Rigning og súld á öllu landinu Lovísa Arnardóttir skrifar 7. ágúst 2026 07:18 Vindur á að verða leiðinlega stífur á morgun, þá gagnast regnhlífin lítið. Vísir/Vilhelm Í dag er spáð norðaustan 10-15 m/s norðvestantil á landinu í dag, en 5-10 sunnan- og austanlands. Samkvæmt hugleiðingum veðurfræðings má búast við rigningu og súld á öllu landinu og að hiti verði á bilinu sjö til 12 stig.
Í hugleiðingum kemur einnig fram að á morgun dreifist vindurinn jafnar yfir landið og verður leiðinlega stífur, norðanátt á bilinu 8-15 m/s. Það á þá að hanga þurrt að mestu í suðvesturfjórðungi landsins, en annars staðar á víða að vera rigning og talsvert úrkomumagn er í vændum á Austurlandi ef að líkum lætur. Hiti á morgun 6 til 16 stig, mildast syðst. Kólnar heldur annað kvöld og dregur úr úrkomu. Á sunnudaginn á síðan að draga úr norðanáttinni. Enn má búast við dálítilli vætu og svölu veðri á Norður- og Austurlandi. Sunnan- og vestanlands ætti hins vegar að verða bjart veður með hita 15-16 stig þegar best lætur. Á vef Vegagerðarinnar er varað við ákveðinni norðaustanátt í dag með vindhviðum um 25 m/s í vindstrengjum á Vestfjörðum, þá einkum á fjallvegum. Einnig verði snarpar vindhviður, um 25 m/s, á sunnanverðu Snæfellsnesi eftir hádegi. Í tilkynningu segir að snemma á morgun, laugardag, eigi svo að draga úr vindi á Vestfjörðum. Greiðfært er þó um allt land en þó er bent á að viðgerðir og aðrar vegaframkvæmdir eiga sér nú stað um allt land. Búast má við steinkasti og jafnvel töfum vegna þessarar vinnu. Hraði er tekinn niður á flestum vinnusvæðum og er gott að halda 50 metra á milli bíla til að minnka líkur á skemmdum vegna steinkasts. Vegfarendur eru beðnir um að sýna aðgát og tillitssemi. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Norðan og norðaustan 8-15 m/s. Þurrt að kalla í suðvesturfjórðungi landsins, annars víða rigning og talsverð úrkoma á Austurlandi. Hiti 6 til 16 stig, mildast syðst. Kólnar um kvöldið og dregur úr úrkomu. Á sunnudag: Norðan og norðvestan 5-10. Dálítil rigning á Norður- og Austurlandi og hiti 5 til 10 stig. Bjartviðri sunnan- og vestanlands með hita að 16 stigum. Á mánudag: Vestlæg átt 3-8 og víða léttskýjað með hita 11 til 17 stig yfir daginn. Á þriðjudag: Hæg breytileg átt og yfirleitt léttskýjað. Hiti 12 til 18 stig að deginum. Þykknar líklega upp sunnanlands um kvöldið. Á miðvikudag (almyrkvi á sólu): Austan og norðaustan 5-13 og rigning sunnan- og austanlands, en skýjað með köflum og yfirleitt þurrt á Norður- og Vesturlandi. Hiti frá 8 stigum við austurströndina, upp í 18 stig á Suðvesturlandi. Á fimmtudag: Fremur hæg breytileg átt. Skýjað að mestu og dálítil væta í flestum landshlutum. Hiti víða 10 til 15 stig.
Veður Færð á vegum Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Fleiri fréttir Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Sjá meira