Komnir með fleiri stig en í fyrra og eiga enn tíu leiki eftir Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 2. ágúst 2026 11:46 Framarar hafa glatt stuðningsmenn sína með góðum árangri í sumar. vísir/diego Með sigrinum á ÍBV í Þjóðhátíðarleiknum í gær toppaði Fram stigafjölda sinn frá síðasta tímabili. Liðið á enn eftir að spila tíu leiki í Bestu deild karla í sumar.
Fram gerði góða ferð til Vestmannaeyja og vann 1-2 sigur á ÍBV í gær. Framarar komust yfir á 16. mínútu þegar Sigurður Arnar Magnússon skoraði sjálfsmark og einni mínútu fyrir hálfleik skoraði Freyr Sigurðsson úr vítaspyrnu. Vicente Valor minnkaði muninn í 1-2 úr öðru víti á 78. mínútu en nær komust Eyjamenn ekki. Með sigrinum í gær komst Fram upp í 2. sæti Bestu deildarinnar og verður þar allavega þangað til á miðvikudaginn þegar KR, sem er í 3. sætinu, sækir FH heim. Í fyrstu sautján leikjum sínum í Bestu deildinni í sumar hefur Fram náð í 37 stig. Það er einu stigi meira en liðið fékk allt síðasta tímabil, í 27 leikjum. Framarar eru líka búnir að skora meira en allt síðasta tímabil. Þá gerðu þeir 41 mark í 27 leikjum en eru núna komnir með 43 mörk í sautján leikjum, eða 2,5 mörk að meðaltali í leik. Fimmtán leikmenn hafa skorað fyrir Fram í sumar. Fram endaði í 5. sæti í fyrra sem var besti árangur liðsins síðan 2010. Þá enduðu Framarar einnig í 5. sæti. Freyr Sigurðsson hefur leikið sérlega vel fyrir Fram að undanförnu.vísir/diego Líklegt þykir að Fram toppi þennan árangur í sumar en liðið er átta stigum á undan Breiðabliki sem er í 4. sætinu og átján stigum á undan Val sem vermir 5. sætið. Fram er svo sex stigum á eftir toppliði Víkings sem á leik til góða. Fram endaði í 3. sæti 2008 en það er besti árangur liðsins á þessari öld. Fram lék síðast í Evrópukeppni 2014 eftir að hafa orðið bikarmeistari árið á undan. Næsti leikur Fram er gegn KR á heimavelli mánudaginn 10. ágúst. Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, tekur þá út leikbann en hann fékk rautt spjald gegn ÍBV. Þrír leikmenn Fram fengu einnig sitt fjórða gula spjald á tímabilinu gegn ÍBV og verða því fjarri góðu gamni gegn KR. Þetta eru þeir Ægir Jarl Jónasson, Israel García og Sigurjón Rúnarsson. Fram endurheimtir hins vegar fyrirliðann Kennie Chopart sem var í banni gegn ÍBV. Fram er á sínu fimmta tímabili í Bestu deildinni eftir að hafa leikið í næstefstu deild á árunum 2015-21. Framarar enduðu í 9. sæti 2022 og 2024, 10. sæti 2023 og 5. sæti í fyrra eins og áður sagði.
Besta deild karla Fram Tengdar fréttir Rúnar fékk rautt: „Örstutt bræðiskast“ Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, var ánægður með sigurinn á ÍBV, 1-2, í Þjóðhátíðarleiknum. Hann hafði ýmislegt við dómgæsluna að athuga og fékk rauða spjaldið undir lok leiks. 1. ágúst 2026 16:57 Mest lesið „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Engin uppalin spilaði með Fram Íslenski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Fleiri fréttir Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór Sjá meira
Rúnar fékk rautt: „Örstutt bræðiskast“ Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, var ánægður með sigurinn á ÍBV, 1-2, í Þjóðhátíðarleiknum. Hann hafði ýmislegt við dómgæsluna að athuga og fékk rauða spjaldið undir lok leiks. 1. ágúst 2026 16:57