Bein útsending: Kynna skýrslu um áhrif ESB á bændur Árni Sæberg skrifar 6. ágúst 2026 09:38 Trausti Hjálmarsson er formaður Bændasamtaka Íslands og mun ávarpa fundinn. Vísir/Anton Brink Bændasamtök Íslands boða til blaðamannafundar þar sem kynnt verður skýrsla milliþinganefndar Bændasamtaka Íslands sem fjallar um áhrif mögulegrar aðildar Íslands að Evrópusambandinu á íslenskan landbúnað. Fundinn má sjá í beinni útsendingu á Vísi.
Í tilkynningu þess efnis segir að skýrslan sé afrakstur umfangsmikillar vinnu sem unnin hafi verið á undanförnum mánuðum í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar í lok þessa mánaðar um hvort hefja eigi að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið. Á Búnaðarþingi í mars síðastliðnum hafi sjö manna milliþinganefnd verið skipuð og fengið það hlutverk að greina hvaða áhrif möguleg Evrópusambandsaðild og aðildarviðræður gætu haft á íslenskan landbúnað. Nefndin hafi nú lokið störfum með útgáfu umræddrar skýrslu. Í störfum nefndarinnar hafi verið lögð áhersla á að efni skýrslunnar myndi byggjast á traustum og áreiðanlegum heimildum. Þannig hafi við vinnuna verið stuðst við fræðilegar rannsóknir, opinber gögn, viðeigandi réttarheimildir, dómafordæmi Evrópudómstólsins, reynslu og fordæmi aðildarríkja Evrópusambandsins sem og fyrri aðildarviðræður Íslands við sambandið. Þá hafi nefndin fundað bæði með innlendum og erlendum sérfræðingum, sem hafi ólíka sýn á viðfangsefnið. Dagskrá fundarins: Ávarp Trausta Hjálmarssonar, formanns Bændasamtaka Íslands Sigurbjörg Ottesen, formaður milliþinganefndar, fer yfir skýrsluna og helstu niðurstöður hennar Fyrirspurnir fjölmiðla þar sem setið verður fyrir svörum Upptöku frá fundinum má sjá í spilaranum hér að neðan: Klippa: Kynntu skýrslu um áhrif ESB á bændur
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Landbúnaður Mest lesið „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Innlent Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Erlent Ætla að brenna rusl og skapa orku Innlent Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Innlent Fleiri fréttir Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Sjá meira