Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Jón Þór Stefánsson skrifar 22. ágúst 2026 13:33 Ferðamaður á leið yfir Fimmvörðuháls varð skyndilega veikur og þurfti aðstoð. Landsbjörg Björgunarsveitir björguðu í gær veikum einstaklingi sem hafði verið í ferð með gönguhópi á leið yfir Fimmvörðuháls. Aðstæður voru erfiðar, í mikilli þoku, í brattri brekku, í ríflega kílómetershæð.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsbjörgu. „Upp úr klukkan hálf sex í eftirmiðdaginn í gær, föstudag, barst Neyðarlínu aðstoðarbeiðni frá sönghópi sem var á leið yfir Fimmvörðuháls, vegna skyndilegra veikinda eins úr hópnum. Staðsetning hópsins og eðli veikindanna voru þess eðlis að björgunarsveitir voru kallaðar út á mesta forgangi og fyrsta viðbragð keyrði austur að Skógum í forgangsakstri. Einnig var þyrluáhöfn boðuð út,“ segir í tilkynningunni. Þar kemur fram að talsverð þoka hafi verið á hálsinum, lágskýjað og lítið skyggni. „Ljóst var að erfitt gæti reynst fyrir þyrlu að komast að vettvangnum.“ Þá varð ljóst þegar fyrstu hópar björgunarfólks komu á staðinn að vettvangur var í brattri brekku, skammt austur af Fimmvörðuskála, í ríflega þúsund metra hæð. Mynd frá aðgerðum gærkvöldsins.Landsbjörg Boðaðar voru út björgunarsveitir víða af Suðurlandi, frá Vík í austri að Árborgarsvæðinu sem og Vestmannaeyjum, en þaðan flutti björgunarskipið Þór fjallabjörgunarmenn sem voru svo sóttir af björgunarsveitinni Dagrenningu á Hvolsvelli í Landeyjahöfn. Fyrstu hópar voru komnir á vettvang rétt um sjöleytið í gærkvöldi. Þá mun líðan sjúklings hafa verið nokkuð stöðug en sjúkraflutningamenn frá HSU sem fóru á staðinn með björgunarsveitum hófu þegar að hlúa að viðkomandi. „Þarna var ljóst að þyrla kæmi ekki að notum, en henni var þá lent á flugvellinum á Skógum og beið þar átekta ef flytja þyrfti sjúkling með hraði. Björgunarmenn hófust handa við að koma fyrir tryggingum og línum til að flytja sjúkling niður bratta brekkuna að þeim stað sem bílar og björgunartæki önnur komust, en um talsvert brattlendi er að fara sem og ís og snjó sem tekur ekki upp á þessum slóðum.“ Í tilkynningunni segir að um klukkustund síðar hafi verið búið að koma sjúklingnum niður brekkuna og í björgunarsveitarbíl sem svo flutti hann niður af hálsinum og að sjúkrabíl. Þá var ástand hans metið þannig að ekki væri þörf á flutningi með þyrlu, sem flaug þá aftur til Reykjavíkur. Frá vettvangi.Landsbjörg „Ásamt sjúklingi voru nokkrir samferðamenn hans og aðstandendur fluttir niður, sem og ferðamaður sem hafði orðið eftir í Baldvinsskála þegar hópur hans, þessum hóp ótengdur, var á göngu yfir hálsinn. Sá kenndi einhverra eymsla í baki og treysti sér ekki til að halda áfram för en hafði ákveðið að gista í Baldvinsskála og meta stöðuna að morgni.“ Alls tóku rétt um sextíu manns þátt í aðgerðinni sem var að mestu lokið um klukkan tíu í gærkvöldi. Fréttin hefur verið uppfærð. Í upprunalegri útgáfu sagði að um sönghóp hafi verið að ræða, en svo var ekki.
Björgunarsveitir Rangárþing eystra Fimmvörðuháls Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira