Kallar eftir aðhaldi bæði frá hinu opinbera og vinnumarkaðnum Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 19. ágúst 2026 14:57 Ásgeir Jónsson Seðlabankastjóri Vísir/Lýður Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka stýrivexti um 0,25 prósentustig. Þeir eru nú 8 prósent. Seðlabankastjóri var ómyrkur í máli á kynningarfundi vegna stýrivaxtahækkunar og kallaði eftir ábyrgð af hálfu aðila vinnumarkaðarins. Vildu þeir stýrivaxtalækkun gætu þeir sjálfir gripið til aðgerða, til að mynda með því að semja upp á nýtt og fresta launahækkunum.
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka stýrivexti um 0,25 prósentustig. Þeir eru nú 8 prósent. Fjórir nefndarmenn studdu þessa ákvörðun en einn vildi halda vöxtum óbreyttum. Meðal þess sem kom fram á fundi nefndarinnar á morgun er að hagvöxtur er minni en Seðlabankinn spáði, atvinnuleysi eykst, húsnæðismarkaðurinn kólnar og einkaneysla dregst saman. Vereðbólga mælist 5,3 prósent og er einkum drifin áfram af opinberum gjaldahækkunum og innflutningi.Vísir/Seðlabankinn Ásgeir Jónsson Seðlabankastjóri segir að það sem réttlæti hækkun stýrivaxta í dag sé fyrst og fremst aukin verðbólga, sem sé drifin áfram af launahækkunum á opinberum markaði, skattahækkunum, hækkunum á ýmsum opinberum gjöldum og hækkunum á ýmsum innfluttum vörum vegna stríðsátaka. „Verðbólga er 5,3 prósent og við þurfum að ná henni niður. Það sem gerðist á þessu ári er sambland af opinberum hækkunum og hækkunum á olíuverði og annarri innfluttri vöru sem hafa tekið verðbólguna upp. Við höfum brugðist við með þremur vaxtahækkunum og við vonum að með því hafi verið tekið fyrir meinið,“ segir Ásgeir. Einkaneysla dregst verulega saman.Vísir/Seðlabankinn Ásgeir auglýsti á fundi Peningastefnunefndar í morgun eftir ábyrgð frá aðilum vinnumarkaðarins. Ef þeir vilji sjá lægri vexti, séu hlutir sem þeir geti gert. Það sé til dæmis hægt að endursemja og fresta launahækkunum eða bara jafnvel bíða með þær. Aðspurður um hvort hann sé að senda verkalýðsfélögum tóninn svarar Ásgeir því neitandi. „Í fyrsta lagi þá er ég ekki að senda þeim tóninn. Alls ekki, þetta er sagt af mikilli virðingu fyrir þessum aðilum. Það sem ég er að benda á er að ef þeir vilja sjá lægri vexti, þá séu ákveðnir hlutir sem þurfa að gerast. Ég er að tala um verkalýðsfélög og atvinnurekendur. Þetta er náttúrulega sameiginleg ábyrgð þeirra. Ef þeir vilja sjá lægri vexti eru hlutir sem þeir geta gert. Síðustu ár hafa verið fordæmalausar launahækkanir og aukinn kaupmáttur, sem er gott. En við óskum eftir samfylgd af þeirra hálfu í málinu svo við getum byrjað á að lækka vexti.“ segir Ásgeir. Byrðarnar lendi á heimilum Aðspurður um hvort byrðarnar lendi ekki að stórum hluta á heimilum landsins sem þurfi nú að þola bæði versnandi atvinnuhorfur og hærri stýrivexti til að ná verðbólgunni niður svarar Ásgeir. „Að einhverju marki, já. Kaupmáttur heimilanna hefur á móti aukist umtalsvert síðustu ár. Hér kemur að einhverju marki að því hvernig við tökumst á við hagstjórnina. Peningastefnan náttúrulega bregst við stöðunni í ríkiskerfinu. Auðvitað erum við að hækka vexti til að hægja á kerfinu til að ná verðbólgunni niður til að tryggja stöðuleika. Það eru tveir aðrir armar líka, opinberi geirinn og vinnumarkaðurinn og við óskum eftir samfylgd frá þeim.“
Seðlabankinn Fjármál heimilisins Fjármálafyrirtæki Fjármálamarkaðir Mest lesið „Það eru engin fórnarlömb hér“ Viðskipti innlent Hækka stýrivexti Viðskipti innlent „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Viðskipti innlent Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Viðskipti innlent Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu Viðskipti innlent Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Viðskipti innlent Trump frestar boðuðum ofurtollum á Kanada Viðskipti erlent Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Sjá meira