Sport

Íþrótta­manni ársins leið ekki eins og íþrótta­manni

Aron Guðmundsson skrifar
Eygló Fanndal Sturludóttir var valin íþróttamaður ársins 2025 eftir frábært ár þar sem að hún varð Evrópumeistari en hefur síðan þá gengið í gegnum afar erfitt tímabil.
Eygló Fanndal Sturludóttir var valin íþróttamaður ársins 2025 eftir frábært ár þar sem að hún varð Evrópumeistari en hefur síðan þá gengið í gegnum afar erfitt tímabil. Vísir/Hulda Margrét

Íþróttamaður ársins 2025, lyftingakonan Eygló Fanndal Sturludóttir hefur mátt þola mikla erfiðleika frá því að hún varð Evrópumeistari á síðasta ári. Á tímum efaðist um sjálfa sig sem íþróttamann en sér nú fyrir endann á erfiðleikunum, klár í að láta til sín taka á nýjan leik.

Eygló stóð á toppnum í apríl á síðasta ári er hún tryggði sér Evrópu­meistara­titilinn í Ólympískum lyftingum. Nokkrum mánuðum seinna tók við tók við krefjandi tíma­bil, meiðslum hrjáð sem fyrst nú sér fyrir endann á.

„Fyrir um það bil ári síðan, 1. ágúst í fyrra, vakna ég einn morguninn og get ekki klætt mig í sokka. Bakið farið,“ segir Eygló í sam­tali við íþrótta­deild Sýnar.

Féll í jörðina

Þegar Eygló var við það að komast til baka í mars á þessu ári meiddist hún aftur, reif brjóskþófa í mjóbaki á æfingu og var flutt með sjúkra­bíl á sjúkra­hús.

„Það var áfall. Ég var bara á æfingu og allt í einu fann ég fyrir biluðum sárs­auka. Gat ekki staðið í lappirnar og var sótt með sjúkra­bíl og farið með mig upp á spítala.“

Sjálfsímynd tvinnuð við íþróttina

Hún hefur mátt sætta sig við endur­hæfingar­ferli fjarri þungum lyftingum. Stuðnings­net greip hana, meðal annars hjá Af­rek­smiðstöð Ís­lands, því and­leg líðan tók högg. Eygló efaðist um sjálfa sig sem íþrótta­mann.

„Sjálfsí­myndin er svo ótrú­lega tvinnuð saman við íþróttina. Ég er ein­hvern veginn bara Eygló lyftinga­kona. Svo ein­hvern vegin ertu það ekki. Ert allt í einu bara heima að gera æfingar frá sjúkraþjálfara.“

Eygló var verðskuldað kjörin íþróttamaður ársins 2025 eftir frábært ár í ólympískum lyftingum.Vísir/Hulda Margrét

„Að verða íþrótta­maður ársins en vera svo ekki að æfa. Ég átti mjög erfitt með það fyrst. Leið ein­hvern veginn ekkert eins og íþrótta­manni. En núna, eftir að hafa hugsað meira um það, þá finnst mér þetta eigin­lega vera eitt það íþrótta­manns­legasta sem maður getur gert. Að lenda í svona mikilli áskorun, svona miklu mótlæti en halda samt áfram. Reyna að komast í gegnum það, vinna sig upp aftur. Ég hef lært að hugsa þetta upp á nýtt. Þetta er líka íþrótta­manns­legt.“

Óvenju­legt ár í læknis­fræði

Sam­hliða því að vera af­reksíþrótta­maður stundir Eygló nám í læknis­fræði við Háskóla Ís­lands. Hún er nýbúin að ljúka fimmta ári sínu í náminu, því erfiðasta til þessa.

„Fimmta árið var erfiðasta árið mitt. Bæði af því að ég var ekki með útrásina sem felst í því að fara á æfingu og ég á að reyna sitja sem minnst. Sér í lagi þegar ég var nýbúin að meiða mig. Það var tönglast á því við mig að kyrr­seta væri mjög slæm. Það var því mjög erfitt að læra fyrir próf og geta ekki sest niður, erfitt að sitja í tímum. 

Kyrrseta var ekki í boði fyrir Eygló og því þurfti hún að finna fjölbreyttar leiðir til þess að læra í læknisfræðinniMynd: Eygló Fanndal á Instagram

Ég þurfti að finna alls konar leiðir til þess að sinna náminu án þess að mega setjast. Ég var alltaf með það í hausnum að eitt­hvað væri ekki gott fyrir bakið.“

Þannig þú hefur lært í ýmsum stellingum?

„Já ég hef verið liggjandi á gólfinu með bókina upp í lofti að lesa og allt. En það tókst. Eitt ár eftir. Ég hlýt að geta klárað þetta.“

Gefur allt sem hún á

Eygló fer hægt en örugg­lega í sakirnar á ein­hverja mánuði eftir í endur­hæfingar­ferlinu en þyrstir í að komast aftur á keppnis­gólfið. Augun á Ólympíu­leikunum 2028 í Los Angeles.

„Ég stefni á að byrja keppa á næsta ári. Taka þátt á öllum þeim mótum sem ég þarf að þátt í til þess að komast inn.

Ég verð bara að fá að sjá hvernig líkaminn svarar. Ef hann svarar vel þá er ekkert að fara stoppa mig. Þá ætla ég að gera allt sem ég get til að fara inn á þetta mót.“

Stefnan sett á Ólympíuleikana.IWF/G.Scala

Það yrði stoltasta stundin á ferlinum að ná inn á Ólympíu­leikana.

„Ef árið er 2028 og ég kemst inn á Ólympíu­leikana og horfi síðan til baka. Þá held ég að það sé ekkert sem geti gert mig stoltari heldur en að hafa komist í gegnum þetta. Alla þessa erfið­leika, áskoranir en samt haldið áfram og samt náð því sem ég ætlaði að gera. Ég reyni að finna þá til­finningu. Stoltið sem ég myndi finna ef ég kæmist inn. Reyni að halda í það. Nota það sem hvatninguna áfram. Þetta er það sem ég vil upp­lifa. Ég reyni að halda áfram þar til ég næ að upp­lifa þessa til­finningu.“

Viðtalið við Eygló Fann­dal má sjá í spilaranum hér ofar í fréttinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×