Liverpool og City muni ekki berjast um titilinn Aron Guðmundsson skrifar 24. ágúst 2026 08:30 Norski framherjinn Erling Haaland í leik með Manchester City í gær Vísir/Getty Gary Neville, sparkspekingur hjá Sky Sports og fyrrverandi leikmaður Manchester United, telur Manchester City og Liverpool ekki geta barist um Englandsmeistaratitilinn á þessu tímabili.
Manchester City, sem er á sínu fyrsta tímabili undir stjórn Enzo Maresca eftir brotthvarf hins sigursæla Pep Guardiola, hóf tímabilið á endurkomusigri gegn Bournemouth á heimavelli í gær á meðan að Liverpool, í sínum fyrsta deildarleik undir stjórn Andoni Iraola gerði 2-2 jafntefli gegn Newcastle United á útivelli. Neville á erfitt með að sjá City og Liverpool skáka Arsenal á tímabilinu en Arsenal hóf titilvörnina á öruggum 3-0 sigri gegn Coventry City í opnunarleik deildarinnar á föstudaginn síðastliðinn. „Arsenal ætti að vinna þessa deild með einhverjum mun. Við erum búin að sjá Tottenham tapa, Manchester United tapa, Liverpool næstum því tapa og Manchester City lenda í basli með að ná í sinn sigur á heimavelli. Allt það sem við töldum að við værum að fara sjá fyrir tímabilið er að raungerast,“ sagði Neville í hlaðvarpi sínu The Gary Neville Podcast á Sky Sports. „Það er þetta ófyrirsjáanlega eðli þessara liða á toppnum, að þau séu ekki nægilega góð til þess að fylgja á eftir því sem þau voru að gera á síðasta tímabili og tímabilin þar áður. Tapa á móti liðum sem eru vel skipulögð eins og Brentford og Hull sem og fleiri lið.“ Staðan hjá Liverpool sé sú sama og hjá Manchester City. „Þetta Liverpool lið er hvergi nærri gæðastigi hjá ensku meistaraliði. Þeir munu þurfa að leggja mikla vinnu í þetta.“ „Þá er Manchester City vel frá þeim stað sem liðið þarf að vera á. Það að missa Rodri frá sér er mikið högg,“ og á Neville þar við brotthvarf miðjumannsins Rodri til Barcelona en Rodri hefur verið einn af lykilpóstunum í sigursælu liði Manchester City undanfarin ár.
Enski boltinn Manchester City Liverpool FC Arsenal FC Manchester United Tottenham Hotspur Mest lesið Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Fótbolti Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti „Ég er oftast mjög rólegur“ Körfubolti „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ Handbolti „Ef þig vantar stoðsendingu þá bara gefur þú á hann“ Sport Elvar með stórleik í Evrópukeppninni Körfubolti Fleiri fréttir „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Verða án Sesko fram í janúar „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ „Þetta snýst ekki um mig“ „Við verðum að líta í eigin barm“ Sjá meira