Framtíðin, björt eða svört? Ólafur Hannesson skrifar 18. ágúst 2026 10:00 Við höfum hér á Íslandi náð með undraverðum hætti að byggja okkur upp á innan við 100 árum úr mikilli fátækt yfir í mikla velmegun. Þetta er staðreynd sem allar mælingar styðja við þrátt fyrir bölsýnistal einhverra aðila hérna innanlands sem sjá öllu hér til foráttu. Þessi árangur er auðvitað ekki sjálfgefinn og krafðist mikillar vinnu hjá þjóðinni öll þessi ár. Vissulega gekk þetta ekki alltaf vel og þurftum við að sigla í gegnum mikið brim til að komast á þennan stað. Og það er ekkert sjálfgefið að þetta haldist með sama hætti hér áfram. Þar skiptir miklu að fólk hafi áfram trú á landi og þjóð til frekari afreka fram í tímann. Nú vill ríkisstjórnin sem virðist ekki hafa stjórn á ástandinu leiða fólk í feigðarför inn í ESB. Þau selja hugmyndina sem saklausa og að það að segja já í lok ágúst muni ekkert slæmt hafa í för með sér. Það er að sjálfsögðu margsinnis búið að fara yfir hvers vegna það sé rangt hjá þeim hvort sem það er í beinum fjármunum sem ferlið mun kosta, súrefnistapi hjá stjórnsýslunni eða töpuðum tækifærum á meðan þessari feigðarför stendur. En það er eitt atriði sem er vert að hugsa um ef þeim tekst ætlunarverkið að koma okkur alla leið inn í hið gallaða samband. Hvernig lítur framtíðin út, er hún hættulaus þarna innanborðs. Það eru margir punktar sem benda í svarta átt innan ESB. Þetta er samband sem hefur á síðustu áratugum færst meira frá því að vera hópur sjálfstæðra ríkja í samstarfi yfir í sambandsríki (Bandaríkin eru dæmi um sambandsríki) þar sem hið yfirþjóðlega stjórnkerfi fær alltaf sífellt meiri völd á kostnað aðildarríkjanna, ESB er ekki ennþá komið þangað en þetta er þróun sem ætti að hræða alla. ESB samanstendur af 27 ólíkum ríkjum með mismunandi bakgrun og menningu. En hvað er algerlega nauðsynlegt til að það nái að blómstra, jú það er að efnahagsaðstæður séu í þokkalegu standi. Ef efnahagurinn fer forgörðum þá gleymist „vinátta“ ríkjanna það fljótt. Það er reyndar ekki bara efnahagsmálin sem láta ríki gleyma „vináttunni“, þetta sýndi sig vel á tímum Covid þegar Þjóðverjar lokuðu á útflutning mikilvægra sjúkragagna til annarra ríkja, meira að segja innan Evrópusambandsins, þeirra borgarar höfðu forgang. Hagsmunir þeirra ríkis komu eðlilega fyrst. Það gerði það í Covid og mun gera það aftur, og ríkisstjórnin vill binda okkur við duttlunga þessa ríkis og annara sem ráða mestu innan ESB. Það er sérstaklega einn hlutur sem viðvörunarljósin eru þegar farin að blikka með og það eru ófjármagnaðar framtíðarskuldbindingar lífeyris í löndum á borð við Frakkland, Ítalíu, Þýskalandi og Spáni. Á Íslandi höfum við að mestu leyti sjóðsöfnunarkerfi, það er að segja að meðan við erum á vinnumarkaðnum þá erum við skikkuð til að setja hluta launa í lífeyrissjóði sem eiga svo að halda okkur uppi ef allt fer að óskum þegar við verðum eldri. Það eru t.d. þessir sjóðir sem eiga yfir 70% í smásölurisum á borð við Högum og Festi og í mörgum öðrum fyrirtækjum sem starfa hér á landi sem ákveðnir aðilar eru mjög uppteknir af að tala illa um. Velgengni lífeyrissjóða á íslandi er velgengni íslensks almennings til lengri tíma. En ólíkt Íslandi er í fyrrgreindum ríkjum og fleiri stuðst við svokallað gegnumstreymiskerfi, það er að segja að það eru þeir sem eru á vinnumarkaði í dag eru að halda uppi þeim sem eru komnir á ellilífeyri. Gegnumstreymis hugmyndin virkar þegar að þeir sem eru að vinna eru mun fleiri en þeir sem eru að þiggja ellilífeyririnn. Gallinn er hins vegar sá að aldurssamsetningin er að breytast. Við erum ekki bara farin að lifa lengur á vesturlöndum, heldur fer börnum fækkandi og hinn frægi aldurspíramídi hefur hægt og bítandi verið að snúast við, þar sem áður voru fáir á toppnum og margir að halda þeim uppi, en þeim fer fækkandi á meðan þeir sem efst eru fer fjölgandi og meðal annars með lengri lífaldur. Þetta mun að öllum líkindum leiða til mikils vanda innan þessara ríkja sem þau þurfa að takast á við. Meðal annars með hækkun lífeyristökualdurs, aukinni skattheimtu eða öðrum breytingum á kerfunum, hvað síðar tekur við er erfiðara að spá um. Þessi áföll sem virðast vera að byggjast upp munu auðvitað hafa áhrif á ESB í heild sinni, ef ríki á borð við Þýskaland og Frakkland lenda í frekari erfiðleikum vegna þessa vanda er illt í efni fyrir ESB í heild. Það er ekki hætta á að ESB seilist í lífeyrissjóði hérlendis ef þessi vandi magnast þarna úti. Það er hins vegar mikil hætta á að þetta myndi valda miklum óstöðugleika á evrunni og gjaldeyrisáhætta myndi aukast til muna. Þetta kæmi líka fram í sameiginlegum aðgerðum ESB, mögulegum útgjöldum og tekjuöflunar. Þetta þýðir auðvitað ef Ísland væri í ESB að greiðslur Íslands til ESB gætu hækkað og á sama tíma gætu hinir mögulegu “styrkir“ minnkað vegna efnahagsóróa innan ESB. Þetta er því gífurleg áhætta sem fylgir því að ganga í ESB og hefur ekkert að gera með hvaða samning Ísland getur fengið, þú getur aldrei samið þig frá svona áföllum. Framtíðin sem blasir við Íslandi er því mun bjartari utan ESB á meðan hún er svartari innan sambandsins. Ég vil forðast þessa augljósu áhættu sem steðjar að ESB. Þetta og svo margt annað er ástæðan fyrir því að ég segi nei þann 29. ágúst. Höfundur er framkvæmdastjóri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir Skoðun Halldór 22.10.26 Halldór Baldursson Halldór Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Heilbrigðisvottorð fyrir nýtt samband? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Unga fólkið borgar tvisvar – efnahagur foreldra skiptir sköpum Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Stærsta gjöfin gæti verið líffæragjöf Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson skrifar Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason skrifar Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun „Ný“ markmið í grunnskólum duga ekki Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Sjá meira
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar