Innlent

Sumar­hús við Þing­valla­vatn eyði­lagðist í elds­voða

Rafn Ágúst Ragnarsson og Eiður Þór Árnason skrifa
Slökkvilið náði að hefta útbreiðslu eldsins.
Slökkvilið náði að hefta útbreiðslu eldsins. Aðsend

Eldur kviknaði í sumarhúsi við Þingvallavatn á laugardagskvöld og varð húsið fljótt alelda. Greiðlega gekk að ná niðurlögum eldsins og var slökkvistarfi lokið um eittleytið í nótt. Húsið er talið gjöreyðilagt.

Dvalið var í sumarhúsinu þegar eldurinn kom upp en allir komust út og enginn er talinn slasaður. Um er að ræða sumarhúsið við Birkilund 12 í landi Miðfells.

Lárus Kristinn Guðmundsson, settur slökkviliðsstjóri Brunavarna Árnessýslu, segir lítið vitað um eldsupptök á þessu stigi og þau verði rannsökuð af lögreglu. Búið var að slökkva í glóðum um klukkan eitt en tilkynning barst um eldinn um klukkan 21:20. 

„Það þurfti að flytja vatn þangað og við þurftum að sækja það með tankbílnum en það gekk bara mjög vel,“ segir Lárus.

Slökkviliðsmenn frá Selfossi og Laugarvatni tóku þátt í slökkvistarfinu.

Sumarhúsið stóð um tíma í ljósum logum. Lárus beinir því til sumarhúsaeigenda að huga að almennum eldvörnum og fjarlægð frá gróðri. „Þarna var stutt í gróður en slökkviliðsmenn náðu að halda því niðri.“ 

Fréttin hefur verið uppfærð með upplýsingum um lok slökkvistarfs.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×