Afborgunarlaus lán eru ekki neyðarúrræði – svar við dritdreifingu Halldór Jörgen Olesen skrifar 10. ágúst 2026 16:01 Á netmiðlinum Stjórnmálin.is birtist nýlega grein þar sem fullyrt er að danskt húsnæðislán mitt sé „sérstakt neyðarúrræði vegna kórónuveirufaraldursins“, að ég hafi „viðurkennt“ þetta og að lánaformið sé „mun verra en verðtryggð lán.“ Allt þetta er rangt og auðstaðfest sem rangfærsla. Þaðan af verra þá fengu rangfærslurnar dreifingu á samfélagsmiðlum og á einum stærsta fjölmiðli landsins. Mitt markmið var að vekja athygli á því að lágir vexir og fjölbreyttari lánaform (t.d. afborgunarlaus lán) væru í boði víða í Evrópu, þar sem stöðuleiki og skilirði eru til staðar. Staðreyndin er að afborgunarlaus lán hafa verið í boði í 23 ár Afborgunarlaust lán (afdragsfrit lån) er staðlað lánaform í Danmörku sem hefur verið í boði síðan 2003. Samkvæmt seðlabanka Danmerkur eru um 40% allra danskra húsnæðislána afborgunarlaus á hverjum tíma. Þessi lán eru ekki neyðarúrræði heldur hefðbundið lánaform sem milljónir Dana nota til að fjármagna húsnæði sitt. Sambærilegt lánaform er ekki í boði á íslandi. Kórónufaraldurinn skýrir hinsvegar neikvæðu vextina sem ég fékk árið 2021 en ekki lánaformið sjálft. Þá fékk ég neikvæða vexti til fimm ára. Í dag í ágúst 2026 er ég enn með afborgunarlaust lán hjá Realkredit Danmark á 2,32% föstum vöxtum. Slík lán eru í boði öllum sem standast greiðslumat og geta greitt 20% kaupverðs eignar í útborgun. Hver sem er getur staðfest þetta á rd.dk/privat. „Félagi“ er ekki heimild Höfundur greinarinnar byggir alla framsögn sína á giski ónafngreinds „félaga“ sem „taldi víst“ að lánið væri neyðarúrræði. Sú heimild er nokkuð óáreiðanleg en mig grunar hvað þar liggur að baki. Enginn sérfræðingur í dönskum fasteignalánum var spurður. Engin opinber gögn eru nefnd. Aðeins gisk einhvers á netinu sem höfundur notar sem grundvöll allrar greinarinnar. Höfundur ætti að sjá sóma sinn í að fræða lesendur um heimildina eða leiðrétta rangfærslur. Ef höfundur hefði leitað eftir andmælum mínum eða einfaldlega heimsótt vefsíðu Realkredit Danmark, hefði hann séð að fullyrðing hans er röng. „Mun verra en verðtryggð lán“ er fráleitt Höfundur segir afborgunarlaust lán vera „mun verra en verðtryggð lán.“ Skoðum þetta betur. Afborgunarlaust lán (DK) Verðtryggt lán (IS) Höfuðstóll eftir 10 ár Óbreyttur +60-80% (vegna verðbólgu) Vextir 2,32% fastir 3,5-4,5% + verðbólga (5,3%) Raunvextir 2,32% 8-9% (vextir + verðbólguáhrif) Greiðsla af 100m kr láni ~300.000 kr/mán (afborgunarlaust), Og 5 ár þar á undan ~86.000 (afborgunarlaust, neikvæðir vextir) ~800.000-900.000 kr/mán Eftir 10 ár er skuldin 100m kr 160-180m kr Höfuðstóll míns láns stendur í stað. Á verðtryggðu íslensku láni hækkar hann árlega. Eftir 10 ár skuldar íslenskur lántakandi 60-80% meira en hann tók að láni. Ég skulda það sama. Hvort er „verra“? Ég „viðurkenndi“ ekkert Höfundur heldur því fram að ég hafi „viðurkennt“ að lánið sé neyðarúrræði. Þetta er rangt. Ég útskýrði hvernig lánaformið virkar, þ.e. að þetta er afborgunarlaust lán þar sem eingöngu eru greiddir vextir og umsýslugjald í allt að 10 ár. Að útskýra er ekki að viðurkenna. Höfundur snýr útúr orðum mínum af ásettu ráði. Það er ekki í fyrsta sinn sem netmiðillinn Stjórnmálin.is snýr útúr orðum fólks eða drefir rangfærslum. Hvað ég viðurkenni Ég viðurkenni eitt: Ég hefði átt að útskýra lánaformið betur í myndbandinu. Það voru mistök af minni hálfu. Ég geri mér grein fyrir því núna að afborgunarlaus lán á lágum vöxtum eru svo fjarræn íslenskum lántakendum að það er nánast ómögulegt að útskýra. Fyrsta hugsun íslenskra lántakenda er að „greiða lánið upp“ og framreikna hve langan tíma það tekur í mánuðum og árum. Það er skiljanlegt þegar lán á Íslandi hækka svo mikið að söluverð eignar að frádregnum skuldum minnkar og eignamyndun verður neikvæð, þrátt fyrir himinháar mánaðarlegar greiðslur. Efnisatriðið stendur óhaggað – að ég borga 2,32% vexti af afborgunarlausu láni í Danmörku. Slíkt lánaform stendur öllum Dönum, Hollendingum og Norðmönnum til boða. En það er ekki til á Íslandi. Íslendingar borga 7-9% vexti með verðtryggingu til viðbótar, hafa engan aðgang að afborgunarlausum lánum, og búa við fákeppni þriggja banka. Spurningin er af hverju Íslendingar hafa ekki aðgang að sömu lánaformum og kjörum og aðrar Evrópuþjóðir? Svarið er ekki „vegna þess að þetta er neyðarúrræði.“ Svarið er kerfi sem þjónar fáum á kostnað margra. Kerfi sem pínir almenning til að greiða himinháa vexti til viðbótar við verðtryggingu. Ef það væri eitt orð sem ég gæti notað yfir það kerfi, þá er það þrældómur. Íslensk heimili eiga rétt á að þau séu losuð undan slíkum þrældómi. Hvað gerðist næst? Skömmu eftir að greinin um lánið mitt birtist á vefnum Stjórnmálin.is birtist grein í Mannlífi með fyrisögninni „Sannleikurinn á bak við „ódýra“ danska lánið”. Þar eru ósannindin frá Stjórnmálin.is lapin upp án athugasemda. Enginn hjá Mannlífi hafði samband við mig eða kannaði sannleiksgildi þess sem sagt var í greininni á Stjórnmálin.is. Ég gerði hvað hægt var til að lagfæra ósannindinn en án verulegs árangurs. En svo tók einn stærsti fjölmiðill landsins ósannindin um lánið mitt sem dæmi um „upplýsingaóreiðu“ í vinsælu hlaðvarpi (7. ágúst). Enn á ný var ekkert gert til að sannreyna rangfærslurnar. Lygin sem hóf ferð sína á netmiðlinum Stjórnmálin.is endaði í allsherjar dritdreifingu á samfélagsmiðlum og á einum stærsta fjölmiðli landsins. Þáttastjórnandi hlaðvarpsins hefur sjálfur fyrr á þessu ári neitað að „rökræða við mann sem hefur það augljóslega að stefnu sinni að höggva til sín (mín).“ Ég skil vel af hverju hann gerir það ekki, því hann vill ekki kanna heimildir og vill ekki vita sannleikann. Það hentar honum ekki, né elítunni sem hann þjónar. Þá leikur mér forvitni að vita, hver elur á upplýsingaóreiðu og af hverju? Ef þáttastjórnandi hlaðvarpsins vill vita sannleikann mæti ég með glöðu geði til hans í næsta þátt með hvern einasta greiðsluseðil. Þ.e.a.s. ef hann þorir að vita sannleikann. Spurningin er einföld: Af hverju hafa Íslendingar ekki aðgang að sömu lánaformum og kjörum og aðrar Evrópuþjóðir? Svarið er ekki „vegna þess að þetta er neyðarúrræði.“ Svarið er kerfi sem þjónar fáum á kostnað margra. Og því ástandi vilja sumir viðhalda. Höfundur er útgefandi Verðbólguvaktarinnar (verdbolga.net). Hann hefur búið í Danmörku í 8 ár. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Halldór 22.10.26 Halldór Baldursson Halldór Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Heilbrigðisvottorð fyrir nýtt samband? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Unga fólkið borgar tvisvar – efnahagur foreldra skiptir sköpum Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Stærsta gjöfin gæti verið líffæragjöf Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson skrifar Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason skrifar Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun „Ný“ markmið í grunnskólum duga ekki Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Ákall um samstarf – Ekki bara samtal Anton Kári Halldórsson skrifar Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar
Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar