Gæti séð fyrir sér að kjarasamningar haldi Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 19. ágúst 2026 16:24 Jakob Tryggvason er formaður Rafiðnaðarsambands Íslands. Vísir/Sigurjón Jakob Tryggvason, formaður Rafiðnaðarsambands Íslands, segist opinn fyrir því að gildandi kjarasamningar haldi. Það krefjist þó ábyrgðar af hálfu ríkis og atvinnulífs. „
Þessi stýrivaxtahækkun upp í átta prósent er klárlega endanleg sönnun þess að meginmarkmið samninganna sem við undirrituðum 2024 hafa ekki náðst, og er einmitt að þróast í aðra átt,“ segir Jakob. Hann bendir á að vextirnir séu nú langt umfram það sem vænst var þegar samið var, og að á sama tíma hafi bæði atvinnuleysi og verðbólga aukist. Jakob segir verkalýðshreyfinguna hafa sýnt og sannað að hún sé tilbúin í verkefnið framundan. „Við vinnum af ábyrgð, við gerum okkur grein fyrir vandamálinu,“ segir hann, en bætir við að hreyfingin hafi ekki fundið fyrir sambærilegri ábyrgðartilfinningu hjá öðrum aðilum samninganna. Jakob segir Rafiðnaðarsambandið tilbúið og opið fyrir samtali. „Það er margt sem hægt er að gera. Það þurfa allir að sýna ábyrgð, og aðilar þurfa að þora að taka skref sem ekki hefur oft verið beitt hér á Íslandi,“ segir hann og bætir við að sambandið sé jafnvel tilbúið með tillögur inn í samtalið. „Við gætum alveg séð það fyrir okkur að kjarasamningar gætu haldið áfram með einhverju móti,“ segir Jakob. Jakob kallar eftir breiðari þátttöku. „Augljósa myndin er þríhliða samtal Samtaka atvinnulífsins, verkalýðshreyfingarinnar og ríkisins en það þarf meira að koma til. Stóru verðmótandi fyrirtækin innan raða Samtaka atvinnulífsins, sveitarfélögin, orkufélögin og fleiri þurfa að taka þátt og sýna ábyrgð,“ segir Jakob Tryggvason, formaður Rafiðnaðarsambands Íslands
Kjaramál Kjaraviðræður 2023-25 Vinnumarkaður Mest lesið „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Innlent Bannar innflutning á kanadískum vörum Erlent Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Erlent Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu Innlent Réðust á fleiri olíuflutningaskip Erlent Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Innlent Töluðu saman í klukkutíma Erlent Fleiri fréttir Hvorki ákærðu né brotaþoli könnuðust við fíkniefnabrask Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Breytingar á innanlandsflugi vegna bilunar Langflestir upplifðu sólmyrkvann Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Kristrún flytur stefnuræðuna „Ég er hræddur við þessa menn“ Ekkert heitt vatn á Suðurnesjum í dag Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Vanti ekki fjármagn eða hjálpargögn heldur þrýsting á Ísrael Sex gistu í fangageymslu í nótt Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi „Það kostar peninga að afla peninga“ Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Íkveikja í miðborginni Rukka meira fyrir aksturinn og sérstaklega fyrir veginn Þjóðin eigi náttúrupassa skilið „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Ávarp Höllu: „Slíkur missir snertir okkur öll“ „Maður á ekki að fara í felur með það sem maður er að gera“ Ætlaður hnífur sé tannbursti sem hafi róandi áhrif „Held að ráðherra hafi slegið góðan tón í dag“ Menntavísindasvið greinir PISA-niðurstöður PISA: „Þetta er ákveðinn sorgardagur“ Hafi sest upp í bílinn fyrir mistök Svona var bein útsending Vísis frá setningu Alþingis „Við skulum bara spyrja að leikslokum“ Sjá meira