sungið áður á sviði. Á næstu tónleikum var ég með VIP standandi miða og þá kom Cynthia Erivo og allt gjörsamlega trylltist.“ @heimiringii 😭😭😭😭 #arianagrande #cynthiaerivo #arianator #eternalsunshinetour #wicked ♬ original sound - heimir Cynthia og Ariana eru bestu vinkonur og leika saman í söngleikjamyndunum Wicked. „Ég hef aldrei heyrt jafn sturluð viðbrögð á tónleikunum, fólk fagnaði svo ákaft að það heyrðist ekki í Aríönu syngja einu sinni.“ Ariana Grande hefur verið mikið í umræðunni þar sem fólk hefur áhyggjur af því hve grönn hún er orðin en hún tilkynnti á dögunum að eftir tónleikaferðalagið væri hún farin í pásu frá sviðsljósinu. „Mér fannst hún líta út fyrir að vera mjög hamingjusöm á sviðinu, alltaf skælbrosandi. Fólk hefur verið að segja að hún sé ekki að gefa jafn mikið frá sér á sviði og áður en mér finnst það ekki vera þannig. Þegar hún var á tónleikaferðalagi árið 2019 var hún stöðugt að gráta eftir lög en það er ekki svoleiðis núna allavega,“ segir Heimir um uppáhalds tónlistarkonu sína. Heimir Ingi og Silja Björk á leið á tónleika.Aðsend Íbúðarkaup og smá pása Á síðustu árum hefur Heimir stöðugt verið með einhverja tónleika bókaða, tekur öflugar vinnutarnir og ferðast svo. „Það er að breytast svolítið núna, ég er ekki með neina tónleika bókaða. Ég var að kaupa mér íbúð og þarf aðeins að stoppa,“ segir Heimir kíminn og bætir við: „Núna er ég líka búinn að sjá eiginlega alla sem mig langaði til að sjá og oft þá sömu. Ég get aðeins slakað á. Ég held þetta sé komið upp í sjötíu tónleika núna, allt á síðustu rúmu fjórum árum.“ View this post on Instagram A post shared by heimir (@heimiringii) Hann flýgur svo heim á morgun og hlakkar til að komast í rútínu. „Þetta er búið að vera ótrúlega gaman en ég er líka spenntur að koma heim og slaka smá á. Ég átti meira að segja að vera úti til 2. september en ég stytti ferðina því mig langaði að koma heim.“
Tónlist Íslendingar erlendis Bretland Tengdar fréttir Dregur sig í hlé: „Þessi aumingja kona er að deyja beint fyrir framan okkur“ Bandaríska söng- og leikkonan Ariana Grande ætlar að draga sig úr sviðsljósinu eftir að yfirstandandi tónleikaferðalagi hennar lýkur þann 1. september. Hún hefur sagt aðdáendum sínum frá því að hléið hafi verið skipulagt lengi og sé með engu móti ákveðið í flýti. Grande hefur sætt mikilli gagnrýni undanfarin misseri en meðal annars hefur fólk sett út á það hversu grönn hún sé. 4. ágúst 2026 13:27 Fer á tónleika um allan heim og hangir með stórstjörnu Lífskúnstnerinn Heimir Ingi Róbertsson er 20 ára gamall og elskar fátt meira en að ferðast og fara á tónleika. Hann hefur mikinn áhuga á poppkúltúr og hefur nú þegar séð flest af sínu uppáhalds tónlistarfólki á sviði. 12. mars 2024 11:31 Mest lesið Orðin háð því að vera „enginn“ Lífið Siggi Gunnars hættur sem tónlistarstjóri Rásar 2 Lífið Versace-ást Villa Vill kveikjan að lagi og skúlptúr Tónlist Stjörnulífið: Afmælið endaði með ælu Lífið Margir minnast Steins Ármanns: „Gaf okkur stærstu gjöf sem hægt er að gefa“ Lífið Dimma búin að fylla í skarð Stebba Jak Tónlist Fullt út úr dyrum í prjónapartýi ársins Lífið Fór á fimm tónleika Ariönu Grande á viku Tónlist Hvað veistu um… bæjarhátíðir? Lífið „Hún sagði já“ Lífið Fleiri fréttir Versace-ást Villa Vill kveikjan að lagi og skúlptúr Fór á fimm tónleika Ariönu Grande á viku Dimma búin að fylla í skarð Stebba Jak Gestafjöldi fjórfaldaðist á Kveldúlfi Kanye treður upp í Rússlandi Hip-hop sveitin Tha Alkaholiks í Iðnó í október Hozier skemmti sér á almyrkvahátíð Styrkir Minningarsjóð Bryndísar Klöru á Menningarnótt og skorar á aðra Elti draumana til London og tók sjálfa sig í sátt Moroccanoil slítur samstarfi við Eurovision Hátíðin Kveldúlfur í annað sinn um helgina Heiður að endurvekja falda perlu Palla Eurovision haldið í Burgas í Búlgaríu Suki dásamar Laufeyju Konan sem malaði Stebba og Eyfa á leið til landsins Veðurvélin á leið á Hellissand fyrir almyrkvahátíð „Þetta er ólýsanleg tilfinning“ Dó ekki ráðalaus þegar filippseyska löggan mætti IceGuys boða sína síðustu tónleika: Sonur Arons Can gerði allt vitlaust Guðjón Þorgils flytur lag Hinsegin daga Skímó á skikkanlegum tíma fyrir ömmur og afa Patrik hættur að gigga: „Mér líður eins og apa í búri“ Daniil gefur út lag með Kodak Black: „Trúi þessu ekki ennþá“ Grafalvarlegt nýtt efni: „Jafn tilgangslausar og að selja flugelda inni í helli“ Von á tíu nýjum lögum tíu árum eftir andlátið „Undirstaða Hörpu mun hristast undir hreinum og ómenguðum krafti“ „Þýðir í raun bara endalok fyrir íslenska útgefna tónlist“ Sagði Viktoríu Beckham að „fokka sér“ Litla systir Gretu Thunberg ætlar að verða súperstjarna Innipúkunum fjölgar enn Sjá meira
Dregur sig í hlé: „Þessi aumingja kona er að deyja beint fyrir framan okkur“ Bandaríska söng- og leikkonan Ariana Grande ætlar að draga sig úr sviðsljósinu eftir að yfirstandandi tónleikaferðalagi hennar lýkur þann 1. september. Hún hefur sagt aðdáendum sínum frá því að hléið hafi verið skipulagt lengi og sé með engu móti ákveðið í flýti. Grande hefur sætt mikilli gagnrýni undanfarin misseri en meðal annars hefur fólk sett út á það hversu grönn hún sé. 4. ágúst 2026 13:27
Fer á tónleika um allan heim og hangir með stórstjörnu Lífskúnstnerinn Heimir Ingi Róbertsson er 20 ára gamall og elskar fátt meira en að ferðast og fara á tónleika. Hann hefur mikinn áhuga á poppkúltúr og hefur nú þegar séð flest af sínu uppáhalds tónlistarfólki á sviði. 12. mars 2024 11:31