,,Taktu lyfin þín“ Ása Lind Finnbogadóttir skrifar 11. ágúst 2026 17:33 Það er magnað að fylgjast með málflutningi stjórnarandstöðunnar og „Nei sinna“ þessa dagana. Það er augljóst hvað þau eru orðin örvæntingarfull enda er málflutningur þeirra fullur af rökvillum og rangfærslum og á ekkert í heilbrigða skynsemi „Já sinna“. Gott dæmi er Sigmundur Davíð í þætti Silfrisins í gær. Gjammandi stöðugt með frammíköll. En hvað á ég við með rökvillum og rangfærslum? Stærsta rökvillan er auðvitað að neita upplýsingum og þykjast vita fyrir fram hvernig lokasamningur mun líta út. Það er einfaldlega ekki hægt sama hversu vel þau þykjast vera að sér í hvernig Evrópusambandið starfar. Þau halda að þau séu spámenn sem geti séð framtíðina. Auðvitað er hægt að gera sér í hugarlund ákveðnar sviðsmyndir útfrá öðrum samningum við önnur lönd en aldrei áður hefur verið samið við eyju sem er á mótum Evrópu og Ameríku og reiðir sig svo mikið á sjávarútveginn eins og við gerum. Það er einfaldlega staðreynd að við getum ekki spáð fyrir lokasamningi með fullri vissu. Að halda öðru fram eru einfaldlega rangfærslur. Innihald gjammsins hans Sigmundar í Silfrinu var í stórum dráttum það að segja að með því að sækja um aðild og fara í samningsviðræður værum við svo gott sem gengin inn. Að við þurfum svo mikið að aðlaga okkur og breyta lögum og reglum meðan á samningsferlinu stendur. Það er eins og hann viti ekki að við erum með um 80% löggjafar okkar nú þegar í samræmi við ESB í gegnum EES samninginn. Fyrir utan það erum við mikið til með sömu gildi um lýðræði og mannréttindi þó svo að ég efist stundum um hvar Miðflokkurinn stendur þar. En þessi málflutningur er ein stór rökvilla. Að halda fram að með því að fara í samningsviðræður séum við svo gott sem gengin inn er eins og að segja að með því að smakka fyrsta bjórinn sértu hvort sem er að fara enda sem sprautufíkill á götunni. Ég kalla þetta snjóboltarökvillu. Þetta eru svo miklar ýkjur og sem byggja á ótta að þú þorir ekki í snjóboltaleik við barnið þitt því þú ert svo hræddur um að það endi með snjóflóði í fjallinu. Það þarf ekki að horfa lengra en til Noregs til að sjá að það er vel hægt að hafna inngöngu þrátt fyrir aðildaviðræður. Sömuleiðis heldur Lilja Alfreðsdóttir fram að með því að segja já í lok ágúst séum við þar með búin að afsala okkur auðlindum hafsins. Þetta er sams konar rökvilla og horft er framhjá þeirri staðreynd að þjóðin getur neitað lokasamningi í annarri þjóðaratkvæðagreiðslu síðar ef það verður staðreyndin. Núverandi stjórnvöld hafa alla vega sagt það að þau samþykki ekki slíkt og ég veit að þjóðin mun ekki gera það. En þau eru örugglega bara að hlusta á fyrrverandi forseta Ólaf Ragnar sem hefur einmitt haldið fram rangfærslu um að það verði ekki seinni atkvæðagreiðsla. Óttinn veldur ranghugmyndum. Sams konar málflutning viðhafði Páll Vilhjálmsson bloggari og fyrrverandi kollegi minn á facebook síðu í gær. Þegar ég benti honum á rökvillurnar og spurði hann einfaldlega hvernig hann gæti neitað upplýsingum sem fyrrum kennari og blaðamaður, svaraði hann: Taktu lyfin þín! Þetta er auðvitað hámark rökþrots að henda í eins persónurökvillu (ad hominem). Sjálf hef ég verið mjög opin með það á facebook að ég tek geðlyf til að glíma við mínar áskoranir í lífinu og fyrir það er ég mjög þakklát. Ég velti fyrir mér hvort ekki sé kominn tími fyrir Pál að hitta lækni og skoða slíkt hið sama. Höfundur er heimspekikennari. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Sjá meira
Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt Skoðun
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar
Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt Skoðun