Kjartan svarar gamla stjóra sínum: „Ekki ánægjulegt að spila undir hans stjórn“ Aron Guðmundsson skrifar 20. ágúst 2026 08:31 Samstarf Stephen Robinson, þjálfara Aberdeen og Kjartan Más virðist ekki hafa verið ánægjulegt Vísir/Getty Kjartan Már Kjartansson horfir fram á bjartari tíma í atvinnumennskunni í fótboltanum eftir að hafa gengið til liðs við Brann í Noregi frá Aberdeen þar sem tækifærin voru af skornum skammti. Þjálfari Kjartans hjá Aberdeen lét áhugaverð ummæli um hann falla á blaðamannafundi. Kjartan svarar honum fullum hálsi. „
Fyrstu dagarnir hafa verið frábærir. Strákarnir hafa tekið mjög vel á móti mér, þetta hefur verið mjög gott hingað til,“ segir Kjartan í samtali við Vísi en hann er einn af fjórum Íslendingum sem eru á mála hjá félaginu. Tækifærin höfðu verið af skornum skammt fyrir Íslendinginn hjá Aberdeen í Skotlandi eftir að hann hafði gengið til liðs við félagið á síðasta ári. „Ég hef vitað af áhuganum í einhvern tíma en þetta komst ekkert á alvöru stig fyrr en bara á mánudaginn í síðustu viku. Þá frétti ég af því að þeir vildu fá mig til liðs við sig og þá voru hlutirnir fljótir að gerast. Þetta var eiginlega bara auðveld ákvörðun þegar að Brann kom til sögunnar. Það hafa margir Íslendingar komið hingað og gert vel. Þjálfarinn heillar mig sem og fótboltinn sem hann vill að liðið spili.“ Skaut á Kjartan á blaðamannafundi Eftir að Kjartan hafði verið seldur til Brann sat Stephen Robinson, þjálfari Aberdeen, fyrir svörum á blaðamannafundi þar sem að hann lét athyglisverð ummæli falla um Íslendinginn. „Kjartan gerði mér það alveg ljóst að hann vildi ekki vera hjá félaginu frá þeim degi sem ég tók við þjálfun liðsins. Við verðum að hafa það fyrir augum. Þegar að leikmaður segir þér það verður þú að reyna gera bestu mögulegu viðskiptin,“ sagði Stephen Robinson, þjálfari Aberdeen á blaðamannafundi. View this post on Instagram A post shared by BBC Sport Scotland (@bbcsportscot) Jafnframt gerði Robinson blaðamönnum á svæðinu það ljóst að Aberdeen væri vel tryggt takist Kjartani að sýna fram á þá hæfileika sem hann býr yfir innan vallar hjá Brann. „Ég vil hungraða leikmenn. Leikmenn sem vilja framar öllu öðru vera hér. Leikmenn sem vilja hlaupa í gegnum veggi fyrir Aberdeen. Þegar að einhver gerir þér það ljóst að hann vilji ekki vera hjá félaginu þá verður maður að finna bestu lausnina þar.“ „Mér fannst þetta ekki vera sanngjarnt“ Ummæli Robinson fóru ekki fram hjá Kjartani sem segir sinn gamla þjálfara ekki fara alveg með rétt mál. Léstu hann vita af þinni líðan? Að þú vildir skipta um umhverfi? „Ég reyndar gerði það ekki í byrjun hans þjálfaratíðar með félagið eins og hann sagði. Ég reyndi mitt besta til þess að vinna mér inn mínútur inn á vellinum undir hans stjórn en síðan sá ég ekki fram á að mínútunum myndi fjölga. Í þeirri stöðu lét ég hann svo vita af því í sumar að ég vildi leita annað, finna nýja áskorun á mínum ferli.“ Kjartan í einum af leikjum sínum með Aberdeen. Hér í leik gegn stórliði Celtic.Vísir/Getty Á sínum svo til stutta tíma hjá Aberdeen kom Kjartan aðeins viðsögu í níu leikjum. Hann skoraði eitt mark og lagði upp annað. Upplifun hans af stöðunni er ekki sú sama og upplifun Robinson. „Hún er ekki alveg sú sama ef ég á að vera alveg hreinskilinn. Hann er mjög ákveðinn þjálfari. Ég ætla ekki að segja að það sé erfitt að eiga við hann en það var allavegana ekki ánægjulegt að spila undir hans stjórn og hans fótboltahugmyndum.“ Eftir að hafa skynjað að mínúturnar yrðu ekki margar innan vallar í vetur var Kjartan ekki einn af þeim sem væri til í að hlaupa í gegnum veggi fyrir Robinson hjá Aberdeen. „Ég held það sé meira hann að hugsa út í að vilja leikmenn sem vildu hundrað prósent vera hjá félaginu, deyja fyrir það ef svo mætti segja. Ég var ekki einn af þeim leikmönnum eftir að ég sá fram á það hver hvernig mín tækifæri hefðu verið í vetur.“ Kjartan á að baki landsleiki fyrir öll yngri landslið Íslands. Hér er hann þó í leik með Stjörnunni þar sem að hann spilaði 67 meistaraflokksleiki áður en leið hans lá út í atvinnumennskuna. Visir/ Diego Hann telur sig hafa átt skilið fleiri mínútur innan vallar. „Mér fannst þetta ekki vera sanngjarnt ef ég á að vera alveg hreinskilinn. Mér fannst ég vera standa mig vel á æfingum, lagði mig alltaf allan fram. Við vorum í erfiðri stöðu í fyrra, nálægt fallbaráttu. Hann vildi leita í reynsluna og ég svo sem skildi það ágætlega.“ Kjartan sér ekki eftir því að hafa tekið skrefið út til Aberdeen á sínum tíma. „Ég myndi ekki segja að ég sjái eftir þessu skrefi. Ég lærði helling á þessum tíma en eftir á hyggja var þetta mjög erfiður tími. Að spila svona lítið. Það áttu sér stað miklar breytingar hjá félaginu, þetta var erfitt.“ Hittir félaga hjá Brann Kjartan horfir fram á bjartari tíma í Bergen hjá Brann þar sem að ástríða stuðningsmanna liðsins er mikil. Hjá Brann hittir hann fyrir fyrrverandi félaga sinn hjá Stjörnunni hér heima, Eggert Aron Guðmundsson. Eggert Aron Guðmundsson er leikmaður Brann í NoregiGetty/Alessandro Sabattini „Ég talaði auðvitað við hann áður en ég kom hingað og ofboðslega gott að hafa hann hérna með mér. Hann hjálpar mér mikið. Ég bý inni á honum þessa dagana. Hvernig er sambúðin? „Sambúðin er mjög fín. Hann er búinn að koma sér vel fyrir hérna.“
Norski boltinn Skoski boltinn Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Vinirnir deila heimsmetinu en hvorugur er sigurvegari Sport Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Grindavík - Stjarnan | Stórliðin þurfa sigur Körfubolti Sex handtekin vegna hrikalegs hneykslis í grískum körfubolta Körfubolti Fleiri fréttir Orri Steinn skoraði í Evrópudeildinni „Á morgun mun ég reima á mig takkaskóna í síðasta sinn“ Þrír Íslendingar í byrjunarliði Brann í Evrópusigri Sky Sports: Carrick mun stýra Man. Utd gegn Bournemouth Líf tilnefnd til tvennra verðlauna Matthías hættur hjá Val Vopnaðir ræningjar brutust inn á heimili fyrrum markmanns PSG Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Sjá meira