Tvítugur strákur fær næstum því tólf milljarða króna samning Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. júlí 2026 12:01 Macklin Celebrini spilar fyrir San Jose Sharks og er þegar orðinn fyrirliði kanadíska landsliðsins þrátt fyrir að vera bara tvítugur. AP/Ryan Sun Macklin Celebrini hefur skráð sig á spjöld sögunnar í bandarísku íshokkídeildinni þrátt fyrir að vera enn bara tvítugur.
Hinn ungi Celebrini, sem spilar með San Jose Sharks, skrifaði undir stærsta NHL-samning sögunnar sem skilar honum 94 milljónum dollara á fimm árum en það gera næstum því tólf milljarða í íslenskum krónum. Félagið staðfesti samningsframlenginguna í gær. Þar kemur fram að Celebrini muni þéna 18,8 milljónir dollara á ári frá 2027 til 2032 eða meira en 2,3 milljarða króna á hverju ári. Aldrei áður hefur jafn stór samningur verið undirritaður í NHL-deildinni. Nýr samningur Celebrinis tekur reyndar ekki gildi fyrr en næsta haust, svo hann þarf að bíða í eitt ár eftir að verða methafinn. „Ég gæti ekki verið ánægðari með að skrifa undir samninginn minn í dag. Trúin sem stjórn liðsins sýnir mér er sönnun þess að við erum að byggja upp eitthvað sérstakt. Ég og liðsfélagar mínir erum tilbúnir að færa borginni Stanley-bikarinn,“ segir Celebrini. Celebrini, sem er fæddur árið 2006, var valinn fyrstur í nýliðavali NHL árið 2024. Síðan þá hefur hann orðið einn af bestu leikmönnum deildarinnar og fékk það afar virta verkefni að vera fyrirliði Kanada á HM í maí. Nítján ára gamall varð hann þar með næstyngsti fyrirliði landsliðsins í sögunni, en liðið tapaði síðar leiknum um bronsverðlaunin á HM gegn Noregi.
Íshokkí Mest lesið Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Hleypur aldrei aftur eftir hjartastopp Sport Strippaði á Kópavogsvelli fyrir Bestu deildina Íslenski boltinn Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Enski boltinn Leikmenn beggja liða fá bönn eftir úrslitaleik HM Fótbolti Fjórtán ára undrabarn spilar með Þorsteini Leó Handbolti Sjáðu steinsofandi vörn Víkings í mikilvægasta einvígi tímabilsins Fótbolti Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA Íslenski boltinn Aron Einar skoraði í fyrsta leik Fótbolti FH - Víkingur R | Nýta þær sér mistök meistaranna? Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Strákarnir réðu ekki við Finnana Curtis Jones farinn til Inter Glódís skoraði í stórsigri Bayern Hlín og Guðrún skildu jafnar í toppslagnum Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Real Betis - Real Sociedad | Tímabilið hefst hjá Orra Ísland tapaði fyrir Portúgal Óliver heldur áfram að slá í gegn Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA FH - Víkingur R | Nýta þær sér mistök meistaranna? Þór/KA - Valur | Valskonur í færi á að koma sér úr fallsæti Uppgjörið: ÍBV - Þróttur 1-2 | Ekki góð endurkoma Semur lag fyrir frjálsíþróttamót sem haldið verður annað hvert ár Kylfingarnir „kjöt á hlaðborði“ í Kanada Leikmenn beggja liða fá bönn eftir úrslitaleik HM BBC birtir innslag um sögulegt einvígi KR og Liverpool Slasaði sig í boxi og verður ekki með um helgina Geta Scheffler og McIlroy ekki spilað vel á sama tíma? Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sjáðu steinsofandi vörn Víkings í mikilvægasta einvígi tímabilsins Strippaði á Kópavogsvelli fyrir Bestu deildina Íhuga að þvinga fram fordæmalausa kosningu um vantraust Hleypur aldrei aftur eftir hjartastopp Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ Konsa orðinn leikmaður Arsenal Sjáðu mörkin: Útsendari FH refsaði toppliðinu og Ása Björg með sýningu Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Sjá meira