Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Kjartan Kjartansson skrifar 20. ágúst 2026 11:30 Lárens Belgíuprins eignaðist óskilgetið barn fyrir rúmum aldarfjórðungi. Faðir hans, Albert annar, sagði af sér sem konungur vegna faðernismáls árið 2013. Vísir/EPA Ungur belgískur bílasali var gerður að prinsi við formlega athöfn fyrr á þessu ári eftir að Lárens prins gekkst við að vera faðir hans. Bílasalinn fær þó hvorki laun frá konungsfjölskyldunni né verður hann hluti af erfðaröð hennar.
Clément Vandenkerckove, 26 ára gamall bílasali, er lausaleiksbarn Lárens prins og Wendy van Wanten, belgískrar söngkonu sem prinsinn átti vingott við rétt fyrir aldamót, nokkrum árum áður en hann giftist Klöru prinsessu árið 2003. Vandenkerckhove var tekinn inn í konungsfjölskylduna við athöfn fyrir hálfu ári en það var ekki fyrr en nú sem fréttir af því spurðust út, að sögn breska ríkisútvarpsins. Lárens prins gekkst undir faðernispróf eftir að Vanderkerchove hafði samband við hann fyrir um sex árum. Uppruni Vanderkerckhove var viðfangsefni heimildarmyndar í fyrra. Þar sagði hann frá því hvernig hann hefði kynnst föður sínum. Eplið fellur ekki langt frá eikinni í belgísku konungsfjölskyldunni því Albert annar, faðir Lárens, viðurkenndi árið 2020 að hann hefði eignast laundóttur. Hann afsalaði sér konungsembætti árið 2013 vegna hneykslismáls í kringum faðernismálið.
Belgía Kóngafólk Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Fleiri fréttir Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Sjá meira