Tosca skýst upp úr turninum í Brussel Jónas Sen skrifar 29. júlí 2026 13:30 Sagan segir að í einni uppfærslu á Toscu hafi sópransöngkonan kastað sér fram af turni Castel Sant'Angelo í lok óperunnar, eins og Puccini gerir ráð fyrir. Fyrir neðan beið hennar mjúk dýna. Það gleymdist hins vegar að reikna með gormunum. Þegar Tosca lenti skaust hún aftur upp fyrir turnbrúnina. Síðan hvarf hún niður og birtist á ný, látin óperuhetjan, hoppandi eins og ítalskt jójó á meðan hljómsveitin reyndi væntanlega að halda andlitinu. Hvort sagan er dagsönn skiptir eiginlega engu. Hún lýsir íslenskri umræðu um Evrópusambandið fullkomlega. Við erum ekki einu sinni byrjuð á fyrsta þætti, en Tosca er þegar búin að kasta sér úr turninum, missa fullveldið, afhenda fiskimiðin, taka upp evru og skjótast síðan aftur upp úr Brussel með íslenska fánann fastan í kjólnum. Hinn 29. ágúst verður nefnilega ekki kosið um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Kosið verður um hvort hefja eigi aðildarviðræður að nýju. Það er dálítill munur. Matseðillinn er ekki máltíðin Að samþykkja viðræður er ekki að samþykkja aðild. Það er ekki einu sinni trúlofun. Þetta er frekar eins og að fá að sjá matseðilinn. Maður getur lesið hann, séð að aðalrétturinn er soðið rósakál með sameiginlegri sjávarútvegsstefnu, og sagt: „Nei takk. Ég fékk mér pylsu áðan.“ Til þess að vita hvað kemur út úr samningaviðræðum þarf yfirleitt að eiga samningaviðræður. Hitt - að gefa sér niðurstöðuna fyrir fram - er eins og að skrifa tónleikagagnrýni áður en hljómsveitin hefur stillt hljóðfærin. Það sparar vissulega tíma, en aðferðafræðin er dálítið vafasöm. Menn hafa verið reknir fyrir annað eins. Kollurinn við ruslafötuna Andstæðingar viðræðna draga gjarnan upp þá mynd að Ísland fengi minnsta sætið úti á enda. Ég sé það skýrt fyrir mér. Frakkar og Þjóðverjar sitja í rafstýrðum leðurstólum. Ítalir eru með espressóvél. Danir hafa tekið með sér nesti. Íslenski fulltrúinn situr á þrífættum kolli við ruslafötuna með hálfa flatköku og hljóðnema sem virkar ekki. Þetta er nöturleg mynd. En smæð Íslands er ekki ný uppgötvun. Við erum smáþjóð í Atlantshafsbandalaginu, Sameinuðu þjóðunum og EES, og hættum ekki að vera sjálfstæð þjóð í hvert sinn sem við gerum samning við aðra. Við tökum raunar þegar upp fjölda reglna Evrópusambandsins gegnum EES. Við erum sem sagt þegar í hljómsveitinni, fáum nóturnar og spilum verkið, en höfum hins vegar lítið um efnisskrána að segja. Smæðin er því ekki alvöru mótrök. Alvöru rökin liggja annars staðar, og þau á ég erfiðara með að afgreiða með brandara. Það sem ég tek alvarlega Þrennt stendur eftir þegar skopmyndunum sleppir. Í fyrsta lagi sjávarútvegurinn. Sameiginlega sjávarútvegsstefnan er ekki smáatriði sem hægt er að semja í burtu yfir kaffibolla; hún er kjarninn í því sem Ísland á mest undir. Og hér verð ég að snúa minni eigin líkingu við: matseðill Evrópusambandsins er ekki „à la carte“. Það er til regluverk, ákveðinn grunnur sem allir taka upp, og engan veginn sjálfgefið að þar sé pláss fyrir þá undanþágu sem Ísland þyrfti. „Sjáum bara hvað þeir bjóða“ getur því verið dálítið barnalegt - það er fullkomlega mögulegt að svarið verði einfaldlega nei, og þá er ekki mikið meira um það að segja. Í öðru lagi skriðþunginn. Viðræður eru ekki hlutlaus athöfn. Þær búa til stemningu, opna kafla, kalla á ár af vinnu og pólitíska fjárfestingu - og þá má segja að „já“ sé þegar orðið stemningin þegar til seinni atkvæðagreiðslu kemur. Sá sem óttast að ferlið ýti okkur út í jáið er ekki að ímynda sér neitt. Í þriðja lagi kostnaðurinn. Að semja tekur mörg ár og bindur krafta sem gætu farið í annað. Þetta eru raunveruleg rök, og það kann vel að vera að EES-leiðin sé einfaldlega betri kostur fyrir Ísland en full aðild. En takið eftir hvert þau leiða. Ef stóra spurningin er hvort yfirhöfuð sé svigrúm fyrir sjávarútveginn á Íslandi, þá er heiðarlega svarið að við vitum það ekki eins og staðan er. Eina leiðin til að komast að því er að spyrja, með rauðu línuna uppi á borðinu og skýrt „nei“ tilbúið ef svarið er slæmt. Óttinn við að niðurstaðan verði vond er einmitt ástæða til að sjá hana svart á hvítu, ekki ástæða til að neita að horfa. Krónan, loftpúðinn og reikningurinn Sterkustu rökin fyrir íslensku krónunni eru sömuleiðis raunveruleg. Sveigjanlegt gengi getur tekið á sig högg þegar efnahagsáföll verða. Það gerðist í Hruninu: krónan féll, útflutningsgreinar urðu samkeppnishæfari og hagkerfið gat lagað sig hraðar en ella. Krónan var að því leyti eins og loftpúði í bílslysi. En loftpúðinn sendi líka reikninginn. Gengisfallið hækkaði verð á innfluttum vörum, jók verðbólgu, skerti kaupmátt og lék skuldsett heimili grátt. Og með lofinu um hina dásamlegu sveigjanlegu krónu fylgir sjaldnar sú staðreynd að með henni hafa lengst af fylgt miklu hærri vextir en í nágrannalöndunum. Þeir vextir eru ekki bara tölur í fréttum. Þeir éta upp ráðstöfunartekjur, gera húsnæðislán dýrari og hægja á eignamyndun almennings. Þetta er raunverulegur kostnaður sem leggst þyngst á ungt fólk - og hann verður ekki greiddur með stolti einu saman. Bankinn tekur sitt, hvað sem okkur finnst um fánann. Krónan sem hagstjórnartæki er því tvíeggjað sverð og það er ekkert handfang á því. Töfratakkarnir tveir Sumir segja að ef við viljum lægri vexti sé það einfaldlega okkar að lækka þá. Ef matarkarfan er of dýr getum við bara lækkað verðið. Það hljóta þá að vera tveir stórir takkar í stjórnarráðinu. Annar merktur LÆGRI VEXTIR. Hinn merktur ÓDÝRARI MATUR. Af djöfullegri illsku hafa ráðherrarnir neitað að ýta á þá. Að segja að við getum einfaldlega lækkað vexti er svipað og að segja að ef okkur sé kalt geti ríkisvaldið kveikt í húsinu. Hitinn hækkar vissulega, en ýmislegt annað gerist um leið. Vextir eru ekki skapgerðarbrestur seðlabankastjóra; þeir tengjast verðbólgu, gengi, eftirspurn og ástandi hagkerfisins. Sama gildir um matvöruverð: það má breyta tollum, sköttum, samkeppnisreglum og landbúnaðarkerfinu, en hver aðgerð hefur afleiðingar. Stjórnmál eru því miður sjaldnast eins og að panta á veitingastað: Eitt stykki lága vexti, sterka krónu, ódýran mat og enga verðbólgu, takk. Og má ég fá meira brauð á borðið? Smæð þjóðarinnar og pínulitla krónan gera okkur stundum sveigjanleg. Þær gera okkur hins vegar ekki óhult fyrir lögmálum hagfræðinnar. Fullveldi er ekki postulínsstytta Það er ekkert hlægilegt við að þykja vænt um fullveldið. Það er dýrmætt, og fólk sem tekur það alvarlega hefur rétt fyrir sér í því að það skiptir máli. En í umræðunni er því stundum lýst eins og brothættri postulínsstyttu hennar ömmu - einhverju sem við megum helst ekki snerta, ræða eða hleypa útlendingum nálægt, því þá gæti handleggurinn dottið af. Og þar er ég ósammála. Fullveldi felst ekki aðeins í því að geta sagt nei. Það felst líka í því að geta aflað upplýsinga, gert samninga og tekið síðan sjálfstæða afstöðu til niðurstöðunnar. Sterk þjóð þarf ekki að óttast að líta á það sem henni stendur til boða. Ég veit ekki hvort ég myndi samþykkja samning um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Ég hef ekki séð hann. Enginn hefur séð hann, einfaldlega vegna þess að hann er ekki til. Þess vegna finnst mér ótímabært að lýsa honum sem þjóðarglæp. Komi vondur samningur, segjum við nei. Komi góður samningur, tökum við afstöðu til hans. En að neita að opna umslagið af ótta við það sem gæti staðið í bréfinu er ekki sérstakt sjálfstæðisafrek. Að lýsa inngöngu Íslands sem orðnum harmleik áður en viðræður hefjast er eins og að leika lokaatriðið í Toscu áður en hljómsveitin hefur hafið forleikinn. Svo sitjum við í salnum og horfum á Toscu skjótast upp og niður fyrir aftan turninn. Og gefum sýningunni eina stjörnu. Höfundur er tónlistarmaður og gagnrýnandi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jónas Sen Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hvað verður minna þegar ríkið tekur meira? Íris Ósk Gísladóttir Skoðun Háskólamenntun á útsölu! Tombóluprís – allt á að seljast. Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Áður en við greinum barn þurfum við að skilja allt barnið Tara Khoshkhoo Skoðun Við erum froskar í vatni sem nálgast suðu Isla Sweet,Jóhanna Malen Skúladóttir Skoðun 0,01% er ekki undanþága frá ábyrgð Haukur Logi Jóhannsson Skoðun Má þjóðin aðeins fá að anda? Margrét Högnadóttir Skoðun Er í alvöru engin þörf á að laga Ísland? Þórður Snær Júlíusson Skoðun Hver er okkar Napóleon Bónaparte? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun Óréttlæti lífeyriskerfisins gagnvart ungu fólki Kjartan Björgvinsson Skoðun Sögulegt skref fyrir dýr í Danmörku Linda Karen Gunnarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Af bíómiðum og baðlónum María Rut Ágústsdóttir skrifar Skoðun Hvað verður minna þegar ríkið tekur meira? Íris Ósk Gísladóttir skrifar Skoðun Hver er okkar Napóleon Bónaparte? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Samfélagsumræðan og nunnan Ingibjörg Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun 0,01% er ekki undanþága frá ábyrgð Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Óréttlæti lífeyriskerfisins gagnvart ungu fólki Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við erum froskar í vatni sem nálgast suðu Isla Sweet,Jóhanna Malen Skúladóttir skrifar Skoðun Sögulegt skref fyrir dýr í Danmörku Linda Karen Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Áður en við greinum barn þurfum við að skilja allt barnið Tara Khoshkhoo skrifar Skoðun Samfélagslegt samtal er forsenda inngildingar í skólastarfi Helga Þórey Júlíudóttir,Sædís Ósk Harðardóttir skrifar Skoðun Þegar tengsl geta skipt sköpum Steinunn Bergmann,María Björk Ingvadóttir skrifar Skoðun Háskólamenntun á útsölu! Tombóluprís – allt á að seljast. Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Má þjóðin aðeins fá að anda? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun EES er ekki eina leiðin og kannski ekki sú skynsamlegasta lengur Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Hver fær að skilgreina hvað þjóðin sagði? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Fjórfrelsið og EES fyrir Ísland Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Já heilbrigðisráðherra - sóknarfærin eru mörg þegar kemur að lýðheilsu barna Halla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Að PISA upp í vindinn – getur gervigreind þýtt námsefni fyrir börn? Steinþór Steingrímsson skrifar Skoðun Öldungaráð Reykjavíkurborgar tekið úr sambandi Viðar Eggertsson skrifar Skoðun Stöðugleiki á leigumarkaði Benedikt S. Benediktsson skrifar Skoðun Hálfsársuppgjör staðfestir áhyggjur af fjármálum Seltjarnarness Kristinn Ólafsson skrifar Skoðun 5,2% gjaldahækkanir – skýr skilaboðin inn á vinnumarkaðinn Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Hvað gætum við gert fyrir 112 milljarða? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hamingjuóskir til allra sem sögðu nei Einar Helgason skrifar Skoðun Þegar allt fer aftur á fullt – munum eftir fólkinu Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir skrifar Skoðun Börnin sem mæta afgangi Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Læsi er sameiginleg ábyrgð og fjárfesting til framtíðar Sædís Ósk Harðardóttir skrifar Skoðun PISA - Viljum við árangur án erfiðisins? Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers eiga fatlaðir og foreldrar þeirra að gjalda? Margrét Össurardóttir skrifar Skoðun Alvöru eða sérhæfðir kennarar Svava Björg Mörk skrifar Sjá meira
Skoðun Samfélagslegt samtal er forsenda inngildingar í skólastarfi Helga Þórey Júlíudóttir,Sædís Ósk Harðardóttir skrifar
Skoðun Háskólamenntun á útsölu! Tombóluprís – allt á að seljast. Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar
Skoðun Já heilbrigðisráðherra - sóknarfærin eru mörg þegar kemur að lýðheilsu barna Halla Þorvaldsdóttir skrifar
Skoðun Að PISA upp í vindinn – getur gervigreind þýtt námsefni fyrir börn? Steinþór Steingrímsson skrifar
Skoðun Hálfsársuppgjör staðfestir áhyggjur af fjármálum Seltjarnarness Kristinn Ólafsson skrifar