„Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Áróra L Davíðsdóttir og Tómas Arnar Þorláksson skrifa 26. júlí 2026 19:48 Samsett Bræðslustjóri segir tónleikahald á Bræðslunni á Borgarfirði eystra hafa gengið vel þrátt fyrir leiðindaveður. Hann þakkar viðbragðsaðilum fyrir vel unnin störf og að það þýði ekkert að velta sér of mikið upp úr veðurspánni.
Talsverður vindur og úrkoma hefur ráðið ríkjum á Borgarfirði eystra um helgina, þar sem tónlistarhátíðin Bræðslan hefur farið fram. Veðrið setti strik í reikninginn í gærkvöldi og nótt. Hluti gesta þurfti að leita sér skjóls í íþróttahúsi bæjarins. Björgunarsveitin Sveitungi var kölluð til í gær til að standa að gæslunni á tjaldsvæðinu eftir að slagsmál brutust þar út nóttina áður. Nóttin var einnig erilsöm hjá lögreglu en í tilkynningu frá lögreglunni á Austurlandi segir að nokkrir gestir hafi leitað aðstoðar vegna tjalda sinna. Lögreglan fékk þá tvær tilkynningar vegna slagsmála en málin eru nú bæði til rannsóknar. Magni Ásgeirsson, annar Bræðslustjóra, segir í samtali við fréttastofu að tónleikahaldið hafi þó gengið einkar vel og að langflestir gestir hafi skemmt sér konunglega. „Bræðslutónleikarnir í gær voru algjörlega stórkostlegir en á meðan þá hérna ákvað norðvestanáttin að flýta sér aðeins meira og taka rigninguna, vin sinn, með sér. Þannig að það var svona frekar slyddulegt hérna undir lok tónleikanna,“ segir Magni. Hann þakkar viðbragðsaðilum innilega fyrir vel unnin störf og segir samstarf við lögreglu og björgunarsveitir hafa gengið býsna vel. Farið verður yfir hvað betur hefði mátt fara eins og alltaf. „En það var allt „ready“ ef svo má segja. Það voru allir viðbragðsaðilar í startholunum, þannig að það var strax farið í hjálpað nokkrum tjöldum upp í yfirbyggðu sparkhöllina okkar og þar var reyndar alveg frábær stemning, það var gríðarlega gaman hjá fólkinu. Kári hafi flýtt sér fullmikið „Þetta var bara frábært samstarf og allir gerðu sitt allra besta til að öllum liði vel og ég held að það hafi bara tekist mjög vel nema Kári sem var að flýta sér fullmikið.“ Ekki sé hægt að svekkja sig á vonda veðrinu um of. Aðspurður hvort að staðan hafi verið ergileg þegar sá í hvað stefndi eftir blíðuna sem hefur verið á Austurlandi síðustu daga og vikur segir Magni: „Svona já og nei. Við vorum með svona möntru í gær. Það eru hundruð þúsunda að flýja skógarelda í Frakklandi og það er hitabylgja alls staðar sem er gjörsamlega að lama Evrópu, þannig að fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti.“ Ég verð að taka ofan fyrir unga fólkinu okkar. Það er gjörsamlega yndislegt, svona kynslóðir sem eru að byrja að skemmta sér. Það var bara í lopapeysunum og með brosið alveg þvert yfir andlitið þótt tjöldin væru á hliðinni. Það var ekkert vandamál, það voru bara allir glaðir.“
Múlaþing Bræðslan Tónleikar á Íslandi Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent Klórar sér í kollinum Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Innlent Fleiri fréttir Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Sjá meira