Carrick vill fá fleiri nýja leikmenn í Man United Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. ágúst 2026 17:40 Michael Carrick vill fá fleiri leikmenn til Manchester United og flestir stuðningsmenn félagsins eru sammála honum um það. Getty/Poppy Townson Michael Carrick, aðalþjálfari Manchesyer United, talaði um það að United „þurfi“ fleiri leikmenn áður en félagaskiptaglugginn lokar.
United hefur hingað til eytt 85 milljónum punda til að fá Andrey Santos frá Chelsea og Youri Tielemans frá Aston Villa. Innan við þrjár vikur eru þar til glugginn lokar þann 1. september og Carrick lætur í sér heyra. „Við erum fyrst og fremst himinlifandi með leikmennina sem við höfum fengið,“ sagði Carrick í viðtali frá æfingabúðum United á Írlandi. 🚨 Michael Carrick on signings: “We’ve got a pretty good balance in all when you lay the squad out, but of course we would like MORE…”.“We would like more, we need to keep pushing for more”, told Sky Sports.“There's one or two areas where we'd like to improve”. pic.twitter.com/2fzC5q2E1B— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) August 13, 2026 „Ég tel að við höfum bætt hópinn, við höfum bætt leikmannahópinn á mismunandi vegu – jafnvægi, gæði og stefnuna sem við viljum fara í. Ég tel að við höfum gert virkilega góð viðskipti og fengið nokkra úrvals, úrvals, úrvals leikmenn. Þannig að við erum himinlifandi með það,“ sagði Carrick „Við viljum alltaf bæta okkur, við viljum, þú veist, við viljum meira, við þurfum meira, við höldum áfram að leita leiða til að gera það, svo það stoppar aldrei. Við erum meðvituð um það og við verðum að halda áfram að þrýsta á það,“ sagði Carrick en hann hefur látið þessa skoðun sína í ljós við stjórn félagsins. United hefur verið sterklega orðað við kaup á nýjum vinstri bakverði, þar á meðal Lewis Hall hjá Newcastle. Sögusagnir eru líka um að félagið sé einnig að íhuga að bæta við þriðja nýja miðjumanninum eftir brotthvarf Casemiro og hnémeiðsli Manuel Ugarte sem munu halda Úrúgvæanum frá keppni stærstan hluta tímabilsins. Michael Carrick has told the Manchester United board that he wants to add more signings to his squadFull story by @hirstclass ⬇️https://t.co/illFfbdhgQ— Times Sport (@TimesSport) August 13, 2026 „Það eru ein eða tvær stöður þar sem við viljum bæta okkur og við teljum að það sé möguleiki á að bæta okkur,“ sagði Carrick, sem bætti við að hann myndi ekki „kasta fram neinum tölum“ varðandi fjölda nýrra leikmanna sem þyrfti á næstu 18 dögum. „En aftur, það þarf að vera eitthvað sem við getum gert sem gerir okkur betri og bætir hópinn, hvort sem það eru gæði eða smá breidd. Það er eitthvað sem við verðum að stjórna. Það er nokkuð augljóst,“ sagði Carrick.
Enski boltinn Manchester United Mest lesið Sjáðu þegar allt sauð upp úr í Kópavogi og glæsimark Sveins Íslenski boltinn Ólafur Ingi: „Mér skilst að hann hafi bara kýlt hann“ Íslenski boltinn Gætu orðið meistarar eftir vinnu á mánudaginn Íslenski boltinn Bjarni Jó hættur Íslenski boltinn Algjört bíó í Eyjum: Ótrúlegt klúður og tvö gul og rautt á sömu sekúndu Íslenski boltinn „Mikil framför en því miður ekki nóg“ Körfubolti „Margt sem við þurfum að laga“ Körfubolti Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Körfubolti KA-menn brotlentu í Garðabæ Handbolti Landsliðskonan ólétt og leggur skóna á hilluna Íslenski boltinn Fleiri fréttir Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Uppsagnir hjá Arsenal Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Lét gamminn geisa og fær að heyra það Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas „Ótrúleg tenging á milli þeirra“ Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Sjáðu mörkin: Sekt City sló leikmenn ekki út af laginu Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Fúll heim af gamla heimavellinum Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Segir Barcola ekki í vandræðum Kyssti Bentancur eftir rauða spjaldið Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Sjáðu enn eitt markið hjá Andra Lucasi Dramatík á Portman Road Sjá meira