ESB margfaldar áhrif smáríkja: Dæmi frá Kýpur Dominic Scott skrifar 18. ágúst 2026 08:17 Hvað getur land með færri en eina milljón íbúa fengið út úr því að ganga í samband 450 milljóna manna? Reynsla Kýpur gefur ýmislegt til kynna. Með innan við 0,25% af íbúafjölda ESB er Kýpur eitt af minnstu aðildarríkjum sambandsins, ásamt Möltu og Lúxemborg. Samt veitir aðild að ESB landinu pólitísk og diplómatísk áhrif sem eru langt umfram það sem það gæti náð upp á eigin spýtur. Sæti við borðið Kýpur hefur í grundvallaratriðum sömu stofnanalegu stöðu og hvert annað aðildarríki ESB. Landið tilnefnir einn af 27 framkvæmdastjórum Evrópusambandsins (ráðherrum á vettvangi ESB), tekur þátt í ráðherraráði ESB og á fulltrúa á Evrópuþinginu. Þetta þýðir að þegar ráðherrar ESB koma saman situr kýpverski ráðherrann við sama borð og ráðherrar frá Þýskalandi, Frakklandi, Ítalíu, Spáni og Póllandi. Flest löggjöf ESB er samþykkt með auknum meirihluta, sem krefst stuðnings að minnsta kosti 15 af 27 aðildarríkjum, sem samanstanda af að minnsta kosti 65% íbúa ESB. Stærstu ríkin geta því ekki einfaldlega þröngvað vilja sínum í gegn. Kýpur er mjög lítið aðildarríki, en það er eitt af þeim 27 ríkjum sem geta lagt sitt af mörkum til þess að mynda þann meirihluta sem krafist er. Auk þess þarf stöðvunar minnihluti að jafnaði að samanstanda af að minnsta kosti fjórum aðildarríkjum. Því gefur samstarf aðildarríkja smærri ríkjum áhrif sem eru langt umfram íbúafjölda þeirra. Kerfið veitir einnig smærri ríkjum hlutfallslega fleiri fulltrúa á Evrópuþinginu. Kýpur hefur sex Evrópuþingmenn. Áhrif þeirra á hvern íbúa eru því meiri en íbúafjöldi landsins einn og sér myndi gefa til kynna. Smáríki geta farið með forystu Aðild að ESB getur svo gefið smáríki nokkuð sem er jafnvel verðmætara en sæti við borðið en það er tækifæri til að stýra borðinu. Kýpur gegndi formennsku í ráðherraráði ESB frá janúar til júní 2026, í annað sinn. Á þessum sex mánuðum stýrðu kýpverskir ráðherrar fundum ráðherraráðsins og kýpverska formennskan tók þátt í að forgangsraða málum, skipuleggja samningaviðræður og miðla málum milli aðildarríkjanna. Formennskan veitir smáríki ekki vald til að ákveða niðurstöðuna einhliða. En hún skapar óhemju mikilvægan diplómatískan vettvang, eykur sýnileika landsins verulega meðal hinna 27 aðildarríkjanna og gefur rödd þess mun meira vægi. Landfræðileg staða getur orðið styrkleiki Kýpur sýnir einnig hvernig aðild að ESB getur aukið mikilvægi landfræðilegrar stöðu ríkis. Kýpur er eyja í austanverðu Miðjarðarhafi, nálægt Miðausturlöndum og Norður-Afríku, og gegnir því mikilvægu hlutverki á landfræðilegum jaðri Evrópu. Þetta gerir Kýpur sérstaklega mikilvægt í umræðum innan Evrópu um Miðausturlönd, fólksflutninga, orkumál og samskipti við Miðjarðarhafsríki. Þannig getur Kýpur tengt ESB við nágrannaríki sín utan sambandsins og nýtt landfræðilega legu sína til að auka diplómatískt mikilvægi sitt og áhrif Að nýta stuðning ESB til að tryggja þjóðaröryggi Skipting eyjarinnar í kjölfar innrásar Tyrklands árið 1974 hefur verið eitt af meginmálum Lýðveldisins Kýpur. Ein af stefnumótandi ástæðunum fyrir því að Kýpur sóttist eftir aðild að ESB var sú trú að með því að færa Kýpurdeiluna inn í evrópskt samhengi mætti styrkja stöðu landsins. Allt Lýðveldið Kýpur er aðildarríki ESB, þótt löggjöf ESB sé ekki virk á þeim svæðum þar sem stjórnvöld hafa ekki raunveruleg yfirráð. Þetta þýðir að Kýpurdeilan er ekki lengur eingöngu tvíhliða deila eða svæðisbundið vandamál, heldur hefur hún einnig evrópska vídd. Kýpur getur unnið að pólitískri samstöðu meðal annarra aðildarríkja ESB og fylgt hagsmunum sínum innan stofnana sambandsins. Þetta styrkir diplómatískt svigrúm landsins í viðleitni þess til að binda enda á skiptingu eyjarinnar. Í víðara samhengi veitir aðild að ESB smáríkjum aðgengi að pólitískum og diplómatískum stuðningi þegar þau standa frammi fyrir óvæntum áskorunum á sviði öryggismála. Svo hvað? Í ESB getur land sem hefur innan við 0,25% af íbúafjölda sambandsins lagt til einn af 27 framkvæmdastjórum, tekið þátt í ákvörðunum Evrópuráðsins, kosið Evrópuþingmenn, myndað bandalög við önnur ríki, stýrt samningaviðræðum og nýtt landfræðilega og diplómatíska styrkleika sína til að hafa áhrif á stefnu Evrópu. Aðild að ESB gerir smáríki ekki sjálfkrafa áhrifameira. Það veltur enn á vilja og getu ríkja til að sinna hagsmunagæslu, beita pólitískri færni, getu til að mynda bandalög og leggja af mörkum uppbyggilegt framlag til heildarinnar. En aðild skapar tækifæri sem smáríki eiga erfitt með að skapa sér sjálf. Að sitja við borðið gefur ríkjum færi á að að margfalda diplómatísk, pólitísk og stofnanaleg úrræði sem þarf til að tryggja fullveldi sitt og öryggi. Raunverulegt aðdráttarafl ESB fyrir smáríki felst því í því að þau geta áorkað mun meiru sem hluti af 27 ríkja samstarfi, þar sem unnið er að sameiginlegum hagsmunum, en ef þau standa utan sambandsins. Höfundur er írskur hagfræðingur búsettur á Íslandi frá árinu 2018. Greinin byggir á samræðum við Tasos Georgiou, fyrrum yfirmann skrifstofu Evrópuþingsins á Kýpur." Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Halldór 22.10.26 Halldór Baldursson Halldór Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Heilbrigðisvottorð fyrir nýtt samband? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Unga fólkið borgar tvisvar – efnahagur foreldra skiptir sköpum Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Stærsta gjöfin gæti verið líffæragjöf Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson skrifar Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason skrifar Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun „Ný“ markmið í grunnskólum duga ekki Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Ákall um samstarf – Ekki bara samtal Anton Kári Halldórsson skrifar Sjá meira
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar