Ný yfirlýsing UEFA: „FIFA getur ekki notað íþróttina til að auðga sig og vini sína“ Valur Páll Eiríksson skrifar 29. júlí 2026 15:40 Gianni Infantino, forseti FIFA, (t.v.) og Aleksander Ceferin, forseti UEFA, (t.h.). Köldu andar milli þeirra þessi dægrin. Vísir/EPA Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, sendi í dag frá sér yfirlýsingu í ljósi bréfs Gianni Infantino, forseta FIFA, til aðildarríkja að sambandinu í dag. Í bréfinu lofar Infantino stuðningsfólki við umdeilda áætlun hans háum fjárhæðum en segi samböndin ekki já fyrir 19. september verði dregið úr greiðslum til þeirra.
Infantino skrifaði öllum aðildarsamböndum að FIFA bréf í dag þar sem þeim er gefinn frestur til 19. september að ákveða hvort þau styðji verkefnið. Þau sem styðji það fá 40 milljónir dala, um fimm milljarða króna, í eingreiðslu. UEFA hafði þegar sent frá sér yfirlýsingu í gær þegar áætlanir FIFA komu upp á yfirborðið og gagnrýndu ekki aðeins tillögurnar, heldur einnig hvernig að þeim var staðið, þar sem engin álfusambönd eða landssambönd voru hafð með í ráðum. Með þessum fresti og atkvæðakaupum Infantino stillir hann landssamböndum líkt og KSÍ upp við vegg. Further UEFA statement on FIFA plans: ⬇️ pic.twitter.com/EgQSUob9B5— UEFA (@UEFA) July 29, 2026 „Í dag fréttum við af fresti sem FIFA lagði fyrir samböndin um að styðja tillögur sínar ellegar myndi sambandið draga tilboðið um einskiptisgreiðslu til baka. Þetta segir allt sem þú þarft að vita um þessa áætlun,“ segir í yfirlýsingu UEFA. Þar segir enn fremur: „Eftir að hafa átt samtöl við marga hagsmunaaðila innan fótboltans víða um heim veit UEFA að veruleg vaxandi andstaða er við áætlanir FIFA,“ „FIFA getur ekki haldið áfram að nota íþróttina okkar til að auðga sig og vini sína. Við getum leyft íþróttinni að vaxa á réttan hátt. Það er kominn tími til að forgangsraða knattspyrnusamböndum, félögum, deildum, leikmönnum og aðdáendum.“ Samkvæmt fregnum úr erlendum miðlum leitar UEFA frambjóðanda til að bjóða sig fram gegn Infantino í forsetakosningum í mars næstkomandi. Frestur til þess rennur út 18. nóvember. Fjölmörg sambönd hafa þegar skrifað undir stuðningsbréf fyrir Infantino, í raun 200 af 211 samböndum, en þau bréf má framselja, eða flytja yfir á annan frambjóðanda, ef slíkur býður sig fram. Neyðarfundur allra formanna sambanda Evrópuþjóða verður haldinn af UEFA á morgun. Knattspyrnusamband Tékklands hefur þegar lýst yfir stuðningi við áform Infantino en önnur lítið tjáð sig, þar á meðal Þorvaldur Örlygsson, formaður KSÍ, sem sagði ekki nægilegar upplýsingar liggja fyrir í svari við skriflegri fyrirspurn Vísis í morgun. Málið var rætt í þaula í Besta sætinu, hlaðvarpi íþróttadeildar Sýnar, sem má hlusta á í spilaranum að neðan.
UEFA FIFA KSÍ Deilur um Gianni Infantino Tengdar fréttir UEFA mun ræða sniðgöngu á HM á neyðarfundi Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, hefur brugðist mjög harkalega við fréttum um plön Gianni Infantino, forseta FIFA, að hleypa fjárfestum að innviðum sambandsins, þar á meðal HM í fótbolta. 29. júlí 2026 07:32 Blatter gagnrýnir áætlanir FIFA: „Mjög skaðlegt fyrir fótboltann“ Sepp Blatter, fyrrverandi forseti FIFA, hefur bæst í hóp þeirra fjölmörgu sem hafa gagnrýnt þær áætlanir að hleypa fjárfestum að innviðum sambandsins eins og HM í fótbolta. Blatter tengir líka fjárfestaleit FIFA við samband Gianni Infantino og Donald Trump. 29. júlí 2026 09:02 UEFA logar í ljósi áforma Infantino: „Sál fótboltans ekki til sölu“ Greina má reiði hjá stjórnendum Knattspyrnusambands Evrópu, UEFA, sem birti harðorða yfirlýsingu síðdegis. Tilefnið eru meint plön Gianni Infantino, forseta FIFA, að hleypa fjárfestum að innviðum sambandsins, þar á meðal HM í fótbolta. 28. júlí 2026 19:16 Bavíanar í Bandaríkjunum vilja græða peninga Gianni Infantino, forseti FIFA, vill hleypa fjárfestum að kjötkötlum FIFA og það ætlar hann að gera með því að bjóða knattspyrnusamböndum gríðarmikla peninga. Óhætt er að segja að allt sé vitlaust út af þessu máli. 29. júlí 2026 13:59 Fá rúmlega fimm milljarða króna fyrir að samþykkja áform Infantinos Aðildarríki FIFA hafa frest til 19. september til að samþykkja umdeildar áætlanir Giannis Infantino, forseta Alþjóða knattspyrnusambandsins. Þau aðildarríki sem leggja blessun sína yfir áætlanirnar fá fjörutíu milljónir Bandaríkjadala í sinn hlut. 29. júlí 2026 12:34 Mest lesið Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Fótbolti Jesus sveik lærisveininn Fótbolti Yfirmenn Heimis teknir á teppið Fótbolti Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Enski boltinn „Ronaldo er elsta frekjudolla í heimi“ Sport Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Handbolti Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Enski boltinn Tekur strax við sjöunni af Ronaldo Fótbolti Fleiri fréttir Danmörk - Portúgal | Lífið án Ronaldos Írland - Austurríki | Lykilleikur fyrir Heimi í miðjum stormi Enn er penninn á lofti í Laugardal Hættur við að hætta við að hætta Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Tekur strax við sjöunni af Ronaldo Jesus sveik lærisveininn Fékk gráðuna fyrir viku og lék í djörfu myndbandi Litlu finnsku uglurnar slá í gegn Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Yfirmenn Heimis teknir á teppið Tók boltann með höndum og kostaði Arsenal tvö stig Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Þýsku meistararnir unnu stórsigur í Meistaradeildinni Ída Marín skoraði í stórsigri í Evrópubikarnum Hlín og félagar á leið í 16-liða úrslitin sannfærandi Uppgjörið: Czarni - Breiðablik 1-0 (7-2) | Áttu aldrei séns Ronaldo tilkynnir að hann sé á förum frá landsliðinu Diljá Ýr skaut Brann í 16-liða úrslitin Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Uppgjörið: Frankfurt - FH 4-1 | Stórliðið batt enda á Evrópudraumi FH Kvartaði í forsetann þegar hann fékk ekki að spila Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ Sjá meira
UEFA mun ræða sniðgöngu á HM á neyðarfundi Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, hefur brugðist mjög harkalega við fréttum um plön Gianni Infantino, forseta FIFA, að hleypa fjárfestum að innviðum sambandsins, þar á meðal HM í fótbolta. 29. júlí 2026 07:32
Blatter gagnrýnir áætlanir FIFA: „Mjög skaðlegt fyrir fótboltann“ Sepp Blatter, fyrrverandi forseti FIFA, hefur bæst í hóp þeirra fjölmörgu sem hafa gagnrýnt þær áætlanir að hleypa fjárfestum að innviðum sambandsins eins og HM í fótbolta. Blatter tengir líka fjárfestaleit FIFA við samband Gianni Infantino og Donald Trump. 29. júlí 2026 09:02
UEFA logar í ljósi áforma Infantino: „Sál fótboltans ekki til sölu“ Greina má reiði hjá stjórnendum Knattspyrnusambands Evrópu, UEFA, sem birti harðorða yfirlýsingu síðdegis. Tilefnið eru meint plön Gianni Infantino, forseta FIFA, að hleypa fjárfestum að innviðum sambandsins, þar á meðal HM í fótbolta. 28. júlí 2026 19:16
Bavíanar í Bandaríkjunum vilja græða peninga Gianni Infantino, forseti FIFA, vill hleypa fjárfestum að kjötkötlum FIFA og það ætlar hann að gera með því að bjóða knattspyrnusamböndum gríðarmikla peninga. Óhætt er að segja að allt sé vitlaust út af þessu máli. 29. júlí 2026 13:59
Fá rúmlega fimm milljarða króna fyrir að samþykkja áform Infantinos Aðildarríki FIFA hafa frest til 19. september til að samþykkja umdeildar áætlanir Giannis Infantino, forseta Alþjóða knattspyrnusambandsins. Þau aðildarríki sem leggja blessun sína yfir áætlanirnar fá fjörutíu milljónir Bandaríkjadala í sinn hlut. 29. júlí 2026 12:34