UEFA mun ræða sniðgöngu á HM á neyðarfundi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. júlí 2026 07:32 Gianni Infantino, forseti FIFA, við hlið Donald Trump Bandaríkjaforseta á verðlaunaathöfn heimsmeistaramótsins á dögunum. AP/Jacquelyn Martin Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, hefur brugðist mjög harkalega við fréttum um plön Gianni Infantino, forseta FIFA, að hleypa fjárfestum að innviðum sambandsins, þar á meðal HM í fótbolta.
UEFA ætlar að halda neyðarfund með 55 aðildarsamböndum sínum í þessari viku.FIFA vinnur með alþjóðlega fjármálaþjónustufyrirtækinu J.P. Morgan og meðal fjárfesta væri Thrive Eternal, sem var stofnað af Joshua Kushner, en bróðir hans, Jared Kushner, er tengdasonur Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna. UEFA is accelerating efforts to hold an emergency meeting of its 55 member associations this week, sources told ESPN, to discuss plans, including a potential World Cup boycott, to oppose a FIFA proposal to raise $20 billion from a sale of equity to outside investors.…— ESPN (@espn) July 29, 2026 UEFA brást skjótt við áætlununum á þriðjudag og sagði að íþróttin væri „ekki til sölu hjá FIFA“. FIFA gæti aflað tuttugu milljarða dala með sölu á hlutafé heimsmeistaramótsins til utanaðkomandi fjárfesta og ljóst er að Infantino sjálfur myndi væntanlega hagnast verulega sjálfur á slíkum viðskiptum. Heimildarmenn erlendra miðla segja að mikil andstaða væri innan UEFA gegn tillögum FIFA. „UEFA tekur þetta afar alvarlega. Það sama ætti að eiga við um knattspyrnusambönd allra landa. Það sama á við um alla hagsmunaaðila sem láta sig framtíð íþróttarinnar varða,“ segir í yfirlýsingunni og beinir þar af leiðandi orðum sínum til KSÍ og annarra knattspyrnusambanda ríkja víða um heim. „Sál og stjórnun knattspyrnunnar eru ekki eignir til að eiga viðskipti með – sérstaklega þar sem ekkert gagnsæi er um hverjir hagnast fjárhagslega. Enginn okkar á knattspyrnuna. Það er ekki FIFA að selja hana.“ Erlendir miðlar segja að mjög líklegt væri að fjarfundur yrði haldinn fyrir lok vikunnar. FIFA hætti við tillögu árið 2021 um að halda heimsmeistaramótið á tveggja ára fresti vegna hótunar um sniðgöngu af hálfu UEFA og búist er við að sami fælingarmáttur verði notaður til að berjast gegn nýjustu áætlun FIFA. Major escalation between FIFA and UEFAFIFA wants to raise around £3 billion by selling a minority stake in a new entity called FIFA Forward Enterprise that covers its competitions, including the World Cup. European nations are discussing a potential boycott of the next World…— Mario Nawfal (@MarioNawfal) July 29, 2026
FIFA UEFA HM 2030 í fótbolta Deilur um Gianni Infantino Mest lesið Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Fótbolti Jesus sveik lærisveininn Fótbolti Yfirmenn Heimis teknir á teppið Fótbolti Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Enski boltinn „Ronaldo er elsta frekjudolla í heimi“ Sport Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Enski boltinn Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Handbolti Tekur strax við sjöunni af Ronaldo Fótbolti Fleiri fréttir Enn er penninn á lofti í Laugardal Hættur við að hætta við að hætta Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Tekur strax við sjöunni af Ronaldo Jesus sveik lærisveininn Fékk gráðuna fyrir viku og lék í djörfu myndbandi Litlu finnsku uglurnar slá í gegn Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Yfirmenn Heimis teknir á teppið Tók boltann með höndum og kostaði Arsenal tvö stig Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Þýsku meistararnir unnu stórsigur í Meistaradeildinni Ída Marín skoraði í stórsigri í Evrópubikarnum Hlín og félagar á leið í 16-liða úrslitin sannfærandi Uppgjörið: Czarni - Breiðablik 1-0 (7-2) | Áttu aldrei séns Ronaldo tilkynnir að hann sé á förum frá landsliðinu Diljá Ýr skaut Brann í 16-liða úrslitin Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Uppgjörið: Frankfurt - FH 4-1 | Stórliðið batt enda á Evrópudraumi FH Kvartaði í forsetann þegar hann fékk ekki að spila Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Sá sem ég dáist mest að í heiminum“ Stelpurnar fengu medalíur merktar strákum Sjá meira