Já til að sjá er af og frá Ólafur Hannesson skrifar 13. ágúst 2026 11:02 Það hefur verið áhugavert að fylgjast með málflutningi þeirra hópa sem vilja koma okkur inn í ESB. Í stað þess að koma fram og segja líkt og sama fólk sagði í mörg ár, að það vildi ganga inn í ESB, þá hafa þeir breytt um aðferð og segjast núna ekki vera viss hvort þau vilji inn. Þau vilji einungis sjá samning. Það væri mögulega trúverðugt ef að flestir þessara aðila hafi ekki áður tjáð sig með staðfastari hætti um inngöngu í sambandið. En gott og vel. Hverju stillir þessi hópur upp til að sannfæra fólk um að það verði nú að samþykkja feigðarför ríkisstjórnarinnar þann 29. ágúst. Það er fyrst og fremst tvennt sem þessi hópur er að stilla upp í umræðunni og hafa verið mjög dugleg að reyna að sannfæra fólk um. Annars vegar er það þvælan að hér muni vöruverð lækka á ævintýralegan hátt um allt að 25% og hins vegar að vextir munu lækka án þess að aðrar breytur hafi þar áhrif eða breytast sömuleiðis. Tökum þessa tvo hluti sérstaklega fyrir í samhengi við þjóðaratkvæðagreiðsluna í lok ágúst. Fær fólk svar við þessum tveimur spurningum þá? Nei, ekki meira en nú þegar liggur fyrir. Þessar breytur koma ekki í ljós við lok aðlögunarferlisins, þær munu ekki einu sinni báðar koma í ljós fyrr en mörgum árum eftir að við værum gengin inn í sambandið. Vextirnir og hluti verðlagsútskýringanna utan tollarökstuðningsins byggja nefnilega á því að taka upp evruna og það er langur og strangur vegur að feta. Ísland hefur fram til þessa aldrei í sögunni uppfyllt öll skilyrðin fyrir upptöku evru samtímis. Þessi skilyrði eru nefnd Maastrichtskilyrðin og fjalla meðal annars um verðbólgu, ríkisfjármál og vexti. Staðreyndin er sú að til þess að taka upp evruna þurfum við fyrst að taka til hérna heima sjálf. Evran er ekki einhver skyndilausn sem mun laga þá hluti sem fólk telur að séu ekki í lagi. Með evru koma jafnvel önnur vandamál sem sambandssinnar taka ekki með í myndina þegar þeir reyna að selja fólki hugmyndina að já-inu. Krónan hefur gert íslensku hagkerfi kleift að aðlagast betur að utanaðkomandi áföllum, með krónunni kemur ákveðin sveifluvörn sem gerir okkar litla hagkerfi kleift að komast í gegn um erfiða tíma með betri hætti en evran myndi gera. Evran sveiflast ekki í takt við íslenskt hagkerfi og geta gengisbreytingar hennar verið algerlega úr takti við það sem gerist hérlendis á meðan að krónan er mun líklegri til að sveiflast eftir hagkerfinu og þar af leiðandi veitir okkur ákveðna vörn og gerir það að verkum að þau högg sem á okkur dynja dreifast fremur á fjöldann í stað þess að mæta því t.d. með með auknu atvinnuleysi eins og meiri hætta er á með evru. Höfum það svo í huga að með evru hverfa ekki gengissveiflur, öll viðskipti sem við eigum með gjaldmiðlum utan Evrusvæðisins hafa í för með sér einhverjar gengissveiflur. Evra gagnvart bandaríkjadollar er ekki stöðug mynd heldur sveiflast þessir gjaldmiðlar sjálfstætt hvor frá öðrum, þannig hafa þessir gjaldmiðlar sveiflast töluvert í gegn um tíðina þrátt fyrir orð sambandssinna um að gengisáhætta hverfi með upptöku evru. Það virðist sem ríkisstjórnin hafi gefist upp á verkefninu sem fram undan er við að ná tökum á verðbólgu og efnahagsástandinu og þess í stað vilja þau kljúfa þjóðina næstu árin í deilum um ESB til að draga athyglina frá eigin mistökum og uppgjöf. Höfum meiri trú á okkur sem þjóðfélagi og segjum nei við þeirra feigðarför. Það er ljóst að sambandssinnar hafa reynt að fegra hlutina töluvert í sínum málflutningi þegar kemur að aðlögunarviðræðum við ESB. Það liggur nú þegar fyrir hvað ESB raunverulega er, fyrir þá sem hafa áhuga á því að kynna sér það nánar. Þessi atriði sem sambandssinnar eru að segjast vilja sjá, eins og vextir og verðlag, verða ekki í þessum samningi sem þau vilja fá. Þau vilja bara fá fólk til að segja já núna til að fara í aðildarferlið og þegar að því lýkur verði fólk komið það langt að það verði bara að fara aðeins lengra til að fá það sem það vill, gallinn er bara sá að tálsýnin sem þau eru að byggja upp fyrir fólki er ekki til, ég er ansi hræddur um að fólk muni vakna upp við vondan draum þegar raunveruleikinn skellur á þeim við enda ganganna ef það kýs að fara í þessa feigðarför. Það eina sem ég bið fólk um að gera er að kynna sér ESB vel áður en gengið er að kjörborðinu þann 29. ágúst. Upplýst atkvæði er rétt atkvæði. Ég mun segja nei og vona og hef trú á að meirihluti þjóðarinnar sé þeim megin. Höfundur er framkvæmdastjóri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Sjá meira
Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt Skoðun
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar
Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt Skoðun