Hvar eigum við heima? Martha Árnadóttir skrifar 10. ágúst 2026 18:30 Umræðan um Evrópusambandið er í algleymingi. Og eins og svo oft áður snýst hún fyrst og fremst um peninga - krónur og evrur. Hvað verður um vextina? Verður maturinn ódýrari? Hvað gerist með krónuna? Hvað kostar aðildin og hvað fáum við í staðinn? Verður evran til þess að heimilin geti loksins gert áætlanir lengra fram í tímann en til næstu vaxtaákvörðunar? Svörin vitum við ekki núna. Allt eru þetta mikilvægar spurningar. En þær eru ekki stærstu spurningarnar. Stærsta spurningin er miklu einfaldari - og um leið miklu erfiðari: Hvar viljum við Íslendingar eiga heima? Hvaða ríkjum viljum við tilheyra og samsama okkur með? Með hvaða þjóðum viljum við standa þegar reynir á? Hvaða gildi, stjórnskipan og samfélagsgerð viljum við verja? Evrópusambandið er ekki bara myntbandalag, tollabandalag eða sameiginlegur markaður. Það er pólitískt samstarf ríkja sem ákváðu, eftir tvær heimsstyrjaldir, að framtíð Evrópu skyldi byggjast á samvinnu fremur en átökum. Samstarf lýðræðisríkja sem hafa bundið sig reglum um mannréttindi, réttarríki og friðsamlega lausn deilumála. Sambandið er langt frá því að vera fullkomið. Þar er skrifræði, hagsmunaárekstrar og togstreita um völd. Sum aðildarríki hafa jafnvel gengið gegn þeim lýðræðislegu gildum sem sambandið á að verja. En það breytir ekki grundvallaratriðinu: Evrópusambandið er stærsta og metnaðarfyllsta tilraun Evrópuþjóða til að binda örlög sín saman. Íslendingar hafa lengi viljað njóta ávaxtanna af þeirri samvinnu án þess að setjast að fullu við borðið. Við erum í EES, eigum aðild að innri markaðnum og Schengen. Við tökum upp stóran hluta evrópsks regluverks en höfum takmörkuð áhrif á mótun þess. Við erum með öðrum orðum inni í húsinu en sitjum gjarnan frammi á gangi og sannfærum okkur um að þar sé okkur best borgið. Sjálfstæði smáríkis felst þó ekki endilega í því að standa eitt. Í heimi stórvelda, viðskiptastríða, innrása og vaxandi valdahyggju getur einangrun orðið veikleiki en samstaða uppspretta raunverulegs fullveldis. En þegar rætt er um hættuna á að Ísland afsali sér sjálfstæði til Brussel ættum við kannski að þora að spyrja annarrar og óþægilegri spurningar: Hverjir eiga Ísland í raun og veru í dag? Er það þjóðin öll - eða þeir sem ráða yfir stærstum hluta auðlindanna, fjármagnsins og hafa í krafti þess betri aðgengi að valdinu? Hverjir eiga fiskinn, orkuna, landið og stærstu fyrirtækin? Hverjir móta leikreglurnar og hverjir hagnast mest á því að þær haldist óbreyttar? Þegar talað er um að „afhenda Brussel Ísland“ er stundum látið eins og íslenskt sjálfstæði sé í dag fullkomlega óskipt í höndum þjóðarinnar. En fullveldi á pappír segir ekki alla söguna. Lítið samfélag getur verið formlega sjálfstætt en samt þannig upp byggt að fáir hafi langmest áhrif á efnahagslíf þess, fjölmiðla og stjórnmál. Kannski snýst andstaðan hjá sumum ekki fyrst og fremst um ótta við að íslenska þjóðin missi völd til Brussel. Kannski óttast þeir fremur að núverandi valdahópar á Íslandi missi hluta af áhrifum sínum og þurfi að sæta skýrari reglum, auknu gagnsæi og öflugra eftirliti. Það væri þá endurtekið stef í Íslandssögunni. Það er því ekki nóg að spyrja hvort við ráðum okkur sjálf. Við verðum líka að spyrja: Hverjir eru þessi „við“? Þess vegna megum við ekki smækka Evrópuumræðuna niður í spurninguna um hvort við græðum eða töpum einhverjum krónum - eða evrum - á næsta ársfjórðungi. Peningar skipta máli. Sjávarútvegur, landbúnaður og yfirráð yfir auðlindum skipta máli. En þjóðir þurfa líka að vita hverjar þær eru, hvaða gildi þær standa fyrir og með hverjum þær ætla að ganga með í framtíðinni. Já eða nei? Þegar við göngum að kjörborðinu 29. ágúst erum við formlega aðeins spurð hvort hefja eigi aðildarviðræður við Evrópusambandið að nýju. Við erum ekki kjósa um aðild. Viljum við komast að því hvaða sæti okkur stendur til boða við borð Evrópu - eða ætlum við að sitja áfram frammi á gangi? Höfundur er stjórnmálafræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Martha Árnadóttir Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Sjá meira
Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt Skoðun
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar
Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt Skoðun