Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir skrifar 23. ágúst 2026 23:44 Framundan er söguleg þjóðaratkvæðagreiðsla og mikið í húfi, því er mikilvægt að sem flestir nýti atkvæðisrétt sinn. Það einfalda við þjóðaratkvæðagreiðsluna í ágúst er að kostirnir eru bara tveir. Það er misvísandi að þeir séu ritaðir JÁ og NEI og það hefur í raun flækt umræðuna óþarflega. Nákvæmara hefði verið að ræða um valkostina SJÁ og EKKI SJÁ. Þannig myndu kostirnir umritast: JÁ = SJÁNEI = EKKI SJÁ Atkvæðagreiðslan í ágúst snýst í grunninn um hvort við viljum sjá samning milli ESB og Íslands og þar með setja slíkar viðræður milli Íslands og ESB í gang. Undir venjulegum kringumstæðum þegar boðnir eru kostirnir NEI og JÁ liggja fyrir allar upplýsingar, en ekki í þessu tilviki. Það flækir umræðurnar og má segja að bæði herferðir JÁ og NEI liða byggi að stóru leyti á getgátum þangað til að við sjáum samning. Kjósendur gera þó auðvitað sitt besta með þær upplýsingar sem þeir hafa, en óhjákvæmilega fylgir valkostunum einnig ólík ábyrgð og áhætta. Valkosturinn SJÁ (JÁ) Ef þessum valkosti er greitt atkvæði þá þarf viðkomandi ekki að kynna sér ESB alveg strax til hlítar, og ekki heldur að gera upp hug sinn um hvort Ísland eigi að ganga inn í ESB eða ekki. SJÁ þýðir í raun bæði sjá samning og sjá til. Ef meirihluti þjóðar kýs þennan valkost þá fara í gang viðræður sem leiða til þess að við sjáum samning síðar. Í kjölfarið fáum við mun ítarlegri upplýsingar og eigum auðveldara með að ræða inngöngu í ESB af alvöru og hvort það þjónar okkar hagsmunum. Valkosturinn EKKI SJÁ/ NEI Ef fólk hallast að því að greiða þessum valkosti atkvæði þá er mikilvægt að viðkomandi geri sér grein fyrir ábyrgðinni og áhættunni sem honum fylgir - og taka þá ábyrgð alvarlega og kynna sér málin eins vel og hægt er. Ef það er slegið út af borðinu að skoða samning þá gæti verið verulega mikið í húfi. Því er mikilvægt að vera eins viss og mögulegt er hvort viðkomandi vilji loka alveg á ferlið áður en hægt er að sjá samning. Ég tók saman punkta og spurningar ef það hjálpar einhverjum í eigin þekkingarleit: Gervigreindin er ekki óskeikul, en hún gæti verið gagnlegt tæki til að leita að svörum, sérstaklega ef þú biður hana að finna handa þér frumheimildir. Þetta getur verið hjálplegt í ljósi þess hve herferðirnar fyrir þessa atkvæðagreiðslu eru kappsamar. Einnig er hægt að finna margs konar lesefni á netinu og vönduð hlaðvörp. Þú gætir þurft að vera á varðbergi á samfélagsmiðlum og almennt gagnvart því að erlend stórveldi eða stórir innlendir hagsmunaaðilar reyni að hafa áhrif á atkvæði þitt. Gott er að skoða hverjir standa að upplýsingunum, hvaðan þær koma og hvort hægt sé að rekja þær til frumheimilda. Einhverjir sem hallast að því að greiða NEI atkvæði hafa áhyggjur af fullveldinu, fiskimiðunum, landbúnaði, að missa krónuna, kostnaði við ESB og að hafa ekki áhrif innan ESB. Þú getur spurt gervigreindina eða internetið um þetta allt í þaula. Því meiri upplýsingar því minni ótti, og því betri ákvörðunartaka. Hefurðu kynnt þér hvernig heimurinn hefur gjörbreyst við framgöngu Bandaríkjanna? Hvernig það hefur haft áhrif á alþjóðakerfin? Með hvaða hætti Ísland hefur byggt velmegun sína og treyst á öryggi sitt hingað til út frá þessum alþjóðakerfum? Þarf Ísland skjól og aukna samvinnu, hvort sem það er efnahagslegt, pólitískt eða út frá öryggissjónarmiðum? Hverju þurfum við skjól fyrir? Ef við kjósum að velja okkur eitthvað skjól: Hvaða stórveldi eða bandalög eru líkleg til að vera treystandi til að vernda okkur þegar við þurfum og hvaða stórveldi eða bandalög gætu verið ógn við velferð landsins? Hefur aðild Íslands að ESB einhvern fælingarmátt þegar kemur að árásum á landið út frá fjölþátta ógnum eða yfirtöku á landinu. Hefur eitthvað breyst í NATO við framgöngu Bandaríkjanna? Hvaða þættir, tengdir efnahagsmálum, náttúru og öðru, gætu haft áhrif á að staða Íslands myndi breytast til hins verra síðar? Gætu vextir á Íslandi lækkað ef við göngum í ESB, þótt við tökum ekki upp evru. Gætu þeir lækkað við upptöku evru síðar? Myndu efnahagslegar sveiflur minnka á Íslandi við að ganga í ESB? Myndi kostnaður við að lifa minnka við að ganga í ESB? Hvernig er styrkjakerfi ESB og hvernig myndi það gagnast Íslandi? Er líklegt að EES samningurinn haldi til framtíðar? Hafa EES löndin verið að reka sig á hindranir fyrir að vera ekki alveg inni í ESB? Eru einhverjar líkur á að Noregur, kjölfestan í EES, sæki um aðild að ESB? Hvað yrði þá um EES samninginn og stöðu Íslands? Hvernig er samningsstaða okkar núna? Hver er munurinn á samningsstöðu okkar núna og þegar viðræður fóru fram síðast? Hverju skiptir að velja tímasetningu þegar samningsstaða er góð? Hvaða tækifærum gæti Íslands misst af við að hafna viðræðum? Og að lokum - ertu með nægar upplýsingar til að taka ákvörðun þegar þú hefur ekki séð samninginn? Höfundur er áhugamanneskja um lýðræði og er óháð samtökum sem tengjast atkvæðagreiðslunni. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Að gera illt verra - Verðbólgan og ábyrgð stjórnvalda Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Íslenski hesturinn og ESB: Hræðsluáróður eða raunveruleg hætta? Begga Rist Skoðun Hlakkarðu til að fara í skólann? Hulda Dögg Proppé Skoðun Umsóknarferlið útskýrt fyrir kjána Elísabet Kjárr Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Brexit rútan mætt til Íslands! Andrés Pétursson Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Hver ætlar að hafa augun á boltanum? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Brexit rútan mætt til Íslands! Andrés Pétursson skrifar Skoðun Að gera illt verra - Verðbólgan og ábyrgð stjórnvalda Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Íslenski hesturinn og ESB: Hræðsluáróður eða raunveruleg hætta? Begga Rist skrifar Skoðun Landbúnaður og matvælaverð – Framtíðar þróun Guðjón Sigurbjartsson skrifar Skoðun Þegar stjórnvöld og stórfyrirtæki standa ekki við orð sín Jóhann Helgi Stefánsson,Jón Helgi Björnsson skrifar Skoðun Umsóknarferlið útskýrt fyrir kjána Elísabet Kjárr skrifar Skoðun Hlakkarðu til að fara í skólann? Hulda Dögg Proppé skrifar Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Ræður Ísland eitt við heilbrigðisverkefni framtíðarinnar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir skrifar Skoðun Ábyrg stefna í alþjóðamálum Gísli Garðarsson skrifar Skoðun Raunverulegt sjálfstæði Sandra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar
Skoðun Þegar stjórnvöld og stórfyrirtæki standa ekki við orð sín Jóhann Helgi Stefánsson,Jón Helgi Björnsson skrifar