„Fæ einhverja skepnu á blindu hliðina“ Valur Páll Eiríksson skrifar 2. ágúst 2026 16:36 Böðvar Böðvarsson, fyrirliði ÍA, vildi fá víti í stöðunni 2-2. Hann er svekktur að Skagamenn hafi ekki tekið öll þrjú stigin í dag. vísir/Guðmundur Böðvar Böðvarsson, fyrirliði ÍA, segir vonbrigði að hafa ekki unnið Íslandsmeistara Víkings í 2-2 jafntefli liðanna í Bestu deild karla á Akranesi í dag. Böðvar vildi víti seint í leiknum en fékk ekki.
ÍA var sterkari aðilinn í leik dagsins. Liðið komst tvisvar yfir og fékk tvö glimrandi fín færi til að skora þriðja markið þegar um tíu mínútur voru eftir. Böðvar segir vonbrigði að hafa ekki unnið leikinn. „Mjög svekkjandi. Það voru allar forsendur fyrir því að taka þrjú stig hérna í dag. Þeir eru í miklu prógrammi og Þór sýndi að það er alveg hægt að taka stig af þeim. Við vorum mjög vongóðir fyrir þennan leik en því miður náðum við ekki að taka þau öll,“ segir Böðvar við Sýn Sport eftir leik. ÍA komst tvisvar yfir en í bæði skipti jafnaði Víkingur innan við þremur mínútum síðar. „Það er mjög pirrandi. Það hefði getað gefið okkur aðra leikmynd ef við hefðum náð aðeins að settla leikinn. Ég skil ekki alveg hvernig við getum fengið á okkur þessi mörk snemma á okkur tvisvar. Það er eitthvað sem við þurfum að fara yfir sem hópur. En ef maður ætlar að líta á glasið hálf fullt er mikil bæting á spilamennsku liðsins og að vera ósáttur eftir jafntefli við Víking er jákvætt,“ segir Böðvar. Markús Páll Ellertsson fékk dauðafæri þegar um tólf mínútur voru eftir og skömmu síðar féll Böðvar innan teigs eftir að hafa lent saman við Ögmund Kristinsson, markvörð Víkings. Boltinn féll fyrir Viktor Jónsson sem tókst ekki að hitta markvarðarlaust mark Víkings. Böðvar segir með ólíkindum að hann hafi ekki fengið víti á Ögmund. „Mér finnst þetta vera pjúra víti,“ segir Böðvar og hálf hlær. „Ég er fyrstur á boltann og fæ svo bara einhverja skepnu á blindu hliðina á mér. Ég veit ekki hvernig þetta getur ekki verið víti. Ég veit ekki hvernig þetta lítur út í sjónvarpinu en ég sé þetta þannig að ég fari fyrst í boltann og fæ hann á blindu hliðina. Það er víti í öllum mínum bókum.“
ÍA Víkingur Reykjavík Besta deild karla Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Segir félagið í skítnum Enski boltinn Fleiri fréttir Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjá meira