Mun Guðmundur reisa Holland við? Sindri Sverrisson skrifar 19. ágúst 2026 12:07 Guðmundur Guðmundsson var síðast þjálfari Fredericia í Danmörku. EPA-EFE/Tamas Vasvari Guðmundur Guðmundsson gæti orðið næsti þjálfari hollenska karlalandsliðsins í handbolta.
Frá þessu er greint á vef Handkastsins í dag þar sem segir að Guðmundur sé í viðræðum við hollenska handknattleikssambandið. Hann hefur ekki svarað fyrirspurn Vísis vegna málsins. Guðmundur gæti því snúið aftur í landsliðahandboltann eftir að hafa áður stýrt Íslandi, Barein og Danmörku. Hann var síðast þjálfari Fredericia í Danmörku en var rekinn þaðan í september í fyrra, þrátt fyrir að undir stjórn Guðmundar hafi liðið unnið verðlaun í fyrsta sinn í 43 ár, farið alla leið í oddaleik í úrslitum dönsku deildarinnar og spilað í Evrópukeppni í fyrsta sinn. Hollendingar eru í leit að landsliðsþjálfara eftir að Svíinn Staffan Olsson hætti í sumar, í kjölfar þess að hafa mistekist að koma liðinu á HM sem fram fer í byrjun næsta árs. Hollendingar töpuðu einvígi við Grikkland, samtals með sjö marka mun, í maí. Olsson hafði verið þjálfari Hollands í fjögur ár. Undir hans stjórn fór liðið á HM árið 2023 og 2025, eftir að hafa ekki verið með á HM síðan árið 1961. Liðið hefur svo verið með á síðustu fjórum Evrópumótum og komst í milliriðlakeppnina á EM 2022 og 2024. Olsson, eða Faxi eins og hann var kallaður á Íslandi á sínum tíma, tók við Hollandi af Erlingi Richardssyni sem stýrði liðinu á árunum 2017-2022.
Handbolti Mest lesið Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Körfubolti Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Fleiri fréttir Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað Sjá meira