Borgarísjaka rekur í átt að Skagafirði Sigurgeir Þorkelsson skrifar 30. júlí 2026 17:16 Stíf norðaustanátt gæti fært ísjakann beint í fang Skagfirðinga. Innsent „Það er ísjaki sem lónar fyrir utan Straumnesvita. Þetta er heljarinnar fleki,“ staðfestir Sjöfn Guðmundsdóttir sem búsett er í Fljótum, um miðja vegu milli Hofsóss og Siglufjarðar. „En hann er alveg úti við sjóndeildarhring enn þá.“ Bílar eru þegar farnir að keyra út að Straumnesvita til að berja hann augum, segir Sjöfn. Hún segir stífa norðaustanátt ríkja á svæðinu og vel kunni að vera að hann reki inn á Skagafjörð. Straumnesviti, þar sem fólk safnast nú saman til að berja borgarískjakann augum, er hér merktur inn með rauðum fána. Já.is „Það hafa verið landfastir borgarísjakar hjá okkur stundum,“ segir Sjöfn en ekki er um óvæntan gest að ræða. „Ég hef verið að bíða eftir þessu, ég er búin að eiga von á þessu undanfarið.“ Sjöfn staðfestir að um borgarísjaka sé að ræða. „Hann er bara ansi stór. Hann er hérna á oddanum við vesturenda Skagafjarðar, hann ber í sjóndeildarhringinn. Hann stendur ekkert hátt upp sko, hann er frekar flatur.“ Myndin sýnir staðsetningu borgarísjaka í síðasta ískönnunarflugi Landhelgisgæslunnar. Veðurstofa Íslands Flugvél Landhelgisgæslunnar flýgur regluleg ískönnunarflug. Í lýsingu könnunarflugs sem farið var fyrir þremur dögum, þann 27. júlí, er sagt frá tveimur stórum borgarísjökum, einum um 400 metrar á lengd og hinum um 200 metrar á lengd. Síðasta könnunarflug var flogið daginn eftir en Landhelgisgæslan sagði að sér hefðu ekki borist ábendingar um að jakinn færðist nú nær landi og að ekki væri hægt að staðfesta að farið yrði slíkt ískönnunarflug á morgun, föstudag. Átt þú myndir eða frásagnir af borgarísjakanum sem rekur nær landi við Skagafjörð? Við tökum á móti öllum upplýsingum á ritstjorn@visir.is eða í síma 512-5200. Veðurstofu Íslands höfðu sömuleiðis ekki borist ábendingar um borgarísjakann sem nú lónar fyrir mynni Skagafjarðar. Hafið Norðurslóðir Skagafjörður Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fleiri fréttir Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Sjá meira
Bílar eru þegar farnir að keyra út að Straumnesvita til að berja hann augum, segir Sjöfn. Hún segir stífa norðaustanátt ríkja á svæðinu og vel kunni að vera að hann reki inn á Skagafjörð. Straumnesviti, þar sem fólk safnast nú saman til að berja borgarískjakann augum, er hér merktur inn með rauðum fána. Já.is „Það hafa verið landfastir borgarísjakar hjá okkur stundum,“ segir Sjöfn en ekki er um óvæntan gest að ræða. „Ég hef verið að bíða eftir þessu, ég er búin að eiga von á þessu undanfarið.“ Sjöfn staðfestir að um borgarísjaka sé að ræða. „Hann er bara ansi stór. Hann er hérna á oddanum við vesturenda Skagafjarðar, hann ber í sjóndeildarhringinn. Hann stendur ekkert hátt upp sko, hann er frekar flatur.“ Myndin sýnir staðsetningu borgarísjaka í síðasta ískönnunarflugi Landhelgisgæslunnar. Veðurstofa Íslands Flugvél Landhelgisgæslunnar flýgur regluleg ískönnunarflug. Í lýsingu könnunarflugs sem farið var fyrir þremur dögum, þann 27. júlí, er sagt frá tveimur stórum borgarísjökum, einum um 400 metrar á lengd og hinum um 200 metrar á lengd. Síðasta könnunarflug var flogið daginn eftir en Landhelgisgæslan sagði að sér hefðu ekki borist ábendingar um að jakinn færðist nú nær landi og að ekki væri hægt að staðfesta að farið yrði slíkt ískönnunarflug á morgun, föstudag. Átt þú myndir eða frásagnir af borgarísjakanum sem rekur nær landi við Skagafjörð? Við tökum á móti öllum upplýsingum á ritstjorn@visir.is eða í síma 512-5200. Veðurstofu Íslands höfðu sömuleiðis ekki borist ábendingar um borgarísjakann sem nú lónar fyrir mynni Skagafjarðar.
Átt þú myndir eða frásagnir af borgarísjakanum sem rekur nær landi við Skagafjörð? Við tökum á móti öllum upplýsingum á ritstjorn@visir.is eða í síma 512-5200.
Hafið Norðurslóðir Skagafjörður Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fleiri fréttir Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Sjá meira