Loksins sameinuð! Martha Árnadóttir skrifar 17. ágúst 2026 11:17 Ekkert sameinar sundurleitan hóp jafn hratt og sameiginlegur óvinur. Það sést vel í fylkingu þeirra sem nú ætla að segja nei við því að Ísland hefji að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið. Þar standa hlið við hlið einstaklingar og hópar sem eru ósammála um nánast allt sem máli skiptir í íslensku samfélagi. Þeir vilja ólíkt samfélag, hafa ólíka sýn á lýðræði og alþjóðasamvinnu og eru algerlega ósammála um hvernig eigi að fara með völd og auðlindir þjóðarinnar. Samt setja þeir krossinn á sama stað. Sameiningaraflið er ekki sameiginleg framtíðarsýn fyrir Ísland heldur sameiginlegur andstæðingur: Brussel. Sameiginlegur óvinur er sterkt pólitískt afl. Þegar búið er að draga upp mynd af utanaðkomandi valdi sem ætlar að taka af okkur sjálfstæðið, auðlindirnar og réttinn til að ráða eigin málum verður auðvelt að fylkja fólki saman. Þá skiptir minna máli hversu ólíkir samherjarnir eru eða hvort rök þeirra stangast á. Þetta getur afvegaleitt hið skynsamasta fólk. Þegar óttinn við sameiginlegan óvin tekur völdin hættum við að spyrja erfiðra spurninga. Við horfum fram hjá því hverjir standa við hlið okkar og hvers vegna. Við spyrjum ekki hvað eigi að taka við ef óvinurinn er sigraður. Og við spyrjum allra síst hvort myndin sem dregin hefur verið upp af honum sé sönn. Evrópusambandið verður þannig að hentugu pólitísku skrímsli. Sumir sjá þar sósíalískt regluveldi sem vill stjórna fyrirtækjum, veikja landamæri og færa völd frá þjóðríkjum. Aðrir sjá frjálshyggjubandalag sem þjónar stórfyrirtækjum og fjármagnseigendum og þrengir möguleika ríkja til að reka öfluga velferðarstefnu. Hvort tveggja getur tæpast verið rétt í þeirri einföldu mynd. En mótsögnin hættir að skipta máli þegar búið er að ákveða hver óvinurinn er. Þá geta hægri þjóðernissinnar, gamalreyndir vinstrimenn, atvinnurekendur, verkafólk, sósíalistar og íhaldsmenn staðið saman og hrópað nei - þótt þeir yrðu ósammála um nær allt sem gerðist daginn eftir. Það ætti að vekja okkur til umhugsunar. Sérstaklega vegna þess að við erum ekki að greiða atkvæði um aðild að Evrópusambandinu. Við erum að greiða atkvæði um hvort hefja eigi viðræður. Ef þær leiða til samnings fær þjóðin að sjá hvað raunverulega stendur til boða og taka þá endanlega afstöðu. Nei núna er því ekki höfnun á slæmum samningi. Það er höfnun á því að afla upplýsinga um hvaða samningur gæti náðst. Kannski er það einmitt þess vegna sem hin einfalda óvinamynd skiptir svo miklu máli. Samningaviðræður gætu nefnilega flækt hana. Þær gætu leitt í ljós að veruleikinn er ekki svarthvítur, að eitthvað fengist fram og annað ekki, að aðild hefði bæði kosti og galla. Þá yrði erfiðara að tala einfaldlega um Brussel sem afl sem ætlar að taka Ísland af Íslendingum. Það er líka hollt að muna að vald sem er ekki í Brussel er ekki sjálfkrafa í höndum íslensks almennings. Það getur verið í höndum fárra fjársterkra hópa hér heima sem vilja hafa valdið í friði. Sameiginlegur óvinur getur sameinað fólk um stund. En hann getur ekki komið í stað stefnu, hugsjóna eða framtíðarsýnar. Nei fylkingin veit hverjum hún vill standa gegn. En hún hefur enga sameiginlega sýn á það hvað hún vill byggja í staðinn. Hún gengur því ekki sameinuð til móts við framtíðina. Hún gengur aðeins sameinuð að kjörborðinu 29. ágúst nk. Höfundur er stjórnmálafræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Martha Árnadóttir Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Halldór 22.10.26 Halldór Baldursson Halldór Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Heilbrigðisvottorð fyrir nýtt samband? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Unga fólkið borgar tvisvar – efnahagur foreldra skiptir sköpum Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Stærsta gjöfin gæti verið líffæragjöf Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson skrifar Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason skrifar Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun „Ný“ markmið í grunnskólum duga ekki Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Sjá meira
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar